Fálkinn


Fálkinn - 14.11.1962, Blaðsíða 30

Fálkinn - 14.11.1962, Blaðsíða 30
Taugaóstyrkur ... Framhald af bls. 21. búið, — en í þessu tilfelli er kannski rétt að gera það. Þú hefur fengið 230 stig af 240 mögulegum. Við leggjum spurningu fyrir Magnús. —- Falla sumir á þessu prófi? — Það hefur komið fyrir. Aðallega fyrst eftir að nýju umferðarlögin tóku gildi, en í seinni tíð hefur ekki borið á því. — Kennir mikils taugaóstyrks? — Já. það kemur fyrir, en annars er það mjög sjaldgæft. — Það eru sumir sem segja að prófið sé ekki nógu þungt. Hvað heldur þú? — Menn ganga undir samskonar munnlegt próf hvar sem er á landinu og það er held ég nógu þungt. Hitt er svo kannski að munur getur verið á verklega prófinu. Það er ekki sama að keyra bíl á Selfossi og hér í Reykjavík. En prófið í heild var þyngt mjög við gildistöku nýju umferðarreglanna. Við þökkum Magnúsi Wíum fyrir og kveðjum. Ágúst Kornelíusson er prófdómari í verklega prófinu. Þegar við göngum út að bílnum spyrjum við Ágúst. — Ert þú ekki yngsti prófdómarinn hér? — Jú ég er sá lang yngsti. — Búinn að vera lengi í þessu? — Ég var skipaður fastur í þetta í sumar. — Falla menn á þessu prófi? — Það hefur komið fyrir. Annars er ekki komið með nemendur fyrr en þeir eru orðnir alveg færir. Sumir eru mjög taugaóstyrkir og maður verður að taka smávegis tillit til þess. Þegar við erum sezt inn spyr Ágúst Önnu um mæla og stjórntæki, hvert þeirra hlutverk séu. Síðan er ekið af stað. Það er leiðinlegt veður, rigningar- suddi og drungalegt skyggni. Við ökum Borgartúnið, Skúlagötuna Snorrabrautina, Barónsstíginn og um Austurbæinn. Bílnum er lagt og geng- ið frá honum eins og til er ætlast. Ágúst spyr Önnu nokkurra spurninga sem hún svarar greiðlega. Síðan er hún látin bakka fyrir hom og bílnum er lagt aftur og Ágúst spyr hvort ekki sé allt í lagi að hafa hann hér, en Anna segir, að það sé ekki, það megi ekki leggja fyrir framan vatnshana Slökkvi- liðsins. Nú liggur leiðin niður í miðbæ og vestur í bæ og í miðbæinn aftur, og ekið þar um góða stund og síðan inn í Borgartún. Anna hefur staðizt prófið og Ágúst skrifar nafn sitt á prófskírteinið því til staðfestingar. — Og að lokum þetta, segir Ágúst áð- ur en hann stígur út úr bifreiðinni. Neyzla áfengis og akstur bifreiðar á ekki saman. Næst er ekið niður á lögreglustöð þar sem þessir pappírar allir eru lagðir inn. Á leiðinni spyrjum við Önnu hvort hún hafi verið taugaóstyrk. — Dálítið, segir hún og brosir. Guðgeir segir að hún hafi ekið mjög vel. Á skrifstofu lögreglustjóra tekur Halla Ólafsdóttir við pappírunum og segir, að Anna megi vitja ökuskírtein- isins daginn eftir. Á leiðinni út spyrjum við Guðgeir hvað hann sé búinn að kenna lengi. — Eg er búinn að kenna í 5 ár. Anna er 130. nemandinn. — Er erfitt að kenna? — Það er nú geysilega misjafnt. Sum- ir eru mjög fljótir að læra þetta en öðrum gengur verr. Ég þurfti einu sinni að fara með einn í 35 tíma áður en ég taldi hann hæfan í próf. — Er ekki talsvert vel fullorðið fólk sem þú hefur kennt? — Jú allt upp í fimmtugt. Það er erfitt að kenna fólki á milli fertugs og fimmtugs, sérstaklega karlmönnum. Kvenfólk á aldrinum 17 til 19 ára og karlmenn 19 til 24 ára, — það hefur mér reynst bezt til kennslu. — Hefur nokkur fallið hjá þér? — Já það hefur tvisvar komið fyrir. í bæði skiptin fyrir taugaóstyrk. Þeir tóku nokkra tíma í viðbót og þá gekk það. Svo þökkum við fyrir, óskum Önnu til hamingju með prófið og erum sann- færðir um. að hún verði fyrirmyndar bílstjóri. Og þegar við höldum upp á blað eftir að hafa fylgt nemanda í gegn um öku- prófið, þá vitum við að það eru lagðar smá þrautir sem við fyrstu kynni eru sakleysislegar, en lúmskar þegar betur er að gáð. Og það sleppur enginn í gegn sem ekki kann á „sjálfrennung“. RAIIÐA FESTIN Framhald af bls. 23. — Hvers vegna svararðu ekki, Krist- ín? öskrar Páll. — Segðu nú þessum asna þarna, að það sé rétt sem ég hef sagt honum: Að við eigum bráðum að fara að gifta okkur! Enn gegnir Kristín ekki einu orði. Aðaldyrunum hefur nú verið hrundið upp, og hún starir í sífellu til þeirra, stórum augum. Ungur maður gengur inní drykkjustofuna, hávaxinn maður og herðabreiður, klæddur gráleitum ferðafötum. Háreystin hljóðnar um- hverfis hann, og fólk víkur sér til hliðar, er hann nálgast. Maður þessi gengur hægt og rólega, likast því sem hann stígi ölduna. Hár hans er þykkt og dökkt, augun nær því svört. Andlit hans hefði verið unglegt og fagurt, ef ill örlög hefðu ekki verið svo hláleg að hlemma á það öri, sem nær ofan frá vinstra gagnauga og niður fyrir kinn. — Drottinn minn dýri, heyrist ein- hver segja. þegar ungi maðurinn nem- ur staðar frammi fyrir Kristínu. — Þetta er hann Marteinn Goritsky! Gístíhnis dauðaiiís Framhald af bls. 11. — Eigið þér gistihúsið, spurði Jean hann. — Nei, það er hlutafélag sem á það. En ég átti hugmyndina að því og þess vegna gerðu þeir mig að forstjóra, meðan ég kærði mig um að vera það. — Hvernig komizt þið hjá því að lenda í klandri við lögregluna hérna? — Klandur, spurði hann hissa og það var eins og hann firrtist við spurn- inguna. — Við gerum ekkert hér sem ekki samrýmist skyldum hótelsins sem góðri stofnun. Við veitum gestum okkar allt sem þeir vilja. Það er ofur einfalt mál. Annars eru engin yfirvöld hérna. Þetta hérað er svo afskekkt, að enginn veit hvort það telst til Mexico eða Bandaríkjanna og þetta hálendi hér í kring hefur ekki þótt byggilegt, þangað til við námum land hérna. — Höfða aldrei nein af skyldmenn- um gestanna mál á hendur yður? — Mál gegn mér, sagði Boersteiner

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.