Fálkinn - 14.11.1962, Blaðsíða 15
Þegar hér er komið erum við trufl-
aðir af ungum manni sem á erindi við
Hjálmtý. Hann er klæddur poplin-
frakka og hefur hendurnar á kafi í vös-
unum.
— Verzlar þú með hljóðfæri? spyr
hann.
— Gítar kom hér áðan, hann er þarna
yfir á borðinu.
— Ég meina blásturshljóðfæri.
— Ég á ágætan trompett sem á að
kosta þúsund.
— Ég er með annan nær því nýjan,
sem ég vil seljá, segir ungi maðurinn
og keyrir hendurnar lengra niður í
vasana.
— Ég kaupi hann ekki af þér, en þú
getur látið hann liggja hérna frammi
og sett á hann eitthvert verð. Hvað ertu
að hugsa um að selja hann á?
— Ég keypti hann á tvö og fimm.
Mér datt í hug fimmtán hundruð.
— Það lízt mér ekki á, en þú getur
reynt.
Ungi maðurinn horfir hugsandi í
kringum sig og er að velta fyrir sér
ástandinu, sem honum finnst kannski
ekki sem bezt.
— Ég ætla að athuga málið, segir hann
og gengur til dyranna og er svo hepp-
inn að utan að kemur maður, svo hann
getur skotið sér út án þess að taka
hendurnar úr vösunum.
Sá sem inn kemur er í leit að plötu-
spilara. Hjálmtýr sýnir honuum tvo
sem að sjá eru ekki svo slæmir gripir,
en sá aðkomni gefur lítið út á þetta,
það hnusar eitthvað í honum um leið
og hann lítur í krigum sig. Það er þögn
utan umferðargnýsins sem berst að ut-
an, þungur niður með einstaka flauti.
Sá aðkomni hefur fengið áhuga á bók-
unum og fer að handleika þær.
— Þú ert líka með bækur?
— Já, þær fljóta svona með, en þetta
er nú ekkert að ráði.
Sá aðkomni er hættur að skoða bæk-
urnar og gengur út án þess að kveðja
eða þakka fyrir sig.
— Er eitthvað upp úr þessu að hafa,
spyrjum við Hjálmtý.
— Það er nú nokkuð misjafnt, en
getur verið ágætt á köflum. Maður má
ekki leggja mikið á þetta, selja allt
við hálfvirði. Ná í góðan grip, leggja
smávegis á hann en hafa hann samt í
hálfvirði. Það er lóðið. Ekkert okur.
— Hverskonar fólk er það sem
hingað kemur aðallega?
— Það er allavega fólk. Pelsklæddar
kerlingar og krakkar og allt þar á
milli. Það koma ólíklegustu menn hing-
að inn að spyrja um ólíklegustu hluti.
Þess vegna er um að gera að hafa allt
á boðstólum. Þá er hægt að hafa eitt-
hvað upp úr þessu. Annars nær maður
bezta dótinu útúr dánarbúum eða þeg-
ar fólk skilur. Þá er oft hægt að gera
góðan bissnes. Ég keypti dálítið sem
hann Jóngeir átti. Það er mest þarna í
horninu og svo fyrir innan. Ég á eftir
að koma því upp.
— Þú ert með eitthvað af fatnaði?
Framh. á bls. 34
FÁLKINN 15