Fálkinn - 24.02.1964, Blaðsíða 39
Litla sagan
Framhald aí bls. 30.
gáfuð þú ert, virðulega raf-
magnsheilavog!
Hann las:
„Þér eru Russ Martion, búið
á 5 Cross Lane, 39 ára, 148
pund á þyngd, ef við sleppum
tréfætinum, og vegna uppá-
tækja yðar verðið þér að koma
fram með stimpilblek á nefinu
í kvöld, ef þér náið 18.30 lest-
inni til Kensington. 1806 lestin
er fyrir löngu farin!“
Willy Breinholst.
Kvikmyndir
Framhald af bls 29.
>• Var það myndin Cottage to Let.
Af seinni myndum hans má
nefna Who Goes There? Happy
Family, Apes of the Rock og
The Weapon.
Þessi mynd er ekki í hópi
„stórmynda“ en hún uppfyllir
þær kröfur sem gerðar eru til
gamanmynda: hún er skemmti-
leg og þess vegna vel þess virði
að sjá hana.
Skíðaíþróttin
1'i i ni blh. 37
margir snjöllustu skíðamenn
heims.
Þrátt fyrir þetta munu
Norðurlöndin og þá sérstak-
lega Noregur ætíð verða talin
brautryðjendur á sviði skíða-
íþróttarinnar á seinni tímum,
einnig hvað snertir skíðatækni,
sem verður fegurri og full-
komnari með hverju ári sem
líður.
Þess má geta, að fyrsta skíða-
Blaðið
DAGUR
er víðlesnasta blað,
sem gefið er út utan
Reykjavíkur.
BLAÐIÐ DAGUR,
Akureyri.
Áskriftasími 116 7.
DAGUR
mót sem haldið var í Noregi
fór fram á „Grorud“ árið 1862,
en síðan er ekki hægt að koma
tölu á öll þau skíðamót sem
haldin hafa verið þar og á
Norðurlöndum yfirleitt, í síðast-
liðin 100 ár, enda mundi slíkt
verða efni í stóra bók.
í vetrarstyrjöldinni milli
Finna og Rússa 1939—1940
voru stofnaðar harðsnúnar
skíðahersveitir innan finnska
hersins sem komu mikið við
sögu í þeim ójafna handarleik
og gátu þær sér slíkt frægðar-
orð, að aldrei mun gleymast en
sem mun geymast í hjörtum
finnsku þjóðarinnar um aldur
og ævi. Hersveitir þessar voru
útbúnar þannig, að fatnaður
þeirra ásamt skíðum, vopnum
og öllum útbúnaði var mjall-
hvítt og gerðu þær óvininum
marga skráveifu, þar sem ill-
mögulegt var að koma auga á
hina hvítklæddu hermenn.
Enda áttu þessar skíðahersveit-
ir sinn stóra og sögulega þátt í
hinni hetjulegu vörn finnska
hersins gegn risanum í austri,
þótt svo færi að lokum eins og
kunnugt er, að Finnar yrðu að
lúta í lægra haldi fyrir ofur-
eflinu.
Skíðaíþróttin hér á landi á
sér ekki langa sögu, þó getið
sé þess í fornum sögum að
skíðaferðir hafi verið iðkaðar,
og þá helzt í sveitum norðan-
lands. En saga hennar er þó
nógu löng til þess, að á nokkr-
um áratugum hafi orðið til ís-
lenzkir skíðagarpar, sem getið
hafa sér góðan orðstír bæði
heima og erlendis.
Einnig virðist áhugi almenn-
ings hér fara vaxandi fyrir
skíðaíþróttinni og enda þótt
hér sunnanlands hafi verið
erfitt að stunda hana undan-
farna vetur vegna snjóleysis,
þá má þó með sanni segja, að
hver stund og hver skafl er
notað ef veðrið er ákjósanlegt.
Og þegar vora tekur fara hópar
skíðamanna inn í óbyggðir, upp
á hæstu jökla til að halda
áfram að njóta þessarar hollu
íþróttar og leggja þá oft á sig
mikið erfiði og langar göngur
til að geta notað þessi undra-
verðu tæki, sem kallast skíði
og sem virðast hafa komið
mikið við sögu mannkynsins
frá því sögur hófust.
Þó er það eitt sem gleður
okkur mest í sambandi við
skíðaferðir, og það er hvað hin
íslenzka æska hefur sýnt
mikinn áhuga fyrir þessari
íþrótt íþróttanna, — eins og
Norðmenn kalla hana, — en
það ánægjulegasta er þó, að
hópur hinnar uppvaxandi kyn-
slóðar sem stundar skíðaferðir,
fer vaxandi með hverju árinu
sem líður, þrátt fyrir snjólétta
vetur og erfiðar aðstæður.
(Að mestu þýtt úr „Pá Ski“,
eftir Einar Bergslund).
L. J.
í umferðinni
Framh. af bls. 15,
Eitt er víst, að hetjan við
stýrið hugsar meira um drauma-
dísina, sem nú situr við hlið
hans en veginn framundan og
umferðina á undan og eftir.
Hvar og hvernig ökuferðin end-
ar, fer svo eftir ýmsu, en af frá-
sögum blaðanna er augljóst, að
furðu oft eyðileggjast bílarnir
gersamlega, án þess að stórslys
verði á mönnum. Þetta breytist
vitanlega með bættum vegum.
Þá verður, eins og áður var
sagt, hraðinn um það bii helm-
ingi meiri og dauðaslysum
fjölgar.
Ökukennsla ríkisins,
jafnvel skyldimám.
Á íslandi hafa yfirvöldin ekki
gert mikið að því, að hindra ó-
hæfa menn í að öðlast ökurétt-
indi og halda þeim, þótt fátt sé
í sómanum um akstur þeirra.
Þó munu engir hafa fengið
meiraprófsréttindi nýlega út á
Faðir vor, eins og talið var fært
fyrir nokkrum árum. Hinsveg-
ar er ekki langt síðan að mað-
ur með skaddaða útlimi, litla
greind og gallaða skapgerð
lauk meiraprófi, er þá óþarft að
ræða kröfurnar, sem gerðar eru
til hinna, sem aðeins ætla að
ljúka minnaprófi.
Sennilega myndi fátt auka
öryggi í umferð eins mikið og
vönduð ökukennsla, sem ríkið
annaðist og bæri alla ábyrgð á.
Kæmi jafnvel til greina, að gera
ökukennslu að skyldunámi í
skólum, sem kenna 17 ára ung-
lingum eða eldri. Kemur þar
plrki aðeins til, að oftast verða
menn því betri bílstjórar sem
þeir læra fyrr, á hitt ber einn-
ig að líta, að maður, sem kann
að aka bíl, hagar sér oftast mun
skynsamlegar í umferð al-
mennt, hvort sem hann nú hjól-
ar eða gengur.
í sambandi við ökukennslu
á vegum ríkisins ber ekki að-
ins að kenna einfaldar umferð-
arreglur og hvernig aka skal
bíl, einnig skyldi farið vandlega
yfir öll meginatriði umferðar-
sálfræðinnar en sú fræðsla, sem
unglingurinn hlyti þannig,
myndi koma honum að gagni
á fleiri sviðum. Nútímamanni
er miklu nauðsynlegra að fræð-
ast um sjálfan sig og afstöðu
sína til annarra í flóknu og
fjölbreyttu þjóðfélagi en eyða
tíma í að nema heiti fljóta í
Síberíu á Rússnesku eða hvað
það nú annars kann að vera ó-
raunhæfa námsefnið, sem fyr-
ir löngu ætti að vera búið að
leggja fyrir róða.
Með því að tengja ökukennsl-
una sem mest skólunum er mun
auðveldara að glöggva sig á því,
hvenær og hvort unglingurinn
á að fá ökuréttindi. Sumir geta
vafalaust, eins og nú, fengið
þau 17—18 ára, aðrir á aldrin-
um 20—25 og sumir aldrei.
Þeir fengju þá líka frí úr öku-
kennslutímum eins og sum börn
fá frí úr sundi nú.
Veiting ökuréttinda við 17
ára aldur skyldi og háð því, að
unglingurinn hafi ekki gert sig
sekan um að hafa brotið lands-
lög. Hafi hann ekki hreinan
skjöld hvað það snertir, ber að
fresta veitingu ökuréttinda og
mun ég síðar rökstyðja það
nánar.
Framhald á næstu síðu.
helgað fegurö fagurra
angna EINGÖNGU
til augnfegurðar — óviðjafn-
anlegt að gæðum — við ótrú-
lega lágu verði undravert
litaval í fegurstu demantsblæ-
brigðum sem gæða augun
skínandi töfraglóð. Fyrir það
er Maybelline nauðsyn sér-
hverri konu sem vill vera eins
heillandi og henni er ætlað.
Maybelline er SÉRFRÆÐI-
LEG augnfegrun!
Sjálfvirkt smyrsl og
óbrigðul Mascaravökvi
og pensiklregnar augnlinur.
Sniyrsl og Augnskuggastifti.
Sjálfvirkir augnabrúna-
penslar og
augnaháraleiðarar.
FALKINN
39