Fálkinn - 06.01.1964, Blaðsíða 20
EhtsíáMíöáír söyutefjar nttjntíir
étf nturði SíettKtedtjs
sent iehnttr roru
Mynd 1: Hér sjóum við forsetabifreiðina koma akandi eftir göíunni. Forset-
inn situr í afíursætinu og veifar áhyggjulaus til viðstaddra. Konan hans situr
við hlið hans og í framsætinu, sömu megin og forsetinn, situr Connally, ríkis-
stjóri.
Þegar hinn mikilhæti forseti Bandarikjanna, John F. Kennedy, féll fyrir
kúlu launmorðingja á dögunum, var i fyrstu álitið, að engar myndir væru til
aí atburðinum. OIIi það mörg'um áhyggjum, ekki hvað sízt lögreglumönnum
þeim, sem vinna áttu að lausn málsins, einnig er líklegt, að ýmsir sagnfræð-
ingar hafi hugsað til eftirkomenda sinna í faginu og ekki mun fréttamönnum
heldur hafa líkað alls kostar vel, að fá engar myndir til birtingar.
En það átti eftir að koma í ljós, að það höfðu raunverulega náðst myndir
af þessum atburði. Einn maður, alger áhugamaðui í myndatöku og Htt kunnur
list fagsins, hafði af algerri tilviljun náð myndurn af atburðinum og það meira
að segja kvikmynd.
Maður er nefndur Abraham Zapruder, eigandi fataverksmiðju í Dallas.
Þegar hann fór til vinnu sinnar, þennan örlagaríka föstudagsmorgun, ætlaði
hann sér ails ekki að fyJgjast með komu forsetans til borgarinnar. Hann
skildi því eftir heima hjá sér nýlega kvikmvndatökuvél. En einkaritari hans
hvatti hann eindregið til þess að taka kvikmynd af atburðinum, og svo fór,
að hann lét til leiðast og sótti vélina heim.
Þetta var 8 mm vél með „normal'Minsu. í vélinni var litfilma. Hann kom
sér íyrir á Jitlum svölum. átta fetum fyrir ofan gangstéttina, þar sem hann sá
sæmilega vfir götuna, sem íorsetabifreiðin átti að aka eftir, og setti vélina af
20 rÁLKINN
stað. Rétt áður en forsetabifreiðin kom
alveg að honum heyrði hann þrjú skot
og sá. að forsetinn og Connally ríkisstjóri
höfðu orðið fyrir skotum. Hann hefur
sjálfur sagt svo frá, að hann hafi staðið
sem lamaður fyrst í stað, en samt haldið
áfram að kvikmynda. Síðan hélt hann til
skrifstofu sinnar sem i leiðslu, en fyrst
í stað var hann alls ekki viss um, hvers-
Jags myndum hann hafði náð, það var
fyrst um kvöldið, er hann hafði heyrt
að engar myndir væru til af þessum
atburði, að hann gerði sér ljóst, að'
hann hefði náð einhverjum sögulegustu
myndum, sem teknar höfðu verið. Hann
hafði þegar samband við FBI, bandarísku
ríkislögregluna, er strax athugaði filmuna,
en leyfði síðan Zapruder að halda henni.
Bandariska stórblaðið LIFE keypti strax
birtingarréttinn á myndunum, fyrir meira
en eina milljón íslenzkra króna, Zapurder
gaf síðan allt þetta fé til ekkju lög-
reglumannsins, sem myrtur var í leitinni
að morðingjanum.
FÁLKINN hefur nú samið við umboðs-
menn LIFE um einkarétt á birtingu þess-
ara mynda hérlendis, en þær hafa ekki
áður birzt í islenzkum blöðum, og er eftir-
prenfun á bessum myndum óheimil.
Hér birtast 20 þessara mynda: