Fálkinn


Fálkinn - 23.05.1966, Síða 39

Fálkinn - 23.05.1966, Síða 39
FERÐASKRIFSTOFA ZOEGA H.F. HAFNARSTRÆTI 5 - SÍMAR 2 17 20 & 1 19 64 Bjóðum yður hagkvæmustu ferðirnar um víða veröld. Seljum FARSEÐLA. Útvegum HÓTELHERBERGI. Önnumst SKIPULAGNINGU ferða innan lands og utan. FÁIÐ GLÆSILEGAR FERÐA- ÁÆTLANIR OKKAR. FERÐIR VIÐ ALLRA HÆFI. ■ HÖPFERÐIR ■ EINSTAKLINGS- FERÐIR Ferðizt áhyggjulaust - Ferðizt með Zoéga tímabili á það að fá að þroska jafnt báðar „hliðar“. Þess vegna ættuð þér ekki heldur að leggja mataráhöldin við hliðina á diski barnsins, heldur annaðhvort ofan á hann eða fyrir framan hann. Látið borðsiðina lönd og leið og leyfið barninu að ákveða sjálfu íhvora höndina það vill taka skeiðina eða gaffalinn. Nú brosið þér ef til vill, en jafnvel slíkir smámunir, sem það, að ákveða sjálfur hvernig maður vill borða, eiga sinn þátt í að þroska tilfinningu barnsins fyrir mannlegum réttindum. Þegar þér eruð viss um, að þriggja ára barnið hafi tekið sína ákvörðun — og skiptir þá engu máli hvort það hefur valið vinstri eða hægri hönd — þá skuluð þér styðja þá ákvörðun, meira að segja mjög kröfuglega og þér eigið að leggja skeiðina og gaffalinn þar, sem þau eiga að vera eftir þörf barnsins. - Hægri eða vinstri gerir engan mun á þeim snilling, sem barn yðar hefur — ef til vill — að geyma. Það fyrirfinnast mörg dæmi um „örvhenta" Nóbels- verðlaunamenn. # Óhappabíll Framhald af bls. 21. móti fengið bílstjóra á hann, ók hann honum sjálfur. Hann naut eignar sinnar í hálft ár og allt virtist benda til að hann hefði rétt fyrir sér og álögin væru ekki annað en í- myndun almennings. Síðan var það einn morguninn að bíllinn fannst á hvolfi og lík doktors- ins við hliðina á honum. Hann hafði kramizt til dauðs í velt- unni. Ekkja hans seldi auðugum gimsteinasala bílinn, og hann ók honum í heilt ár stórslysalaust, en framdi þá sjálfsmorð. Næsti eigandi var læknir, en sjúkling- ar hans flúðu hann í hrönnum af ótta við álögin á bílnum. Honum tókst að prakka honum inn á svissneskan kappaksturs- mann, sem tók síðan þátt í kappakstri í Dolomitafjöllum, hentist þar yfir steinvegg og beið bana. Nú lá leiðin til auðugs bónda í Sarajevo. Hann lét gera bílinn upp og ók honum tíðindalaust í nokkra mánuði. Þá var það einn morgun að bíllinn stöðvaðist á miðri götu. Eigandanum tókst að fá bónda nokkurn til að taka hann aftan í æki sitt til þess að draga hann til bæjarins. Ekki tókst þá betur til en svo, að bíllinn fór allt í einu af stað, henti hesti, vagni og bónda til hliðar og valt með eiganda sinn á krappri beygju. Þar lét hann líf sitt. En nú er hinn ófagri ferill bílsins brátt á enda. Bifvéla- virki nokkur, Tiber Hirchfield að nafni, keypti hræið, gerði það upp og málaði bílinn bláan. Honum tókst ekki að fá kaup- anda og ók honum því sjálfur. Dag einn er hann var að aka sex vinum sínum til brúðkaups- veizlu, reyndi hann að fara fram úr öðrum bíl á mikilli ferð. Hirchfield og fjórir af farþeg- unum létu líf sitt. Bíllinn var gerður upp á kostnað stjórnarinnar og settur á safn í Vínarborg. Hann hafði orðið sextán mönnum að bana og átt þátt í einni heimsstyrj- öld og það þurfti aðra til að koma honum fyrir kattarnef og álögin á rauða bílnum voru þurrkuð út í einni af loftárás- um Bandamanna á Vínarborg I seinni heimsstyrjöldinnL • Vísitölubúið Framhald af bls. 13. hund heita í höfuðið á honum. Eins og vant er, getur maður aldrei staðið eins lengi við og maður hefði viljað og sízt sæti það á okkur, kyrrsetumönnun- um úr Reykjavík, sem étum smjör hvað sem HÆ segir, að tefja mann sem er að byggja hús handa sér og smjörfjall handa þjóðinni og okkur, frá verkum sínum. Enda ætluðum við að hitta sjóbirting að máli niðri við Ölfusárós í bakaleið og ekki til setunnar boðið. Sjóbirtingur var ekki við- ræðuhæfur í Ölfusárósi þann daginn, hins vegar lék selurinn veiðarfæri okkar svo grátt og gerði veiðireisn okkar svo smáa, að bezt er að hafa þar um fá orð. FALKINN 39

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.