Fálkinn - 24.02.1964, Blaðsíða 16
(Myndir tók Jakob Albertsson).
Um þessar mundir verður Skíðafélag Reykjavíkur 50 ára. 1 hálfa
öld hefur það beitt sér fyrir iðkun skíðaíþróttanna í höfuðborg-
inni með góðum árangri, og það reisti hinn myndarlega og lands-
kunna skíðaskála í Hveradölum, fyrsta vetrarhótel Islendmga
og hið eina um langt skeið. Saga félagsms verður vafalaust rakin
ýtarlega í dagblöðunum, en við birtum hér grein um uppruna og
þróun skíðaíþróttarinnar.
Þegar hinir fyrstu landnemar og veiðimenn í örófi alda
héldu fótgangandi á vetrum norður á bóginn i ýmsum hinna
norðlægari löndum, þá var það oft svo, að hinn lausi snjór
og þungfæra mjöll gerði þeim erfitt um vik og varð til þess
að seinka ferðum þeirra. En þá var það að þessum frumstæðu
ferðamönnum kom til hugar að útbúa einhvers konar
skó sem gætu „flotið“ eða runnið ofan á snjónum og gert
þeim gönguna léttari. Þá varð það að til urðu hinar svo-
kölluðu snjó-þrúgur, sem gerðar voru úr viðartegund og náðu
þær mikilli útbreiðslu, jafnvel enn meiri en skíðin, sem koma
seinna við sögu. Lögun þessa fótabúnaðar eða þrúgna var
hálfkúlumynduð skál og var hún að neðan með kúptu sniði
með íhvolfum úrskurði að ofan. — Víða í Evrópu hafa þrúg-
ur þessar fundist eins og hverjir aðrir forngripir, t. d. í
Pyreneafjöllunum, Balkanfjöllum, i Ameríku fyrir norðan
landamæri Nýja Englands, og allaleið til norðurhluta Kali-
forniu. í mörgum þorpum í Nýju Mexico hafa fornleifafræð-
ingar fundið slíka snjóskó, sem eru um 1000 ára gamlir,
svo viðurinn, sem þeir voru gerðir úr hlýtur að hafa verið
mjög harður og ef til vill nú með öllu óþektur. Á Norður-
löndum er nafnið þrúga þekkt frá ómunatíð. Margir vilja
halda því fram, að slíkar þrúgur muni hafa verið upphaf
skiðanna, þó í annarri mynd en við þekkjum þau nú. Þetta
er mjög vafasöm ágiskun og mjög fjarri sanni, því að á þessum
svonefndu þrúgum gengur maður, en á skíðum rennir maður
sér. Það er heppilegra að kynna sér betur hið ytra útlit eða
lögun þessara farartækja áður en maður telur sig hafa fundið
þarna fyrirrennara skíðanna.
Skíði hafa einnig þekkst frá því í grárri forneskju á víð-
feðmu samhangandi svæði sem nær allt frá vesturströnd
Norður-Noregs yfir Rússland og Síberíu alla leið austur að
10
FÁLKINN