Fálkinn - 24.02.1964, Page 36
PANDA DG JÖFRAMADURINN MIKLI
„Hvað eruð þér að gera í mínu herbergi?“ endurtók
Bergur greifi. „É — ég er frá viðgerðarþjónustunni,“
tautaði Goggi „É — ég var sendur til þess að_ líta á
sjónvarpið yðar.“ „Jæja, drundi í greifanum. „Ég trúi
ekki þessum þvættingi. Ég hef ekki sent eftir við-
gerðarmanni.“ „Það hljóta þá að vera einhver mistök,"
stundi Goggi. „Hvað um það. ég hef komið því f lag
og ... „Mér sýnist það!“ öskraði Bergur greifi. Samt
er nú einhver óskapnaður á skerminum, og allur á
hvolfi. Ekki hafði greifinn fyrr sleppt orðinu en
„óskapnaðurinn“ kom hálfur út úr skerminum og
hvessti augun á greifann, öskureiður. „Hvernig dirfizt
þér að kalla mig óskapnað. Ég er Plútanus.“ Greifinn
hörfaði nokkur skref aítur á bak og starði skelfdur
á fyrirbærið. Svo áttaði hann sig og hljóp að veggnum.
„Skjóttu fyrst, spurðu svo,“ urgaði í honum um leið
og hann greip eina byssuna.
Eftir mikla áreynslu hafði Panda loks tekiztz að
komast út úr skápnum. Hann flýtti sér strax til íbúð-
ar Bergs greifa, þar sem hann vissi að Goggi og
Plútanus myndu vera. „Bara að ég sé ekki of seinn!“
stundi hann. „Goggi ætlar að stela auðæfum greifans
og ég er viss um að það verða einhver læti.“ Auðvitað
voru lætin þegar byrjuð. Á þessu augnabliki var
greifinn að skjóta í allar áttir, meðan skotmarkið,
Goggi, æddi um f skelfingu. Plútanus virtist aðeins
truflast vegna hávaðans, því kúlurnar hrukku af
honum jafnóðum. „Hvað er þessi Ytra-Heims búi að
gera?“ spurði hann Gogga, sem hafði leitað skjóls
bak við hann. „Og hvaða hávaða skrapatól er það,
sem hann heldur á?“ „Hann er taugaóstyrkur!“ hvísl*
aði Goggi. Sendu hann á kyrrlátan stað, þar sem
hann getur hvílt sig.“
Þegar Panda loks hljóp inn í íbúð Bergs greifa starði
Plútanus á rjúkandi byssu, sem lá á gólfinu, en Goggi
var að fást við innmúraðan peningaskáp. „Datt mér
ekki í hug,“ hrópaði Panda, öskureiður. „Þjófur ertu
að stela peningum greifans.“ „Notaðu ekki svona ljót
orð, litli kall “ sagði Goggi. Lokaðu dyrunum og
hegðaðu þér vel, eða þú skalt hafa verra af.“ „En
þú ert að stela,“ þráaðist Panda við, „og ...“ „Hver
er að stela “ spurði Goggi. „Ég er að pakka eigum
greifans saman, því hann þurfti að bregða sér dálítið
snögglega frá.“ „Hvert fór hann,“ spurði Panda undr-
andi. „Á mjög kyrrlátan stað,“ svaraði Goggi. „Mann-
garmurinn var svo óstyrkur, að Plútanus sendi hann
á kyrrlátan stað, samkvæmt ósk minni. Tilvalið fyr-
ir greifann. finnst þér ekki?“ Panda skildi nú loks,
hvað komið hafði fyrir „Auðvitað er það ekki ánægju-
legt fyrir greifann," æpti hann og stappaði niður
fótunum. „Þú hefur látið hann hverfa. Það er and-
styggilegt af þér.“
f'ÁLKINN