Fálkinn


Fálkinn - 14.11.1962, Side 19

Fálkinn - 14.11.1962, Side 19
Anna Norðfjörð ásamt kennara sínum, Guðgeiri Ágústssyni. Að neðan: Einn af fyrstu Fordbílunum, sem hingað komu, IBllllllll wWmmm- 'ý: :■ ■■■■;. •■■■■■■■■-.■ ■ V: : ■ : ■ Fyrsti bíllinn kom til landsins 1904 Dethlev Thomsen kaupmaður hafði fengið styrk frá Alþingi til að kaupa bílinn og ætlunin var að reyna hvort bílar hentuðu hér við fólks- og vöru- flutninga. Eins og venjulega var sú virðulega stofnun, Alþingi, ekki á eitt sátt varð- andi þennan styrk til bílakaupanna. Skipuðu menn sér í tvo hópa með og á móti. Þeir sem voru málinu hlynntir sögðu, að farartæki sem þessir mótor- vagnar væru það sem koma skyldi. Hinir sem voru gegn styrkveitingunni töldu mikla meinbaugi á þessu. Vegirn- ir hér væru alltof mjóir og þyldu ekki þunga mótorvagnanna, fyrir utan þá stórkostlegu slysahættu sem af þeim stafaði, Einn sagði, að ef þessi farar- tæki yrðu leyfð, mundi verða að fjölga prestum til að jarða alla þá menn sem falla mundu fyrir þessum vögnum og læknum líka „þó ekki væri til annars en gefa út dánarvottorð“. En allt um það: þessi styrkveiting var samþykkt og fyrsta bifreiðin kom til landsins. Þessi tilraun með fyrsta bílinn heppn- aðist ekki vel. Bíllinn reyndist hinn mesti garmur, var keyptur notaður og gekk í mestu brösum með hann. En menn gáfust ekki upp. Þeir höfðu trú á þessu farartæki og brátt komu full- komnari bílar sem betur reyndust. Skal þar nefna fyrst Ford og Overland. FALKINN 19

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.