Stúdentablaðið - 01.05.1998, Page 6
nuaentaDiaðið
Stúdentablaðið
Útgefandi
Stúdentaráð Háskóla íslands
Ritstjóri
Björgvin G. Sigurðsson
Ritnefnd
Hildur Gróa Gunnarsdóttir
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Erna Kaaber
Brynjólfur Ægir Sævarsson
Framkvæmdastjóri
Dalla Ólafsdóttir
Auglýsingar
Loki
Styrktarlínur
Markaðsmenn ehf.
Ljósmyndir
Jón Páll Leifsson o.fl.
Umbrot og hönnun
Reykvísk útgáfa
Filmuvinnsla og prentun
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sími ritstjórnar 562-1080 Fax 562-1040
Háskólamenn halda kjafti
í setningarræðu sinni hvatti Páll Skúla-
son, rektor Háskólans, fræðimenn til þess
að taka þátt í og leiða þjóðfélagsumræðuna.
Hvort heldur er lýtur að veiðileyfagjaldi,
skólagjöldum, forgangsröðun í heilbrigðis-
kerfinu eða hvað eina sem á þjóðinni
brennur í það og það skiptið. Þessu kalli
rektors hafa fræðimenn ekki sinnt. Undan-
farnar vikur hafa farið fram gríðarlega
harðar umræður í þjóðfélaginu um siðferði
æðstu embættismanna landsins og stjórn-
málamanna þess.
Umræða sem er löngu þörf og hefur beð-
ið allt of lengi með þeim afleiðingum að
hinir ýmsu pótintátar stjórnmálaflokkanna
hafa vaðið á skítugum skónum yfir almenn-
ing með því að sukka, sóa og spreða al-
mannafé til þess eins að fullnægja sínum
lægstu hvötum. Þetta eru hinir sömu menn
og eru valdir til æðstu starfa í þjóðfélaginu,
trúnaðarstarfa, treyst af almenningi í land-
inu.
Þessir menn hafa brugðist traustinu en í
leiðinni kristalla þeir ástandið: Það er allt í
lagi að sukka og sóa almannafé á meðan
ekki kemst upp um óþverrann. Þessir
menn eru siðlausar afætur. En það er ekki
nóg að þrir vesælir bankastjórar segi af sér
svo dæmi sé tekið. Það þarf að fara fram
fræðileg umræða um þessi mál og þar
kemur að ábyrgð háskólamanna.
í fæstum orðum sagt þá hefur Háskólinn
haldið kjafti. Stikkfrí frá umræðunni einsog
venjulega og hafa enga skoðun á málinu
þar sem sukkið raskar ekki hinu ljúfa lífi
háskólasamfélagsins. Hvar eru hagfræð-
ingarnir með útlistun á kostnaði samfélags-
ins á sukkinu? Hvar eru siðfræðingarnir
með harðar ádrepur um hvað almennt tíðk-
ist í siðuðum samfélögum? Hvar eru sál-
fræðingarnir, til að útskýra fyrir okkur fá-
brotnum, hvað bærist í sálarlífi moldríkra
manna sem í skjóli trausts og trúnaðar al-
mennings velta sér eins og svin í hveiti upp
úr sjóðum þess þegar þeir halda að enginn
sjái til?
Fræðimenn við Háskólann bera ábyrgð
og þeirri ábyrgð sinna þeir ekki. Þeir taka
þátt í að þegja svínaríið í hel og misréttið
fær að vaxa og dafna. Þeir láta stjórnvöld
fótum troða það heilaga réttlæti sem felst í
jafnrétti til náms með því að hamra ekki á
ranglæti þess að taka upp skólagjöld við
Háskóla íslands. Hvar eru riddarar réttlæt-
isins innan hins háa Háskóla?
Þarna ræðir um best menntuðu menn
þjóðarinnar og þá sem yfir viðamestu þekk-
ingunni búa. Þeirra innlegg á að vera
stjórnmálamönnum nauðsynlegt aðhald og
leiðarljós í starfi. Lognmolla þessi er Há-
skóla íslands til vansa og ber sjálfhverfu
stofnunarinnar ófagurt vitni. Fræðimönn-
um við skólann ber skylda til að vísa veg-
inn í umræðu dagsins og leggja sitt af
mörkum til að eyða meinsemdum mann-
lífsins. Þeirra er að reka af sér slyðruorðið,
þora að hafa skoðanir og halda þeim fram.
Björgvin G. Sigurðsson
Þóra Amórsdóttir skrifar frá
Genúa á Ítalíu
Tuttugu stig fyrir
sköllóttan mann
Samkvæmt öllum bröndurum og bíó-
myndum á maður alltaf að segja
slæmu fréttirnar fyrst. Ég er svo
heppin að vera stödd í því héraði Italíu
sem mest er í fréttunum. Stærstu sjón-
varpsstöðvarnar leggja undir okkur heilu
fréttatímana. Og það er vegna þess að lest-
ir eru sífellt að fara út af sporinu og hins-
vegar vegna þess að hér eru tveir morð-
ingjar á ferli. Annar laumast einhvern veg-
inn inn á heimili gamalmenna
og drepur þau með hnífi. Mér
skilst að þau séu orðin átta síð-
an í október. Hinn virðist hins-
vegar vera á höttunum eftir
vændiskonum og hefur skilið
eftír sig sex fórnarlömb síðan
á gamlárskvöld þegar hann
(eða hún?) skiptí skyndilega
um kjörumhverfi og tók upp á
því að myrða saklausar, ungar
hjúkrunarkonur um borð í
lestum. í bæði skiptín sömu
línu. Akkúrat þeirri sem sam-
leigjandi minn þarf að taka
tvisvar í viku tíl þess að fara í
tíma. Við skulum vona að hún
sleppi og að ekki komi fram á
sjónarsviðið einn sem er á
móti erlendum stúdentum
sem labba í skólann.
Góðu fréttirnar myndu hins-
vegar vera þær að það er kom-
ið sumar á minn mælikvarða.
Og sem góðum Islendingi
sæmir, æðir maður auðvitað
beint úr skólanum á ströndina
(reynum helst að fá far til að
þurfa ekki að taka lestina, af
augljósum ástæðum), tætír sig
úr fötunum og læst vera að
lesa undir próf. Eða það að við
sitjum útí í glugga, borðum
ólífur og spýtum steinunum
niður af fjórðu hæð. Tíu stíg
íyrir bíl á ferð, tuttugu íýrir
sköllóttan mann og mínus
fimm ef hann lendir á svölun-
um hjá nágrönnunum fyrir
neðan.
A propos próf. Finnst ég
verða að deila með ykkur reynslu minni af
því að taka próf í ítölskum háskóla. Er eilít-
ið öðruvísi en maður á að venjast. Kennar-
inn hengir upp blað með upplýsingum
með dag- og tímasetningu prófsins. Þú
skráir þig á það. Síðan velti ég því lengi fyr-
ir mér hvernig ég ættí að komast að þvi
hvar það yrði. Þangað tíl einhver sagði
mér að það yrði auðvitað á skrifstofu pró-
fessorsins. Auðvitað. Síðan er prófað eftir
þeirri röð sem nemendur hafa skráð sig á
blaðið (NB öll próf eru munnleg). Só far
só gúdd. Það sem manni finnst kannski
undarlegast er að það geta allir hlustað á
alla á meðan þeir eru spurðir út úr og á
einkunnina sem þú berð úr býtum og er
skráð í skólaskírteinið þitt. Þú valsar inn
og út af skrifstofunni, hlustar á nokkrar
spurningar og svör, kikir í glósur ef þú
heyrir spurningu sem þú ert ekki viðbúin,
huggar þá sem illa hefur gengið, sam-
gleðst með hinum... Hef engan hitt sem
veit hvað hugtakið „prófleynd" merkir.
„Sorrí guys, en kirkjan stendur
með Fini!“
Fyrir utan harmleiki í Lígúríu er helst ver-
ið að ræða það hvort leikskólakennurum
eigi að leyfast að vera samkynhneigðir.
Eða öllu heldur hvort samkynhneigðir
geti verið leikskólakennarar. Upphafsmað-
ur þessarar umræðu er Gianfranco Fini,
leiðtogi Alleanza Nazionale (flokksins sem
er lengst til hægri eftir því sem ég kemst
næst. Þrátt fýrir allan minn áhuga á stjórn-
málum, þá hefur mér ekki enn tekist að
komast alveg til botns í ítalska flokkakerf-
inu. Hvað þá stjórnmálunum sem slíkum.)
Hann lýsti því yfir í vinsælum sjónvarps-
þætti, Maurizio Constanzo Show, að sam-
kvæmt hans skoðun væru samkynhneigð-
ir algerlega óhæfir til að annast uppeldi
barna og gætu skaðað þau verulega.
Daginn eftír sá ég brot úr þættí sem var
að fjalla um þetta mál og það sýndi sig að
um það bil annar hver borgari var sam-
mála honum. Síðan var
kallaður tíl sjálfur Dario Fo
og ég ók mér í sætinu,
hnippti í samleigjanda
minn og var þess fullviss
að nú tæki nóbelskáldið
þennan Fini í bakaríið. Þar
misreiknaði ég mig hrapal-
lega. Fo var ekki bara sam-
mála honum, heldur sagði
hann hreint og klárt að ef
hann réði einhveiju í þessu
landi, þá myndi hann aldrei
leyfa að samkynhneigðir
störfuðu sem íþróttaþjálf-
arar, barnakennarar, sund-
eða leikfimikennarar, í
stuttu máli þar sem mikil
snerting væri á milli barn-
anna og hins fullorðna leið-
beinanda. Gæri haft alvar-
leg áhrif á börnin, ævina á
enda. Eins og þau myndu
breytast í litla perverta við
snertingu- „klukk!“ Blaða-
fyrirsagnirnar voru síðan í
þessum dúr:„Sorrí guys,
en kirkjan stendur með
Fini!“ Páfinn á heima hér.
Um daginn gistí ég tíl
dæmis hjá ömmu vinar
míns, sem er 86 ára. Amm-
an, það er. Vinur minn er
ekki nema þetta 25 ára
kannski. Hún býr í því
grísableikasta húsi sem ég
hef augum litið, í þorpi
sem er 100 kílómetra frá
Genúa. Hann sagði mér að
hafa ekki áhyggjur af
henni þótt ég heyrði hana
tuldra eitthvað og tóna undir miðnættið,
hún bæði alltaf með páfanum áður en hún
sofnaði. ,Já,já,“ sagði ég og hugsaði með
mér að líklega meinti hann að hún væri
ekki með fullum fimm. Það reyndist mis-
skilningur minn, því hún er í fullu fjöri og
páfinn talar alltaf í útvarp Maríu á kvöldin.
AE; ég veit ekki, hálftrúlaus eins og
maður er og með misjafnar skoðanir á
kaþólskunni og páfanum, þá var samt bara
notalegt að sofna með þau í eyrunum,
ömmuna og Wojtyla.
„Fyrir utan harmleiki í Lígúríu er helst veriö að ræöa þaö
hvort leikskólakennurum eigi að leyfast aö vera samkyn-
hneigðir. Eða öllu heldur hvort samkynhneigðir geti verið
leikskólakennarar. Upphafsmaður þessarar umræðu er
Gianfranco Fini, leiðtogi Alleanza Nazionale.“
O r ð e r u d ý r
Það er við hæfi að láta sjálfan
Þórberg Þórðarson eiga lokaorðin í
þessum síðasta orðadálki vetrarins.
Þórbergi var einkar lagið að orða
flóknustu fyrirbæri lífsins þannig að
öllum skildist og fara hér nokkrar
fleygar snilldarhendingar hans eftir:
„Sá sem veitir mannkyninu fegurð er
mikill velgerðarmaður þess. Sá sem
veitir því speki er meiri
velgerðarmaður þess. En sá sem
veitir því hlátur er mestur
velgerðarmaður þess.“
Bréf til Láru
„Það var svo leikandi einfalt á þessum
tímum að skilja út í ystu æsar
leyndardóma alheimsins, meðan
hugsunin var óflekkuð af saurgun
þekkingarinnar."
íslenskur aðall
„Líkami minn er undurfínt hljóðfæri
sem englar himinsins og djöflar
undirheima leika á tíl skiptis."
Bréftil Láru
„Megnið af volæði veraldarinnar
stafar af skortí á ímyndunarafli."
Bréftil Láru