Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1962, Page 23

Fálkinn - 20.06.1962, Page 23
Þau stigu út úr vagninum, Sir Richard greiddi ökumanninum og heilsaði um leið lögregluþjóni sem gekk framhjá. Annars var allt grafkyrrt og tómt. Katrín fylgdi honum gegnum hliðið. Hún varð vör við undarlega óþolin- mæði hjá honum, þar sem hann stóð og tók í gylltan hring, sem gerði það að verkum, að bjalla hringdi fyrir innan. Kyrrð næturinnar var rofin af hring- ingunni. Loks heyrðist fótatak fyrir innan og gamall þjónn kom til dyra. Sir Richard kynnti Katrínu sem ætt- ingja sinn og bað þjóninn að hafa gestaherbergið reiðubúið fyrir nóttina. Gamli þjónninn varð svolítið kyndug- ur á svipinn, en svaraði engu. Litlu seinna, eftir að ljós höfðu verið kveikt í anddyrinu, gekk hann hægum skref- um upp skrautlegar marmaratröpp- urnar. Allt í einu sneri hann sér við og spurði: — Afsakið, herra, en hvernig á ég að titla þennan unga ættingja yðar? Sir Richard hikaði andartak. Katrín stóð grafkyrr og starði á víxl á hann og gamla gráhærða þjóninn. — Ungfrú Catherine, sagði sir Rich- ard loks. Skömmu síðar leiddi sir Richard Katrínu gegnum forstofuna og inn í herbergi sem var þakið bókum frá gólfi til lofts. Þar kveikti hann á nokkr- um þungum bronskertastjökum. Hann benti henni að setjast í einn af dumb- rauðu hægindastólunum, sem stóð í herberginu. Hún settist, en þá fitjaði hann allt í einu upp á nefið og sagði, að fram- vegis skyldi hún ekki setjast í þessa rauðu stóla. Litur þeirra færi mjög illa við hár hennar. Sjálfur settist hann við skrifborð sitt, sem var þakið bókum, myndastyttum og skjölum og ýmsum öðrum gripum, sem hún kunni engin skil á. Hann starði á hana andartak sínum skörpu og gáfulegu augum. — Hlustaðu nú á mig, stúlka litla. Það sem ég mun nú segja þér, hljómar áreiðanlega ótrúlega í þínum eyrum, en lífið kennir okkur, að hinar fáránleg- ustu ákvarðanir verða oft hyggilegar, þegar allt kemur til alls. En sem sagt: Ég er fagurkeri, og það veiztu senni- lega ekki hvað er, en við skulum orða þetta þannig, að ég hafi ánægju af að horfa á það sem er fullkomið og að mér þyki fyrir því, þegar ég sé galla á því, sem annars gæti verið fullkomið. Til allrar hamingju er ég það vel efnaður, að ég get haft fegurðardýrkunina að tómstundastarfi mínu. Þegar ég fyrir nokkru síðan af einskærri tilviljun rakst inn á krá Perkinshjónanna, upp- götvaði ég strax að þar sem þú gekkst um á þessum leiðinlega stað, varstu gott dæmi um fegurð í alröngu um- hverfi. Forsjónin hefur veitt þér full- komna andlitsdrætti, áugnalit, sem hvergi sést nema hjá eðalsteinum, hár, sem allar konur mættu öfunda þig af, og svona mætti lengi telja. Sem sagt: Ég sá strax, að þú varst eitt af undrum náttúrunnar. En það gerði mér gramt í geði að sjá þig í þessu umhverfi. Einnig fór klæðnaður þinn í taugarnar á mér,

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.