Fálkinn


Fálkinn - 23.05.1966, Blaðsíða 13

Fálkinn - 23.05.1966, Blaðsíða 13
V íu Beethovens og okkur kemur saman um að útsending ríkisút- varpsins af frumflutningi þessa ægifagra verks, hafi verið hrapalleg og líklega fælt marga frá að hlýða því í hljómleika- sal. Nú langar okkur mikið til að komast til Reykjavíkur og sjá Prjónastofan Sólin eftir Halldór Laxness. Ég hef að vísu aldrei komizt upp á lag með að lesa leikrit, segir Sigríður, en Gunn- ar er búinn að tvílesa bókina og er ákaflega forvitinn að sjá verkið á sviði. > En það er erfitt að komast frá búi og börnum. Framan við bæinn er gömul garðhleðsla, vallgróin. Á einum stað hallast hún talsvert meira en hinn heimsfrægi turn í Písa, en hrynur ekki samt. Vinnan á þessum garði er falleg og Sig- ríður segir að eiginlega sé synd að hafa ekki haldið honum við og eins garðholunni sjálfri. Hún sé nú komin í órækt, eitthvert illgresi, sem ég kann ekki leng- • ur að nefna hefur náð fótfestu þar og Sigríði ekki tekizt að ■ uppræta það. En það er nú svona, þegar maður stendur í stórræðum, eins , og húsabyggingum, að ekki er ; hægt að hugsa um alla hluti og þá er það minnst aðkallandi lát- ið dankast á meðan. Gunnar og Ijósmyndarinn eru komnir aftur og krakkarnir með ; þeim og hundurinn Lappi með j krökkunum. Lappi er svartur og hefur hökutopp. Eiginlega átti i hann að heita Skeggi, en af því að strákurinn hét Skeggi var náttúrlega ekki hægt að láta Framhald á bls. 39. Sveitin I hnotskurn: Hest- arnir, krakkarnir, hundur- inn og fjárhópurinn. LÍF OG HEILSA Skólaskoðun á 7 ára börnum V. HLUTI Eftir Ófeig J. Ófeigsson, lækni au 12 ár, sem ég hef ver- ið skólalæknir tel ég mig ekki hafa örugglega séð nokkurt barn, sem liðið hef- ur af fæðuskorti, en aftur á móti mörg börn, sem liðið hafa af næringarskorti. Með þessu á ég við að ekki sé nóg að henda einhverju mat- arkyns í börnin til að seðja hungur þeirra eins og t.d. vínarbrauðum, sælgæti, gos- drykkjum og þ.h. auk einnar tii tveggja fábreyttra mál- tíða á dag, heldur þurfi börn- in að fá að staðaldri vel til búna og fjölbreytta fæðu nógu oft á dag til þess að þau taki út eðlilegan þroska. í viðbót við þetta þurfa þau gott atlæti, þrifnað og aðra umhyggju og langan, áhyggju- lausan svefn á hverri nóttu. Barn, sem skipað er að fara að sofa þegar allt leikur á reiðiskjálfi á heimilinu af svalli, hávaða og fyrirgangi, sofnar ekki áhyggjulausum svefni og ekki heldur það bam, sem býst við öðru hvoru foreldra sinna eða jafnvel báðum hálf eða al- fullum heim einhvern tíma nætur. Ef seinnitíma kyn- slóðir lesa þessa grein og spyrja sjálfar sig hvort ég hafi ekki verið að ýkja, þá skal ég nú þegar segja þeim ágætu afkomendum núlifandi kynslóðar, að þetta hafi ég ekki rekist á örfáum sinnum, heldur hvað eftir annað, sem skólalæknir, næturlæknir, helgidagalæknir og í viðtöl- um við marga menn — kon- ur, karla og börn. Þó ég taki svona djúpt í árinni þá á ég alls elcki við að sum lítil og mögur börn, sem læknar geta ekki fundið neitt sjúklegt að, þurfi að líða af næringar- skorti eða búi við lélega meðferð á lieimilum, heldur eru sum börn smávaxin og mögur þrátt fyrir góða um- önnun og nógan og góðan mat. OFFITA. Miklu algengara er að sjá of feit börn og ung- linga en of magra, því flest 7 ára börn eru vel alin, mörg of feit og sum svo akfeit að þau geta liðið fyrir það alla ævi. Barn, sem er ofalið og þá of feitt og of stórt þarf að sjálfsögðu meiri mat en barn í hæfilegum holdum. Maginn þenst út og þarf því meira til að fá fylli sína og saðn- ingu. Barnið venst þannig á að eta um of og verður því oft of feitt alla ævi. Offita.j stuðlar ALDREI að aukinni! heilbrigði. Ofþyngd líkamansj stuðlar að því að barnið verð- ur þunglamalegt og væru- kært og búast má við að það verði öðrum börnum fremur kiðfætt og flatfætt. Þegar það er fullvaxið hættir því | fremur öðru fólki við að fá of háan blóðþrýsting, æða- kölkun, sykursýki, gallsteina o. fl. sjúkdóma, auk þess sem meðalaldur þess er áberandi lægri en manna I eðlilegum holdum. Ástæðan fyrir offitu barna er oftast nær ítroðsla hinna fullorðnu. Einkanlega á þetta við um afa og ömm- ur barnanna, sem vilja sýna þeim ástúð sína með sífelld- | um matar- og sælgætisgjöf- um. Sumt af þessu fólki hef- ur þó það sér til afsökunar að það var svangt í æsku og vill bæta erfingjunum það upp. Auk þess vita foreldrai og aðrir fullorðnir oft ekki nema þá að litlu leyti livað sé liollt barninu. „Nýmjólk er holl“ er viðkvæðið. Fólk ætti þó að vita að mjólk et NÆRANDI MATURenEKKI SVALADRYKKUR. A3 þamba mjólk við þorsta er j óþarft fyrir alla, sem fá nóga , næringu á máltíðum og eru í góðum lioldum. Þeir eiga blátt áfram að drekka vatn en ekki gosdrykki og mjólk við þorstanum. Nú er líka komið upp úr kafinu að mjög Framhald á bls. 38. FÁLKINN 13

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.