Fálkinn - 23.05.1966, Blaðsíða 14
VIÐ óskum börnum okk-
ar hins bezta. Við vilj-
um gjarnan að þroski
þeirra sé heilbrigður og eðlileg-
ur og ekki sízt að hæfileikar
þeirra fái notið sín á sem bezt-
an og margvíslegastan hátt.
Heilsufarinu gefum við gaum
frá því augnabliki, er barnið
fæðist en þjálfun andlegra efna
þess og hæfileika látum við
gjarnan bíða lengi vel — ham-
ingjan sanna, þessar nýfæddu
anganórur eru nú svo litlar.
Þannig eigum við ekki að
hugsa.
Tveir amerískir læknar, Glenn
Doman og Carl Delcato, hafa
gert þá uppgötvun eftir ítarleg-
ar rannsóknir, að sú reynsla,
serp lítið barn verður fyrir
fyrstu vikur og mánuði ævi sinn-
ar, hefur mjög mikla þýðingu
fyrir andlegan þroska þess.
Barnið er aldrei of ungt til að
læra.
Fyrsta Ieikfang barnsins er
undantekningarlítið hringla.
Læknarnir tveir hafa uppgötv-
að fimm leikaðferðir, sem hún
gefur kost á. Hve lengi er barn-
ið að finna þær? Að meðaltali
aðeins háifa aðra mínútu.
Fyrst stingur barnið hringl-
unni upp í sig til þess að bragða
á henni. Hún bragðast engan
veginn.
Barnið virðir fyrir sér hringl-
una og uppgötvar, að hún hefur
lit. Á nokkrum sekúndum miss-
ir það áhugann á þeirri stað-
reynd.
Barnið strýkur hringluna. Hún
er slétt. Það er ekki sérlega at-
hyglisvert, en það er þó alltaf
reynandi að kreista hana. Það
verður einnig leiðinlegt eftir
nokkrar sekúndur.
Barnið þefar af hringlunni.
Engin lykt.
Nú fer þeim litla að leiðast
svo um munar, sveiflar hand-
leggjunum frá sér gremjulega,
sem er ósjálfrátt viðbragð — og
hringlan gefur allt í einu frá
sér hljóð. Hið dásamlega augna-
blik, sem nú fer á eftir, er ein-
kennandi. Barnið sekkur sér,
með öll merki um hrifningu
niður í þetta stórkostlega fyrir-
bæri, sem það hefur komizt
höndum undir. Hringlan getur
framleitt hávaða. Dýrðlegt.
En nú veit barnið líka allt,
sem vert er að vita um hringl-
ur. Leikfangið er ekki vitundar-
ögn skemmtilegt lengur. Hringl-
an rýkur á gólfið. Búin að vera.
★ Vanmetið ekki harnið
Hvorki snillingurinn Einstein
eða ungbarnið í vöggunni ráða
yfir fleiri en fimm aðferðum til
að kanna heiminn. Það er hægt
að finna hann, sjá, heyra, lykta
og bragða. Barnið hefur tekið
öll fimm skilningarvit í notkun
til þess að komast að, til hvers
er hægt að nota leikfangið;
Vandamálið er leyst og nú tek-
ur anginn til við öskjuna, sem
hringlan var S. Hún er miklu
forvitnilegri.
Hún er litskrúðugri en hringl-
an.
Það er hægt að rífa hana í
tætlur en það var ekki hægt
14 FÁLKINN