Fálkinn - 14.11.1962, Síða 26
kvenþjóðin
rvtstfori
KRISTJANA
STEIMGRÍMSDÓTTIR
Húfa og trefill
Efni: Nál. 75 g. 4-þætt ullargarn. Prj.
nr. 2Vz og sokkaprj. nr. 2y2 og 3, 20 1.
slétt prj. nr. 2% = 5 cm.
Byrjað að framan verðu. Fitjið upp
144 1. á prj. nr. 2%. Prjónið fram og
til baka brugðningu (1 sl.. 1 br.) 4%
cm. Geymið nú fyrstu og síðustu 15 1.
á öryggisnælum og prjónið svo slétt-
prjón fram og til baka á 114 1., sem
eftir eru, þar til komnir eru nál. HV2
cm. Nú eru felldar af 9 1. í byrjun
næstu 4 umf. og síðan 10 1. í byrjun
þarnæstu 4 umf. Svo er hnakkastykkið
prjónað á 38 1. sem eftir eru, tekin úr
1 1. hvoru megin í 8. hverri umf. 6
sinnum. Geymið 26 1. sem eftir eru,
þegar hnakkastykkið er nál. 14 V2 cm.
(á að vera jafnlangt og niðurfellingin
á kollstykkinu). Saumið hnakkastykkið
við kollinn.
Nú er kraginn prjónaður brugðinn
(1 sl., 1 br.). Takið upp lykkjur á
sokkaprj. nr. 2Vz. Setjið 15 1. sem
geymdar voru á prjón, síðan eru teknar
upp frá réttunni 2 1. á sléttprjónaða
stykkinu annars vegar, svo 26 1. sem
geymdar voru, 29 1. hinsvegar á slétt-
prjónaða stykkinu, síðan 15 1. sem
geymdar voru (114 1.).
Prjónið í hring með prjónum nr. 2Vz
í 5 cm., Síðan er sett á prj. nr. 3 og
prjónaðir 5 cm. til viðbótar. Fellt laust
af sl. og br.
Frágangur: Pressið sléttprjónið á
röngunni. Varpið brugðninguna að
framanverðu saman með ósýnilegum
sporum.
(jói kanaHaterta
2 eggjarauður.
60 g. sykur.
180 g. smjörlíki.
250 g. hveiti.
Eggjarauður og sykur hrært létt og
ijóst. Hveiti sáldrað á borð, smjörlíkið
mulið í með hníf. Að síðustu er vætt í
með eggjahrærunni og deigið hnoðað
léttilega.
Geymt á köldum stað.
Þekið tertumótið að innan með deig-
inu, smyrjið vel til brúnirnar og gerið
þær eins og tungulaga með fingur-
gómunum. Bakið við meðalhita
175—200° þar til mördeigsskelin er
ijósbrún.
Kælt dálítið áður en tekið er úr mót-
inu. Skelin fullkæld. Setjið í hana
þykkt lag af vanillukremi (ágætt að
nota vanillubúðing). Þekið vanillukrem-
ið með bananasneiðum og síðan kemur
lag af vanillukremi á ný. Kakan
geymd á köldum stað um stund.
Skreytt með þeyttum rjóma.
26
PÁLKINN