Fálkinn


Fálkinn - 14.11.1962, Blaðsíða 12

Fálkinn - 14.11.1962, Blaðsíða 12
SIÐUMVLA p >-< o- CL ffi 0% p orq 3 3 ‘ Oí p . 2. p n % _ s-s s a 9 c ^ S' ■sr -« g rD S R' S, 3 *H S S 3' 3T ^ — 2. 3 cr 3 >a 3 3 5- n- » 0» 3 0» S 1 Fáir munu þeir á voru landi sem ekki kannast við hverinn Skriflu, sem frá fornu fari hefur séð laug Snorra Sturlusonar fyrir heitu vatni og nú á síðustu áratugum yljað upp hvert hús í Reykholti. Hverinn er samt merkileg- ur fyrir ýmislegt fleira, hann er og tölu- vert sögufrægur; og fyrir hundrað ár- um var hann í vitund margra Borg- firðinga alls merkastur fyrir sérkenni- legt hátterni sitt í dulinni fortíð. Hefur Kristleifur Þorsteinsson gert því ágæt skil í þætti um jarðhita í Borgarfirði, sem prentaður er í II. bindi Héraðssög- unnar. Hann segir svo frá, að í bernsku hafi hann heyrt þá sögu að Skrifla hafi fyrst verið í Geitlandi, hinni fornu byggð sem nú er fyrir löngu úr sögunni sem slík; höfuðbólið í Geitlandi hét Reykholt, og þar var Skrifla. Eitt sinn bar svo til að blóðföt manns nokkurs er saklaus var myrtur, voru þvegin í hvernum; en sú var trú manna að hverir þyldu ekki blóð saklausra og flyttu sig úr stað við slíkar kringumstæður. Enda stakk Skrifla sér í jörð niður og leitaði niður í sveitir; hvíldi hún sig á þremur stöðum, og eru á þeim öllum volgar laugar síðan til marks um þarkomu hennar: í Teitsgili við Húsafell, Laugar- brekkum skammt frá Húsafelli — og austan við bæinn í Stóraási. Þaðan hélt Skrifla til Reykholts, þar sem enn er hún. Til sannindamerkis um sögn þessa sýndu gamlir menn staðinn í Geitland- inu við Reykholt hið forna: hleðslu um vatnslind, reyndar kalda, en með Ijós- leitu grjóti umhverfis, líkt og sjá mátti á steinum nærri hverum. — í lok spjalls síns um Skriflu getur Kristleifur þess að það fylgdi sögunni að næst þegar Skrifla tæki sig upp, flytti hún heim í bæ íReykholti og kæmi upp undir hjónarúminu. „Nú hefur þessi spá rætzt. ÍSLENZK FRÁSÖGN EFTIR ÞORSTEIN FRÁ HAMRI FÁLKINN Skrifla er komin heim, en ekki með þeim gusugangi sem börn hugsuðu sér fyrir 70 árum, heldur hlý og hóglát og hvers manns eftirlæti. Hún vermir nú upp hverja vistarveru í öðrum stærsta héraðsskóla landsins, svo og kirkjustað- arins“, segir Kristleifur. í Þjóðsögum Jóns Árnasonar er getið þessa ferðalags Skriflu, en orsakarinnar ekki. 2 Jón Árnason hefur samt í safni sínu sögu um annan hver, sem vék úr stað fyrir blóði saklauss manns. Hún er skráð af Magnúsi Grímssyni „eftir vana- legri sögn manna í Borgarfirði"; hún er úr sama byggðarlagi og Skrifla, og eiga báðar sögurnar vafalaust rætur sínar að rekja til einnar. Kristleifur drepur stuttlega á þessa þjóðsögu, en til að nálgast kjarna þessa máls skal nú þjóð- sagan birt hér orðrétt samkvæmt hand- riti Magnúsar Grímssonar: „í fyrndinni bjó einu sinni ríkur bóndi í Síðumúla (í Hvítársíðu). Hann átti dóttur eina væna. Til hennar biðl- uðu ýmsir og þar á meðal bóndinn á Sleggjulæk og bóndasonurinn á Fróða- stöðum. Fór svo að bóndasonur varð hlutskarpari og fékk hann konunnar. Var þá ákveðinn brúðkaupsdagur og fjölmenni boðið til veizlunnar. Sleggju- lækjarbóndanum sveið þetta mjög og fékk hann mann til að vega brúðgum- ann. Sá er nefndur Jón er til þess varð. Jón var maður hraustur og djarfur vel. Hann fór til boðsins og lét ekki á bera ætlan sinni. Leið svo að kvöldi og stóðu menn upp frá borðum. Skugg- sýnt var við stofudyrnar og stóð Jón þar og beið þess að brúðguminn kæmi út. Leið það og ekki á löngu áður hann kæmi. Lagði þá Jón sveðju mikilli í gegnum hann og féll hann og flaut í blóði sínu. Jón tók þegar á rás og var honum veitt eftirför. Hann hljóp niður völlinn og ofan að Hvítá. Kom hann þar að er hún fellur milli hamra tveggja. Þar stökk hann yfir, en engi þorði að hlaupa á eftir. Milli hamra þessara eru sextán álnir danskar og verður þar straumur mikill í þrengslinu og kalla menn það Kláffoss. Hamrar þessir ganga fram hver á móti öðrum eins og veggir og eru þeir svo sem rúmur faðmur á þykkt. Nyrðri hamarinn er töluvert hærri en hinn syðri og hefur það létt hlaupið. Nú er að segja frá boðsmönnum að þeir treystust ei til að leita Jóns því myrkt var orðið. Komst hann svo undan og segir sagan að hann hafi komizt á skip og farið utan. Eftir víg þetta var hann Jón murti kallaður. Það er af brúðgumanum að segja að hann dó og var grafinn að Síðumúla- kirkju. Hafa menn enn til sýnis stein sem á að hafa verið lagður yfir leiði hans. Steinn þessi liggur fram undan kirkjudyrunum í Síðumúla. Hann er rúm hálf þriðja alin dönsk á lengd, ávalur fyrir báða enda og íflatur að ofan. Einhver högg eru á þeirri hlið- inni sem upp snýr og á það að vera mannsmynd ofan að brjóstum og sárið með blóðlækjunum. Ekkert letur er eða sýnist að hafa verið á steini þessum. Það segja menn og að þá er þetta varð hafi verið hver vestur frá Síðumúla á mel þeim er nú heitir Stuttimelur. Þar eru nú hvítleitar hellur og ei ósvip- að hveragrjóti sem hverinn átti að vera. Segja menn að klæði hins vegna hafi verið þvegin í hver þenna. En sú er trú alþýðu, að hverir hverfi þá og flytji sig burt er saklauss manns blóð kemur í þá. Svo varð og í þetta sinn. Hverinn hvarf og kom snöggvast upp þar sem nú er laugin í Síðumúla. Þaðan hvarf hann aftur og kom upp fyrir sunnan Hvítá hjá Hurðarbaki og er það hinn meiri hverinn.“ 3 Þannig hljóðar sagan í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. — Um „legstein brúð- gumans“ er vert að geta þess að Jónas Hallgrímsson skáld athugaði hann í Síðumúla, er hann var á rannsóknar- ferð um þær slóðir sumarið 1841. Kveð- ur Jónas svo að orði í dagbók sinni 21. júlí: 12

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.