Fálkinn - 28.02.1966, Qupperneq 8
7 sumt
Léttúðarkvendi gerist rithöfundur
Mandy Rice Davis, eitt af hneyksliskvendunum i Pro-
fumomálinu fræga sem hafði nærri riðið ríkisstjórn Bret-
lands að fullu, hefur {mifist og dafnað eins og púki á fjós-
bita á kynlífisspillingu brezku yfirstéttarinnar. Hún hef-
ur gert lukku sem söngkona á næturklúbbum og nú er
hún að skrifa bók um léttúðarkvendi samtímans, samtímis
því að hún bíður með skiljanlegri eftirvæntingu eftir að
franskur barón fái skilnað frá konu sinni til að geta kvænst
hinni lífsreyndu Mandy Rice. Ekki vitum við hvort Stúlkan
kemst i hálfkvisti við Fanny gömlu Hill, en allavega ætti
bókin að verða lærdómsríkt plagg um brezku yfirstéttina,
eins og hún er í dag. Það er að segja, ef stúlkan er sæmi-
lega hreinskilin og gædd einhverjum rithöfundarneista.
Þarna d« Clicssiiiaii
Á ganginum, sem þessi góðlátlegi lögreglumaður gætir, bíða nú yfir 40 manns dauða síns — eða sýknunar. Þetta er
„dauðagangurinn“ í San Quentin fangelsinu í Kaliforníu í Baandaríkjunum. Maðurinn á hvítu skyrtunni, sem skýzt þarna
eftir ganginum, er einn af hinum dauðadæmdu. Hin myndin er af gasklefanum, þar sem nærri 200 manns hafa látið lífið
undanfarna áratugi, þeirra á meðal Caryl Chessman. Þetta virðist ekki vera ógnvekjandi í fljótu bragði, eða ekki fyrr en
maður veit hvaða mannvirki þetta er. Ríkisstjórinn í Kaliforníu hefur nú um nokkurt skeið barist fyrir afnámi dauðarefs-
ingar í ríki sínu, en orðið lítið ágengt. Myndirnar, sem hér birtast, eru hinar fyrstu, sem teknar hafa verið af hinum fræga
„dauðagangi“ og gasklefanum.
Ekkja Ueydrichs giftist
Frú Lina Heydrich hefur um árabil rekið vinsælt sumar-
gistihús á eyjunni Femerhn á Eystrasaltsströnd Þýzkalands.
Heldur hefur verið hljótt um konu þessa, þrátt fyrir þá
staðreynd að hún var gift stríðsglæpamanninum Reinhardt
Heydrich, þeim hinum sama og Hitler útnefndi „verndara
Bæheims og Mæris“, sem þýddi það sama og honum var
gefið vald yfir lífi og dauða tékknesku þjóðarinnar og
reyndar hafði hann á prjónunum áætlanir um að útrýma
því fólki. Nú er ekkja hans gift á nýjan leik, finnskum
leikstjóra, sem hún kynntist á hóteli sínu. Þau búa búi
sínu í Helsinki, en hann heitir Mauno Manninen og er
þekktur í sínu heimalandi. Á myndinni eru þau nýpússuð
á heimili þeirra í Helsinki.
8
FALKINN