Fálkinn


Fálkinn - 14.11.1962, Side 21

Fálkinn - 14.11.1962, Side 21
Þótt bílum hafi fleygt fram hvað tækni og útlit snertir, er margt líkt og áður. Enn er talað um umferðarvanda- mál sem menn reyna að leysa með nýjum reglugerðum, betri skipulagn- ingu, og nýrri tækni. Ökupróf eru nú þyngri en áður og skipt í fleiri stig, en megin reglurnar eru þær sömu. þ. e. að prófið nái yfir þessi atriði: ,.Gerð og hirðing vélarinnar, Lög og reglur, er snerta ökumenn bifreiða. Verkleg próf- un á hemlum, stýri, kveikingu vélar- innar m. m., og að hleypa vélinni, stöðva hana, snúa við og fara aftur á bak.“ Okkur hér á Fálkanum datt í hug að gaman væri að fylgjast með einum nemanda í bílpróf, fara með honum að sækja nauðsynleg vottorð og síðan í fræðilegt og verklegt próf inn í Bif- reiðaeftirlit. Við hringdum í Guðgeir Ágústsson Anna liefur nú lokið prófi og er heimilt að aka hvert á land sem er. ökukennara og spurðum hvort hann væri ekki að fara með einhvern í próf. — Jú, sagði Guðgeir, það fer ein frú á eftir. Ég skal athuga, hvort henni sé ekki sama þótt þið verðið með. Og Önnu Norðfjörð var sama þótt við færum með, og þá var að sækja til- skilin vottorð. Fæðingar og skírnarvott- orð átti Anna frá því hún gifti sig svo við þurftum ekki upp í Landsbókasafn. Leiðin lá því í skrifstofu Saksókhara og á þriðju hæð hittum við Sigurð Ól- afsson sem fletti upp í sakaskránni, og þar sem Anna hafði ekki gerzt brotleg við nein lög, gaf hann út vottorðið. Næst lá leiðin í Lækjargötu að tala við Úlfar Þórðarson augnlækni. Það var að venju mikið að gera hjá honum. en að lokum eftir rösklega klukku- tíma bið var augnvottorðið fengið. Kennsluvottorð útbjó Guðgeir og síðan var haldið inn í Bifreiðaeftirlitið við Borgartún. Prófum er nú skipt í tvo hluta, fræðilegt og verklegt. Magnús Wíum var prófdómari í fræðilega hlutanum. — Þið eruð báðir með bílpróf? spurði hann okkur Ijósmyndarann þegar við gengum í prófherbergið. Okkur þætti ekki gott ef þið birtust eftir nokkra daga til að taka prófið. Við sögðumst báðir hafa próf. — Þá er allt í lagi. sagði hann. Gerið þið svo vel og gangið inn. Prófinu er hagað þannig, að nem- andinn dregur blað og á blaðinu eru 24 spurningar sem hann skal svara. Á hverju þessara blaða eru spurningar sem ná yfir allt það efni bóklegt sem nemandinn hefur orðið að læra. — Já, þú hefur dregið blað númer 8, segir Magnús, nú skulum við sjá. Og nú er yfirheyrslan hafin. Það er spurt um umferðarmerki, umferðar- reglur, hraða, hvar megi leggja bifreið- um, um útbúnað bifreiðar og þess hátt- ar. Anna svarar spurningum greiðlega og þetta gengur fljótt fyrir sig. — Það er nú ekki vani að segja frá einkunn, segir Magnús þegar þetta er Framh. á bls. 30. Magnús Wíum prófar Önnu í fræðilega prófinu svokall- aða. Anna stóð sig með miklum ágætum í því prófi, hlaut 230 stig af 240 mögulegum. Anna leggur fram öll gögn og uppáskriftir fyrir Höllu Ólafsdóttur, starfsstúlku hjá lögreglustjóra. Þar með getur Anna sótt ökuskírteini sitt daginn eftir. 1 §§§

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.