Fálkinn - 23.05.1966, Blaðsíða 8
Það er trúlega bráðskemmtilegt starf að vera dómari
í Danmörku um þessar mundir. Þá getur maður lesið
allar þær klámbækur sem út koma án þess að borga
eyri fyrir, séð allar ósiðlegar kvikmyndir, sem kostur
er á og allt þetta án þess að blettur eða hrukka komi
á mannorðið. Kvenmaðurinn á myndinni er staddur í
réttarsal vestur í Bandaríkjunum, þótt látæði hennar
kunni að gefa til kynna að hún sé að fríska upp á
vissar tilfinningar karlkynsins í vafasömum nætur-
klúbbi. Reyndar er Karen Davidson dansmær í slíkum
klúbbi og hún er einfaldlega að sýna dómaranum fram
á að ekkert það sé í dansi hennar, sem geti réttlætt
að klúbbeigandanum verði stungið inn fyrir að hafa
ósiðlegar skemmtanir á boðstólum.
Þá væri gaman í bæjarvinnunni!
Ekki alls fyrir löngu var verkamaður að grafa í ná-
grenni við klausturrústir. Hann rakst á um 1000 gull-
peninga og allmikið af gimsteinadjásnum, Fjársjóðurinn,
sem metinn er á um 3 milljónir króna, er talinn hafa
verið grafinn í jörðu á 12. öld í einhverri styrjöldinni.
DÓMARADANS
SS MAÐUR GEFUR UT ENDURMINNINGAR SINAR
Innan skamms koma út í Sviss endurminningar SS hershöfðingjans
Otto Skorzeny, en hann varð frægastur fyrir að bjarga Mussolini úr
fangelsinu á Gran Sasso. Með þeirri dáð sinni mun hann hafa lengt
síðari heimsstyrjöldina um nokkra mánuði. Maðurinn var líka þannig
gerður, að Hitler fól honum gjarna verkefni, sem enginn annar maður
hafði möguleika til að leysa. Nú býr skúrkurinn í Madrid í skjóli
Francos, ekur um í Mercedes Benz og spilar tennis við yfirstéttar-
menn. Talið er að bók hans verði örugglega metsölubók. Myndirnar
eru af Skorzeny eins og hann leit út á stríðsárunum í fullum her-:
klæðum og eins og hann lítur út í dag. Prússneska einvígisörið á
kinninni er auesvnilegt á báðum myndunum.
Poppvandamál
Einhver Ian Zan-
oni er orðinn að
miklu vandamáli í
sænska hernum og
hefur varla verið á
þau bætandi síðan
Wennerström var
afhjúpaður. Zanoni
er að vísu öðruvísi
vandamál, en samt
nógu slæmt. Her-
reglur mæla svo fyr-
ir að hermenn megi
ekki hafa svo mikið
hár eðá skegg, að
það geti hindrað þá
við hernaðaraðgerð-
ar, t.d. ekki svo mik-
ið að þeir komi ekki
á sig gasgrímu svo
vel sé. En nú er
Zanoni þessi ákaf-
lega mikil popphetja
í Svíþjóð og hefur
gripið auglýsinga-
tækifærið tveim
höndum og harðneit-
ar að fórna einum
lokki úr hári sínu
hvað þá meiru, og
er það þó ærið fyrir.
»
8
FALKINN