Fálkinn


Fálkinn - 06.01.1964, Blaðsíða 40

Fálkinn - 06.01.1964, Blaðsíða 40
Hoidið er veikt Frainh. af bls. 37. En þaS var einfaldlega það, að Marta hafði túlkað þögn mína eftir að bréf eiginmanns- ins kom sem fjandsamlega þögn. Hugmyndin um þegjandi samkomulag hafði ekki komizt irxn í höfuð hennar. Kvöl margra klukkustunda náði há- marki, þegar hún sá, að ég var lifandi, þar sem henni fannst að dauðinn einn hefði átt að hindra mig í að koma til henn- ar daginn áður. Undrun mín var of greinileg til að geta ver- ið uppgerð. Ég útskýrði, að ég bæri virðingu fyrir skyldum hennar við hinn sjúka eigin- mann. Hún trúði mér varla. Ég var önugur. Ég sagði næstum: „í eitt skipti segi ég sannleik- ann.“ .... Við grétum. En þessar umræður höfðu verið þreytandi og óendanlegar eins og tafl ef annað hvort hefði ekki komið lagi á hlutina. Þegar öllu var á botninn hvolft kitlaði afstaða Mörtu til Jac- ques hégómagirnd mína. Ég kýssti hana og gældi við hana. „Þögnin“ sagði ég, „fer okkur ekki vel.“ Svo að við lof- uðum að leyna innstu hugsun,- um hvort fyrir öðru, og ég kenndi svolítið í brjósti um hana, af því að hún áleit það mögulegt. í J. ... . hafði Jacques horft gegnum glugga á allan brautar- pallinn í leit að Mörtu. Svo þegar lestin fór fram hjá hús- inu, hafði hann séð opna glugga- hlerana. í bréfum sínum bað hann hana að róa hug sinn. Nýtt Toni með tilbúnum bindivökva liðar hárið á fegurstan hátt x Auðveldasta og fljótvirkasta heima permanentið, sem völ er á, er hið dásamlega Toni með nýja tilbúna bindivökvanum. Allur bindivökvinn, sem þér þarfnist er tilbúinn til notkunar í sérstakri plastflösku. Vatn ónauðsynlegt. — Ekkert duft, sem þarf að hræra í vatni. Með því að þrýsta bindivökvanum úr plastflös- kunni er öruggt að hver einstakur lokkur fær jafna óaðíinnanlega liðun, án þess að liðirnir verði hrokknir og broddar myndist. Toni bindivökvinn lífgar einnig hár yðar, gerir það mjúkt, gljáandi og auðvelt í meðfórum. Nú má leggja hárið á hvern þann hátt, sem þér óskið, hvortheldur stóra eða smáa liði. Toni fæstí þremur styrkleikumSuper (Sterkt) efliðaáhárið mikið,Regular (Meðal sterkt) ef liða skal í meðallagi og Gentle (Veikt) ef liða skal lítið, —og þannig má velja þá tegund sem hentar yður bezt. Toni, stór pakkning Tip Toni, minni pakluiing, til að til að liða allt hárið. liða hluta hársins eða stutt hár. VATN ÓNAUaSYNLECT—ENGIN ÁGIZKUN-ENGIR ERFfðLEIKAR Mjög auðvelt. Klippið Með nýja Toni bindivök- spíssinn af flöskunni og vanum leggið pér hvcrn bindivökvinn er tilbúinn sérstakan lokk jafnt og til notkunar. reglulega og tryggið um leið betri og varanlegri hárliðun. 40 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.