Fálkinn - 23.05.1966, Blaðsíða 6
Fálkinn
19. tbl. — 39. árg. — 23. maí 1966.
EFNI
SVARTHÖFÐI SEGIR ............................. 6—7
ALLT OG SUMT ................................. 8—9
VÍSITÖLUBÚIÐ HEIMSÓTT. Fálkinn heimsækir
bóndann að Skeggjastöðum í Flóa ...... 10—13
LÍF OG HEILSA eftir Ófeig J. Ófeigsson lækni .. 13
BARNIÐ ALDREI OF UNGT TIL AÐ LÆRA, at-
hyglisverð grein .T................... 14—15
í SVIDSLJÓSINU ............................. 16—17
LEIGUBÍLSTJÓRI LEYSIR FRÁ SKJÓÐUNNI,
stórathyglisvert viðtal við ónefndan bíistjóra .. 18—21
UNDARLEGIR HLUTIR, óhappabíllinn .............. 21
BRENNIMERKT, framhaldssaga eftir Erik Nor-
lander ............................... 22—24
NÝR FJÖGURRA SÆTA JAGUAR ...................... 25
FURÐUR HIMINS OG JARÐAR eftir Hjört Hall-
dórsson .............................. 26—27
LEIRULÆKJAR-FÚSI, grein eftir Þorst. frá Hamri 28—31
ARFUR ÁN ERFINGJA, framhaldssaga eftir Eric
Ambler ............................... 32—34
STJÖRNUSPÁ .................................... 35
LITLA SAGAN eftir Willy Breinholts ............ 36
BARNASÍÐA ................................... 47
KROSSGÁTA ..................................... 48
FORSÍÐUMYNDIN er af Kristínu Gunnarsdóttur, Skeggja-
stöðum í Flóa. — Ljósmynd: Gunnar Gunnarsson.
f NÆSTA blaðl er rreln og myndlr frá
Straumi þar sem álverksmiðjan á að koma.
Blaðamaður og IJósmyndari frá Fálkanum
fóru til að athuga staðinn oc ljósmynda
hann áður en þar hverfur allt undir stein-
steypu osr stál. Staðurinn á líka sína söpu.
Við munum einnig birta grein um LSD
undralyfið, verkanir þess og þá hreyfingru
sein er að rísa um notkun þess í Ameríku.
I>ar verður oe: opna með upplýsingum um
hvað börn og unsrlingar geta unnið í sumar.
Einnig verður mjög athyglisverð grein um
konu sem læknaðist af krabbameini á ein-
kennilceran hátt. Og ennfremur er á sér-
kennilegan hátt fjallað um tónskáldið Wagn-
er. Þá koma nokkrar smágreinar: furðusaga
um mann sem tclur sig hafa bjargazt úr
flugslysi mcð því að ganga á sjónum, grein
um þá viðrinistízku sem upp er að koma í
karlamannafatnaði, a.m.k. hjá vissri tegund
manna, og grein um eldfjallarannsóknir scm
taldar cru einhverjar hinar hættulegustu
rannsóknir. Ekki má heldur gleyma fram-
haldinu af greininni um Leirulækjar-Fúsa og
föstu þáttunum: Svarthöfða, Líf og heilsa
og furður himins og jarðar.
Ritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson (áb.). Blaðamenn: Steinunn S.
Briem, Grétar Oddsson. Ljósmyndari og útlitsteiknari: Rúnar
Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Hrafn Þórisson. Auglýsingar:
Fjóla Tryggvadóttir. Dreifing: Kristján Arngrímsson. Útgefandi:
Vikublaðið Fálkinn h.f. Aðsetur: Ritstjórn, afgreiðsla og auglýs-
Ingar: Grettisgötu 8, Reykjavík. Símar 12210 og 16481. Pósthólf
1411. — Verð í lausasölu 30,00 kr. Áskrift kostar 90.00 á mánuði,
á ári 1080,00 kr. Setning og prentun kápu: Félagsprentsmiðjan h.f.
Prentun meginmáls: Prestsmiðja Þjóðviljans. Myndamót: Mynda-
mót h.f.
b FÁLKINN
Guðbo
Með bundið fyrir augun
Bókaútgáfa á íslandi er gullgraftariðja af fyrstu gráðu. Und-
anskilinn er einn útgefandi, sem er þó lítill reiðumaður á bæk-
ur, prófarkalestur vill verða í molum hjá honum og ákveðinn
útgáfutími bóka á reiki. Þessi útgefandi er Ragnar í Smára, og
starfsbræður hans hafa yfirleitt ekki mikið álit á honum. Nýlega
réð hann tvo unga menn upp á kaup til að skrifa skáldsögur.
Þær urðu báðar um Morgunblaðið og háttsett fólk í Sjálfstæðis-
flokknum. Ragnar hefur, síðan hann hætti að vera kommúnisti,
átt nokkurt skjól í Sjálfstæðisflokknum. Nú skrifuðu þessir tveir
piltar þennan velgjörðarmann sinn þar út úr húsi með klaufa-
legum spörkum, sem eiga lítið skylt við skáldskap. Þannig fer,
þegar menn ætla að bera áburð á berjalyngið.
Ragnar í Smára er kannski góður útgefandi, vegna þess að
hann hefur getað leyft sér að gefa út bækur í áratugi til að
tapa á þeim flestum. Skuldir útgáfunnar voru í einn tíma orðn-
ar svo háar að það er ekki eftir hafandi. Flestar bækur, sem
hann hefur gefið út hafa verið „tímamótabækur". Skáldsögurn-
ar, sem komu s.l. haust voru það líka. Þannig tekst Ragnari að
komast í tímamótahabít á hverju ári, og sum árin oftar en einu
sinni. Þetta er skiljanlegt, þegar haft er í huga, að hann er eini
útgefandinn, sem eitthvað lætur sig varða hvað höfundar hans
skrifa. Hann þarf því að upptendrast fyrir steinguðina í hinum
útgáfunum, sem aldrei lifa neitt merkilegt, en safna fé með
bundið fyrir augun.
Valið á þýddum bókum
fslenzkir útgefendur sjá um það, að þeir íslendingar, sem ekki
lesa a.m.k. eitt tungumál, eigi þess engan kost að fylgjast með
því sem helzt er að gerast í bókaskrifum erlendum. Alls konar
þvælubókmenntir eru gefnar út hér, sem eru einskis nýtar til
alls, nema skila útgefendanum arði. Hræðsla þeirra við erlend-
ar bókmenntir hefur m.a. þýtt það, að bækur eftir John Stein-
beck, Graham Greene, Heinrich Böll, Gúnther Grass og Per
Lagerkvist koma ekki út á íslenzku, svo þeir séu nefndir, sem
Gömul blöð
Kæri Fálki.
Ée greip niöur í Fálkann, nú fyr-
ir stuttu, þar fann és marst, sem
mér þótti skemmtilegt aflestrar og
ég verð að segja að mér finnst að
blaðið fari batnandi hjá ykkur.
Eitt af því sem ég las var kafli úr
framhaldssögunni „Arfur án erf-
ingja". Ég varð strax spenntur og
langaði til að lesa upphafið. Þegar
ég fór svo á stúfana til að kaupa
þau blöð sem upphafið hafði birzt
f, voru þau alveg uppseld. Nú langar
mig til að spyrja hvers vegna þið
birtið ekki ágrip af því sem á undan
er komið í framhaldssögum eins og
svo víða er gert.
Balli á Brú.
Svar: Við þökkum lofið og þykir
það gott, Hvað framhaldssögunni við-
víkur er ,rétt að taka fram, að ýmis
vandkvæði eru á því að birta ágrip
af því, sem á undan er gengið. Hins
vegar er afgreiðslunni ánægja að
útvega fólki blöð til upphafs fram-
haldssögu, eða þau sem úr hafa íall-.
ið hjá lesanda, á hálfvirði, svo fram-
arlega sem blöðin séu til á afgreiðsl-
unni.
A(S kroppa úr blaðinu
Kæri Fálki.
Er endilega nauðsynlegt að klippa
miðann úr þarna í „að finna plöt-
una"? Má ekki eins senda á venju-
legu blaði, það er svo leiðinlegt að
þurfa að skemma blaðið þó að mann
langi til að taka þátt í þessu, að
minnsta kosti er mamma ekkert of
hrifin af því. Hvert á maður svo að
senda svarið? Þú ert fínt blað og
framhaldssögurnar eru draumur.
Bless Fálki minn.
Anna