Fálkinn - 14.11.1962, Blaðsíða 8
SEINNI
HLIJTI FRÁSAGNAR UM NJÖRÐ SNÆHÓLM
r
vid streudur Isla
Síðdegis hinn 1. maí 1941, sama dag
og H. M. S. Cireassia kom á ytri höfn-
ina í Reykjavík, gekk þrú hundruð og
og þrítugasta flugsveit norska flug-
hersins á land og settist að í Corbett
Camp við Nauthólsvík. Þess var getið
í fyrri hluta þessa máls, að viðskilnaður
Brezka hersins í þessum hluta herbúð-
anna hefði ekki verið brezka heimsveld-
inu til sóma, því braggarnir voru vart
íbúðarhæfir er Norðmenn tóku við
þeim. Upphófst nú mikil bygginga-
vinna og voru ýmsir settir til smíða
sem lítt höfðu sinnt þeim starfa áður
en gengið í her til þess að drepa óvinina
að fornnorrænum sið en aðrir voru látn-
ir rista torf og stinga sniddu til þess
að hlaða að bröggunum. Þá bætti ekki
úr skák að rottuplága herjaði Nauthóls-
vík og víðar í nágrenni höfuðstaðarins
þennan vetur og áttu Norðmenn í vök
að verjast, er rottur hlupu yfir þá á
nóttum og gerðu ónæði.
Eftir nokkurn tíma tókst þó að gera
Lögreglulið Njarðar Snæhólm fyrir
utan einn af bröggunum í Nauthólsvík,
þar sem norski herinn hafði aðsetur
sitt Njörður stendur yzt til vinstri.
— Myndin til hægri er af Sun-
derland flugbát, eins og norski herinn
notaði.
við húakynni að mestu. Flugvélar flug-
sveitarinnar komu til landsins og hófst
þá samansetning og síðar æfingaflug.
Flugvélarnar voru sem fyrr segir af
Northrop gerð, eins hreyfils flugvélar á
bátum. Þær voru mjög vel vopnaðar
eftir stærð, voru í senn orustuflugvélar
og sprengjuflugvélar. Vopnabúnaður
þeirra var fjórar vélbyssur, tvær í
hvorum væng. sem flugmaðurinn skaut
af öllum í einu með því að þrýsta niður
hnapp á stýrispinnanum. Þessar fjórar
vélbyssur skutu um 5 þúsund skot-
um á mínútu. Þá var aðstoðarflugmað-
urinn og leiðsögumaðurinn, sem sat fyrir
aftan flugmanninn, (þeirri stöðu gegndi
Njörður) vopnaður vélbyssu og loft-
skeytamaðurinn, sem sat aftastur, var
einnig vopnaður vélbyssu, sem hægt var
að skjóta af niður úr flugvélinni. Enn-
fremur voru sprengjur undir búk flug-
vélarinnar og í sumum tilfellum djúp-
sprengjur. Áhöfnin á Northrop flugvél-
unum sat þannig í röð og svo þröngt
var að lítið var hægt að hreyfa sig fyrir
allskyns tækjum og áhöldum.
Þess hefur áður verið getið að þrjú-
hundruð og þrítugasta norska flug-
sveitin var eina flugsveitin, sem notaði
Northrop flugvélar í stríðinu. Þetta var
þannig til komið að nokkru fyrir stríð
hafði norska stjórnin pantað þessar
flugvélar frá Northrop verksmiðjunum
og ætlaði þær til gæzlustarfa í Skerja-
garðinum í Noregi. Þær voru því aldrei
ætlaðar til langflugs út yfir sjó, enda
kom á daginn að lestaðar djúpsprengj-
um voru þær hættulegar sökum of
mikillar hleðslu og fórst að minnsta
kosti ein þeirra af þeim sökum norður
á Grímseyjarsundi sumarið 1942.
Njörður og félagar hans voru hér í
fremstu víglínu, því kafbátar Þjóðverja
lágu hér og voru títt á ferð meðfram
ströndum landsins.
Síðari hluta sumarsins 1941 var
þjálfun að mestu lokið og baráttan við
kafbátana hófst af fullum krafti. Njörð-
ur var meðal þeirra, sem komust í kast
við kafbátana þetta sumar, þótt oftast
sæist ekki kafbáturinn sjálfur, heldur
merki þess að hann væri þar staddur,
svo sem „Snork“, tæki sem Þjóðverjar
fundu upp til þess að hreinsa loftið í
kafbátunum án þess að þeir þyrftu að
koma upp á yfirborðið. Stundum sáust
líka sjónpípurnar er kafbátarnir sigldu
með þær upp úr til að athuga umhverf-
ið og hvort óhætt væri að koma upp á
yfirborðið. Þar sem sjónpípan skar haf-
flötinn myndaðist hvítfyssandi rák,
sem sást mjög vel úr lofti og þá voru
áhafnir Northrop flugvélanna fyrst í
essinu sínu er slíkt bar fyrir augu á
..-•y'ýv.v'v
■'V'
8 FÁLKINN