Fálkinn


Fálkinn - 23.05.1966, Blaðsíða 33

Fálkinn - 23.05.1966, Blaðsíða 33
færi til að tala við einn þeirra andartes, sem þátt tóku í árás- inni. við Vodena. Upplýsingar hennar eru á þá lund, að lið- þjálfinn hafi verið drepinn." „Veit hún, hvernig hann var drepinn “ „Hann var í fremsta bílnum, sem var sprengdur í loft upp af jarðsprengju." George hugs- aði sig um andartak. Hann hafði ekki getið um þetta við höfuðs- manninn. Það lofaði góðu. „Sá viðkomandi lík liðþjálf- ans?“ „Já“. „Lá hann á veginum?“ „Hann lá þar sem hann kom niður eftir sprenginguna.“ „Hvað varð af líkinu eftir það?“ Hann sá madame Vassi- otis svara með axlaypptingu. „Veit hun, að líkið var þar ekki, þegar þýzki leitarflokkur- inn kom á staðinn?" „Já, en á því getur heimild- „Spyrjið hana, hvort maður- inn hafi nokkuð vitað um sár liðþjálfans.“ „Um það getur hún ekki sagt með vissu. Liðþjálfinn var löðr- andi í blóði.“ „Er hún sjálf sannfærð . . .?“ Hann hætti snögglega. „Nei, bíð- ið ofurlítið . . . Við skulum orða það þannig: Ef liðþjálfinn hefði verið hennar eigin sonur, myndi hún þá vera sannfærð, út frá því, sem fyrir liggur, um að hann væri dáinn?“ Bros breiddist út um holdugar varirnar og fyrirferðarmikill lík- ami hennar hristist af hljóðum hlátri, þegar hún skildi spurn- inguna. Andvarpandi reis hún upp af legubekknum og gekk að skúffu í borðinu. Hún tók fram pappírsörk, sem hún rétti ungfrú Kolin, um leið og hún sagði nokkur orð til skýringar. „Madame gerði ráð fyrir efa- semdum yðar og krafðist sann- ana fyrir því, að kunningi henn- ar hefði séð líkið. Hann sagði henni, að þeir hefðu rænt hina dauðu Þjóðverja og að hann hefði fengið hermannspela lið- þjálfans. Hann á hann enn. Nafn liðþjálfans og hernúmer er brennt í ólina. Það stendur hér á blaðinu.“ Madame Vassiotis settist aftur og dreypti á vín- inu, meðan George athugaði blaðið. Hernúmerið þekkti hann. Hann hafði séð það áður á fjölda skjala. Undir því stóð með upp- 'hafsstöfum „SCHIRMER. F.“ George íhugaði þetta og kink- aði síðan kolli. Hann hafði ekki nefnt nafnið Schirmer við höf- uðsmanninn. Það gátu engin brögð verið í tafli. Hvað orðið hafði af líki liðþjálfans á eftir myndi ef til vill aldrei verða uppskátt, en það lék ekki minnsti efi á því, að madame Vassiotis og hinn dularfulli kunningi hennar sögðu satt. Hann kinkaði kolli, tók glas sitt og skálaði við konuna og drakk síðan í botn. „Viljið þér þakka henni fyrir, ungfrú Kolin,“ sagði hann um leið og hann lagði frá sér glas- ið, „og segið að ég sé harð- ánægður." Hann tók fram fimm- tíu dollara seðil og lagði hann á borðið, þegar hann stóð upp. Hann tók eftir undrunarsvip sem kom á andlit konunnar, en hún þó flýtti sér að leyna. Hún stóð á fætur og hneigði sig og brosti. Hún var greinilega him- inlifandi. Hefði það verið sam- boðið virðingu hennar, myndi hún hafa tekið seðilinn upp og athugað hann nánar. Hún neyddi þau til að drekka enn eitt glas. Þegar þeim heppnaðist loksins að kveðja hana við útidyrnar, sneri George sér að ungfrú Kol- in. „Þér ættuð líklega að vara hana við að minnast á þessa fimmtíu dali við monsieur Klir- is. Ég segi höfuðsmanninum ekkert. Ef lánið er með, fær hún borgað tvisvar sinnum!“ Ungfrú Kolin var komin að sjötta koníaksglasinu eftirkvöld- verðinn og augnaráð hennar var að verða starandi. Hún sat tein- rétt á stólnum. Þá og þegar myndi hún ákveða að fara 1 háttinn. Höfuðsmaðurinn var farinn fyrir löngu. Hann fór með svip þess manns, sem hef- ur séð heiðarleg áform sín mis- notuð. Hann hafði samt ekki neitað að taka við hundrað doll- urunum sem George bauð hon- um. Að líkindum sat hann nú í fögnuði yfir hinu auðfengna fé ásamt ástmey sinni. George hafði nú ekki fleira að gera í Florina. „Við leggjum af stað í bítið í fyrramálið, ungfrú Kolin. Lest til Saloniki. Flugvél til Aþenu. Flugvél til Parísar. Hvað segið þér við því?“ „Hafið þér tekið endanlega á- kvörðun?“ Getið þér komið auga á nokkra ástæðu til að halda mál- inu áfram?“ „Ég hef aldrei efazt um, að maðurinn væri dauður." „Nei, það er satt . . . Ætlið þér nú að fara að sofa?“ „Já, það held ég. Góða nótt, herra Carey.“ „Góða nótt, ungfrú Colin.“ Meðan hann virti fyrir sér varfærnislegt göngulag hennar til dyranna, braut hann heilann um, hvort hún héldi. hinni stirðnuðu sjálfsstjórn sinni þang- að til hún væri komin í rúmið eða hvort hún leyfði sér að sleppa af sér beizlinu, strax og hún væri einsömul . . . Hann drakk hægt það sem eftir var í glasinu. Hann var hálf niðurdreginn og hefði gjarnan viljað vita hvernig stóð á því. Nú gat hann haldið heim- leiðis og byrjað á alvarlegri og nytsamari verkefnum. Allt var í himnalagi. Og samt veitti það honum enga fullnægju. Það náði ekki nokkurri átt ... Það leið löng stund áður en honum varð sannleikurinn Ijós. Hann hafði notið þessa fyrir- tækis frá byrjun . . . Já, þannig lá í því! Hinum gáfaða, metorðagjarna, þótta- fulla herra Carey, með sína fínu, brosandi fjölskyldu, klæðskera- saumuðu fötin og Harvard-próf- skírteinin, þótti gaman að leika leynilögreglumann! Honum þótti gaman að leita að þýzkum her- mönnum, sem ekki voru til, skipta við athyglisvert fólk eins og hina illlcvittnu Frau Gresser, eða hinn blóðþyrsta Chrysantos ofursta eða þjóðfélagsóvininn Phengaros . . . Hann andvarpaði, greiddi bar- þjóninum, náði í lykilinn sinn og fór upp á herbergið. Það var á annarri hæð og sneri út að götunni og á nótt- unni var þar nærri lesbjart af götul j óskerunum. Þess vegna kveikti hann ekki óðara og hann hafði opnað dyrnar. Það fyrsta, sem hann kom auga á, þegar hann hafði tekið lykilinn úr skránni. var ferðakistan, sem lá opin á rúm- inu og innihald hennar. sem lá dreift um rúmábreiðuna. Hann steig snögglega eitt skref áfram. í sama bili skelltist hurð- in aftur að baki honum. Hann snarsneri sér við. Rétt við hurðina stóð maður. Hann var í skugga, en um byss- una í hendi hans var ekki hægt að villast. Maðurinn talaði mjög hljóð- lega, en jafnvel ringluð skiln- ingarvit Georges námu sterkan Cockney-málhreim hans greini- lega: „AU right, góðurinn! Bara ró- legur! Nei, ekki hreyfa sig! Teygðu bara lúkurnar aftur fyr- ir hnakka og hafðu hægt um þig og biddu þess, að engin ó- höpp verði. Skilurðu?" Dularfull ökuferð „Svona góðurinn," hélt röddin áfram sefandi. „Nú ferðu bara út að glugganum og dregur tjöldin fyrir. Og svo skulum við láta birta svolítið yfir landslag- inu. Hægt og rólega, já . . . Já, þú verður að nota báðar hendur, en gættu að því, hvað þú gerir með þeim, því annars verða bara einhver óhöpp . . . Ekki heldur neitt með að hrópa á hjálp eða svoleiðis, bara hægt og rólega . . . svo-ona!“ George dró gluggatjöldin fjrr- ir, og í sama bili var ljósið kveikt. Hann sneri sér við. Maðurinn stóð við ljósrofann og gaf honum gætur. Hann var lítill, þéttvaxinn náungi á fer- tugsaldri. Föt hans voru auð- sjáanlega framleidd þarna á staðnum. Það var jafnaugljóst að það var hann ekki. Beina- bert andlitið með söðulbökuðu nefinu og slóttugu, frekjulegu augnaráðinu var upprunnið úr sama stað og sérkennilegur mál- hreimurinn, London. „Þetta var svei mér betra,** sagði gesturinn. „Nú getum við séð hvor annan án þess að ná- grannarnir verði forvitnir!" „Hvern fjandann á þetta eig- inlega að þýða?“ sagði George FÁLKINN 33

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.