Fálkinn - 23.05.1966, Page 7
SVART
IIQFÐl
SEGIR
fyrst koma í hugann af skáldsagnahöfundum. Stórkostlegar
sagnfræðilegar bækur hafa komið út erlendis á undanförnum
árum, en íslenzkir útgefendur vita ekki að þær eru til. Þetta
eru þó metsölubækur um allan heim. Þótt þeir með aðgerða-
leysi sínu í þessum efnum bindi á ósvífinn hátt fyrir augu mik-
ils fjölda lesenda, vantar ekki að útgefendur telja sig stóra
menningarmenn. Fyrir utan þýdda dótið, sem lengi vel voru
læknabækur, unz læknabókaiðnaðurinn fluttist inn í landið, fyr-
ir tilverknað útgefenda og uppeldi, og koma hér út árlega kem-
ur marklaus þjóðlegur fróðleikur, sem er raunar mestur á því
sviði, að hann er okkur til skammar, eins og upprifjunin á öllum
þessum barneignamálaferlum sannar, og síðast en ekki sízt skal
telja andatrúarbækurnar, sem komust upp í sjö í fyrra. Út á
þessa starfsemi sína halda svo útgefendur, að þeir geti krafið
ríkið um eftirgjöf á skatti á pappír til bókagerðar. Það er vitan-
lega fráleitt. Það ætti frekar að auka skattinn á bókapappír og
nota mismuninn til að verðlauna þær sárafáu bækur, sem út
koma hér á ári hverju og eru okkur ekki til beinnar vanvirðu.
Orsök og afleiðing
Með því að halda almennum lesanda einangruðum að mestu
frá mannsæmandi lesefni, hefur þessum iðjuhöldum menningar-
innar, bókaútgefendum, tekizt að koma sér upp hópi rithöf-
unda, sem gerir ekki annað en framleiða handa þeim lélegar
skemmtibækur, sem falla alveg í þann smekk, sem hér ríkir.
Með því að ota fram góðum bókum væru þeir meira og minna
að eyðileggja þann markað, sem þeir hafa fyrir þriðja flokks
bókmenntir. Þeir benda gjarnan á það með stolti, að skemmti-
sagnaiðnaðurinn fari vaxandi innan lands. Hefðu þeir ginhvern
tíma gert eitthvað í því að afla fólki góðra skemmtisagna,
myndu íslenzku sögurnar í dag ekki hafa orðið verri en þær.
Útgefendur fá í höfuðið í dag nákvæmlega þá tegund skemmti-
sagna af innlendum vettvangi, sem þeir hafa verið að sá til á
undanförnum áratugum. Þeim er alveg sama á meðan þeir
græða, en menningarlegt tap okkar í heild er ómælanlegt.
Menningarsjóður, sem ætti að geta hamlað eitthvað á móti þeirri
blindu, sem útgefendur halda almenningi í, og ekki er rofin
nema þegar út koma bækur eftir þá sárafáu góðu höfunda,
sem hér eru, er píndur til að gefa út hverja kjaftæðisbókina á
fætur annarri, af því einhver vandræðahöfundurinn á pólitíska
aðstandendur. Undan er skilin bók eins og Rómaveldi. Þar tókst
Menningarsjóði í fyrsta sinn í langan tíma að gera góðverk á
íslenzkum lesendum. Þeir sem stjórna útgáfu Menningarsjóðs
lesa mér vitanlega aldrei erlenda bók, og það er raunar ráð-
gáta hvernig Rómaveldi rak á fjörur þeirra. Ýmsir aðrir út-
gefendur hafa ekki heyrt á erlenda bókatitla minnzt að því er
virðist, ef undan eru skildir þriðja flokks reyfarar, sem þeir
eru ákaflega fundvísir á og skilja mjög vel og selja í dýru bandi
fyrir hver jól.
Að borga frá sér vitið
Hvenær sem útgefandi heyrir að einhver annar útgefandi hef-
ur hækkað greiðslur fyrir handrit, er sá sem hækkar talinn hafa
bilazt. Skelfingin innan þessarar iðnaðarstéttar við það að fá á
sig þannig orð er slík, að allt þykir sjálfsagt að borga vel nema
höfundarlaun og svo pappírsskattinn til ríkisins. Prentsmiðjurn-
ar fá sitt, stundum fyrir vinnubrögð, sem kosta mikla uppsetn-
ingu, og bókbandið fær sitt, þótt íslenzka bókbandið sitji stund-
um eftir í hendi manns að lestri loknum. Þetta stafar allt af
því að útgefendur skilja iðnaðarmenn. Höfundarnir eru aftur
á móti einhver leiðindalýður, sem misjafnlega vel gengur að
selja bækur eftir. Kunn eru orð SAM um kerlingabækurnar. En
kerlingarnar eru ekki öfundsverðar. Yfirleitt seljast bækur
þeirra vel. Sjálfar vita þær ekkert hver upplög eru prentuð af
bókum þeirra. Yfirleitt heyrir til undantekninga ef skriflegur
samningur fæst gerður við útgefanda. í flestum tilfellum mega
þeir ekki heyra minnzt á prósentugreiðslur af sölu. Að vísu
eiga þeir sér nokkra afsökun í því efni, vegna fáránlegs sölu-
kerfis. Þeir lána sem sagt bækurnar til sölu, og fá rhest af þeim
ekki greitt fyrr en nokkrir mánuðir eru liðnir, stundum ár.
Þetta þýðir að þeir greiða fasta upphæð í höfundarlaun. Og
þeir borga ekki frá sér vitið. Þar við liggur útgáfuheiður þeirra.
En máltækið segir: Guð borgar fyrir hrafninn og kannski verða
kerlingarnar að una við þær greiðslur einar um sinn.
Svar: Þakka þér fyrir bréfið, Anna.
Nei, þaS er ekki endilega nauðsyn-
legt, ef þig langar til að geyma blað-
ið. Svarið áttu að senda til Fálkans,
merkt H.S.H. Fálkinn, pósthólf 1411,
Reykjavík. Gaman aö þér skuli falla
blaðið
Kossiun
Kæri Fálki!
Ég var að lesa greinina „Æskan
og Nóttin“ 1 15. tölublaði 25. apríi.
Þar rakst ég á mynd sem hét „Koss-
inn“. Nú langar mig að spyrja þig,
hvar og hvenær hún er tekin, og
hvort hún er ný eða gömul.
Elcki vildir þú vera svo góður að
birta svar einhvers staðar í blaðinu
fyrir mig og helzt sem fyrst.
Svo þakka ég þér fyrir skemmti-
legt og gott lesefni og margar góðar
myndir.
Með fyrirfram þökk, áskrifandi
Sigr. Sig.
Svar: Myndin var tekin fyrir
skömmu í Reykjavík á skemmtistað,
en eins og þú tókst eftir var staðar-
ins ekki getið með myndinni, og þá
er yfirleitt ekki venja að geta slíkra
hluta síðar. Slik sjón sem sú er
myndin sýnir er annars ekkert sjald-
gæf á skemmtistöðum, og fyrir því
naumast furða þótt lendi á síðum
blaðanna.
Hárgreiðslunám
Kæri Fálki.
Mig langar til að vita hvort þú
getur gefið mér einhverjar upplýs-
ingar um Iðnskólann á Akureyri. Ég
hef mikinn áhuga á að komast þang-
að en ég hef bara unglingapróf og
veit ekki hvort það nægir. Mig lang-
ar til að læra hárgreiðslu. Hvað þarf
maður að vera lengi i skólanum til
að vera útskrifaður og geta sett upp
stofu sjálfur. Svo vil ég þakka þér
Fálki minn fyrir skemmtilegar sög-
ur og annað efni í blaðinu. Með fyr-
irfram þökk.
S.G.
Svar: Unglingapróf hlýtur að
nægja. Samtímis veru þinni í Iðn-
skólanum á Akureyri þarftu að ráða
þig til náms á hárgreiðslustofu,
námstíminn er 3 ár, og að þeim tíma
liðnum getur þú farið að vinna sjálf-
stætt, en ekki fyrr en 3 árum eftir
það færðu meistarabréf, og þá get-
ur þú farið að taka lærlinga sjálf.
Hárgreiðslustofu með mörgum hár-
greiðslukonum getur þú ekki sett
upp fyrr en þú hefur fengið meist-
arabréfið.
PÖST
HÖLF
1411
FALKINN
7