Fálkinn


Fálkinn - 14.11.1962, Blaðsíða 38

Fálkinn - 14.11.1962, Blaðsíða 38
Morftið í Síðumnla Framhald af bls. 35. fyrir brjóstið, sumir segja ofanhjá við- beininu. Jón Grímsson brá við og brauzt um, vildi hrinda fram borðum, en þeir héldu honum fast, stakk Jón murti hann þá í annað sinn, og var mælt, að Jón Grímsson hafi sagt: Sé svona, það dugir, — það er nóg.... Jón murti strauk og lýsti víginu og sigldi svo með þýzkum í Hamborg, því hann var dæmdur útlægur, en Eggert skyldi taka til varðveizlu fé Jóns murta, því hann var bæði konungsumboðsmaður og erfingi. Þetta dæmt af Þórði Guð- mundssyni lögmanni og 12 dómsmönn- um á Hestaþingseyrum Anno 1569 ‘ (réttara 1570). Hinn myrti öldúngur Jón Grímsson sem með erfðatilkalli sínu og aldurtila varð með tímanum brúðgumi í Síðu- múla, var faðir Gríms bónda í Síðu- múla (d. um 1578, hefur búið í Síðu- múla þegar faðir hans var myrtur þar), föður Jóns í Kalmanstúngu, föður séra Gríms að Húsafelli, föður séra Helga, er leitaði uppi Þórisdal, sem frægt var. — Allt sem að framan er skráð um ætt Jóns í Norðtungu er samkvæmt athugunum Hannesar Þorsteinssonar, — en áður en þær voru gerðar var margt ruglað um það efni. 6 Eftir morðið í Síðumúla gekk flest örðugar fyrir Eggert Hannessyni en fyrr var; óvinir hans eignuðu honum hlutdeild í morðinu og efldu mjög árás- ir í hans garð. En það fylgir sögunni að Eggert hafi sent 1000 dali (sumir segja 3000 eða 5000 dali) til Hamborgar og hafi Jón murti tekið það fé að sér, er þángað kom. Það,að Jóni var komið til Hamborgar er skiljanlegt, þar eð Eggert var þar kunnugur og hafði verið þar að námi ungur. Árið 1571 fór Eggert utan samkvæmt boði konúngs, en hélt sýsluvöldum vestra sem fyrr. Um það leyti tók hann að hagræða auði sínum í Hamborg og munu eignir hans þar um síðir hafa numið tvöföldu verði fasteigna hans á íslandi. Svo virðist sem óvild konungs til Eggerts hafi fjarað út. Lokaþátturinn í ævi Eggerts Hannes- sonar var sá að hann fór alfari utan 1580; hafði hann þá gefið Ragnheiði dóttur sinni eignir sínar hér, 17 hundr- uð hundruða, að talið er. Hún giftist þeim fræga manni Magnúsi prúða og futtist hann að Bæ. — Eggert settist að í Hamborg. Síðasta kona hans hér, Steinunn Jónsdóttir, varð eftir vestra, þá skilin samvistum við hann. Sagt hef- ur verið að Eggert kvæntist í Hamborg „gamalli konu sem hét Arngert“. Segir svo frá láti hans: ,.Eggert varð bráðkvaddur; hafði honum verið kippt úr sænginni frá konu sinni, og lá þar dauður á gólfinu, og vissi enginn hver gert hafði. Aðrir segja eftir Guðrúnu í Snóksdal (þ. e. stjúp- 38 FALKIMN dóttir Eggerts) að Eggert hafi dáið af drykkjuskap 1583. Hann hafði andazt í efstu viku fyrir páska, um sjötugs- aldur. Hans lík og Jóns murta Eggerts- sonar voru greftruð í Katrínarkirkju í Hamborg“. Jón murti kvæntist einnig í Hamborg og átti tvo sonu, Árna og Eggert, sá Árni kvæntist í Hamborg og jók kyn sitt þar. Af ævilokum Jóns murta segja sumir að hann hafi skotið sig í hel, en önnur sögn telur að hann hafi dottið niður dauður þar sem hann var að telja fiska. Er sízt með ólíkindum, að það sem síðast segir af slíkum feðgum er teingt eignakönnun. 7 Slíkar voru þá helztu staðreyndir um morðið i Síðumúla: umsvif ofbeldis- manna og stórbokka, sem áttu eftir að verða ástar- og afbrýðisævintýri bónda og bóndasonar á Sleggjulæk og Fróða- stöðum. Má vera að sumir kunni að sakna einhvers í frumgerð sögunnar. En það má einu gilda. Hún hefur aldrei fögur verið; hið eina sem gerir hana aðlaðandi er hugmyndin um hverinn, sem kveinkar sér — ef hann nær snert- íngu við saklaust blóð sem á hefur verið níðzt. (Heimildir: Héraðssaga Borgar- fjarðar II; Þjóðsögur Jóns Árna- sonar I—II; Alþíngisbækur íslands I; Sagnaþættir Þjóðólfs; Saga ís- lendinga IV; Annálar 1400—1800; Dagbækur Jónasar Hallgrímssonar (Rit III); Sbr. og Skírni 1940). Kafbataveiðar Framhald af bls. 28. ið til þess að líta um stund á radartæk- ið áður en ég leysti af í toppturninum. Ég setti á mig flughettuna, þar var mú- sik frá Bretlandi. Ég hagræddi mér þarna inni og reyndi að láta fara vel um mig, en af því 'að ég er frekar leggjalangur rak ég fæturna^ alltaf í er ég snéri turninum í hring. Ég lagfærði skotfærabeltin og tók öryggin af. Út- varpið hætti í miðju harmónikulagi. Ég bölvaði loftskeytamanninum, en í símanum gellur við rödd skyttunnar í framturninum: „Sjónpípa í 350 gráð- um!“ Svolítíl þögn. Ég sný skotturnin- um og sé hana líka koma á móti okk- ur. Um leið kallar flugmaðurinn: „Allir á sinn stað!“ Aðvörunarmerkið baular. Hreyflarnir ganga af fullri orku. Við lækkum flugið í kröppum boga frá vinstri. Nú er vélin á réttum kili og stefnir á bátinn skáhalt aftan frá. Hliðar flugvélarinnar opnast ög tvær sprengjur koma í Ijós hangandi í spori undir vængjunum. Mér dettur í hug að í raun og veru sé þetta lúaleg veiðiað- ferð, en þeir eiga sjálfsagt ekki betra skilið og svona á það að vera. Nú eru nokkur augnablik eftir, ■— þær falla; við erum rétt komnir yfir og beygjum til hægri til að geta séð árangurinn. Og sjá. Það gjósa upp háir vatnsstrókar, svo kemur stór loftgusa eins og heljar- mikill loftbelgur hafi sprungið undir yfirborðinu og eftir andartak kemur afturendi bátsins upp á yfirborðið. Hann snýst við, hliðin kemur upp og svo sekkur hann í djúpið. Upp úr hring- iðunni koma nokkrar verur og synda frá staðnum. Dómnum er fullnægt og það er snúið við. Kannske verður það okkar hlutskipti að synda næst.“ Mjög sjaldan frétti Njörður af konu sinni og syni um þetta leyti því erfitt var að koma bréfum á milli vegna strangrar póstskoðunar þýzka hersins í Noregi. Þó vissi hann að þau voru í Þrándheimi hjá tengdaforeldrunum. Og styrjöldin hélt áfram í allri sinni grimmd allt árið 1944 og fram á vor 1945. Síðari hluta aprílmánaðar þótti sýnt að sigur bandamanna væri ekki langt undan. Með birtunni óx bjartsýni flugliðanna í Sullom-voe og það var talað um að kannske væri nú komið að innrásinni: þegar allir tækju sér byssu í hönd og héldu til Noregs. En stríðslok og heimkoma varð ekki eins og þeir höfðu hugsað sér og látið sig dreyma um öll stríðsárin. Fyrstu dag- ana í maí 1945 hrundi ríki Hitlers til grunna á nokkrum dögum eins og spila- borg. Herir bandamanna höfðu megin- hluta Þýzkalands á valdi sínu, og Hol- land, Danmörk, Belgía, Tékkóslóvakía, Noregur, hvert landið af öðru varð frjálst og hinn 7. maí tilkynnti Dönitz aðmíráll, sem tekið hefði við af Hitler nokkrum dögum áður, að Þýzkaland gæfist upp. Það skapast viss sálfræðileg vandamál, þegar markmið sem búið er að þrá og undirbúa í mörg ár er ekki lengur til. Flugliðarnir sem ætluðu að koma heim frelsandi landið sitt og fólkið sitt, þeim fannst að þetta væri hálfgert plat allt saman. Margir ætluðu að sækja um að fá að fara til Murmansk og verða með í innrás Rússa þaðan inn í Noreg, þegar hætt var við þá árás. Flugsveitinni var gefin skipun um að hætta vopnavið- skiptum og jafnframt sagt að fljúga ætti til Noregs á þjóðhátíðardeginum 17. maí. Þetta breyttist þó, því aðeins þrjár flugvélar fóru heim þann dag, en hin- ar nokkru síðar. Þrjúhudruð og þrítug- ustu sveitinni var fenginn samastaður á Sóla flugvellinum við Stavanger og þangað kom Njörður hinn 10. júní Enda þótt friður væri kominn á og þýzki herinn hefði gefizt upp, var þó ærið að starfa. Njörður fékk til umráða rúmlega fimmtíu manna lið, sem gæta skyldi Sóla flugvallar og umhverfis, en krökkt var af þýzkum hermönnum sem fóru huldu höfði í nágrenninu. Þetta var erilsamur tími, og lögreglan hafði í mörgu að snúast, eltast við og hand- taka strokufanga. þýzka liðhlaupa, þjófa og menn sem gerðu skotárásir á friðsama borgara að nóttu til. Njörð- ur dæmdi í öllum minniháttar málum og voru dómarnir síðan staðfestir af yfirmönnum hans. Hryllilegar voru frásagnir þeirra sem

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.