Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.05.1998, Side 24

Stúdentablaðið - 01.05.1998, Side 24
<2 4 Stúdentablaðið Föstudaginn 3. apríl stóð Félag sagnfrœði- nema fyrir málfundi um sögu sundrung- ar og klofnings í íslenskri vinstri hreyf- ingu. Framsögumenn voru fjórir: Sagnfræð- ingarnir Gunnar Karlsson og Þór Whitehead, Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafrœðingur og Össur Skarphéðinsson alþingismaður og rit- stjóri. Hver þeirra fékk að taka á þessu efni eftir eigin ósk og hér birtist það helsta sem kom fram í ræðum þeirra. Kreppan ýtti á samfylkingu Þór Whitehead beindi sjónum að fyrri hluta aldarinnar, þeim klofningi sem varð á þriðja og fjórða áratug aldarinnar. Hann benti á að laust fyrir 1920 hafi vinstri flokkar í Evrópu verið að klofna. Þar hafi orðið til nýir komm- únistaflokkar sem á alþjóðlega vísu samein- uðust svo í stóra hreyfingu, Komintern árið 1919. Hér á landi snerist deilan innan vinstri hreyfingarinnar bæði um þær aðferðir sem beita ætti til að knýja fram ákveðið lokatak- mark í þjóðskipulagi, en einnig um lokatak- markið sjálft. Innan Alþýðuflokksins fengu hugmyndir um byltingu að hætti heimskommúnismans aldrei einróma fylgi. Þær deilur kristölluðust í ágreiningi um skipulag ASÍ og tengsl Alþýðuflokksins við samtökin. Kommúnistar lögðu áherslu á að slíta þann naflastreng sem var á milli þess- ara tveggja hreyfinga. _ Tengsl kommúnista við erlendar samfylk- ingar voru einnig ágreiningsefni á árunum 1922 til 1930 sem gerði það að verkum að kommúnískum hreyfingum var einfaldlega ekki hleypt inn í Alþýðuflokkinn. Samt reyndi flokksforystan að halda friði við rót- tækari arminn í lengstu lög og vonaðist til að byltingarandinn myndi eldast af kommúnist- um. En þó hlaut að fara sem svo að nýr flokk- ur yrði stofnaður og Kommúnistaflokkur Is- lands leit dagsins ljós árið 1930. Til varð stjórnmálaafl sem hafði ákveðna sérstöðu í íslenskri stjórnmálasögu: Yfirstjórn þess var í útlöndum. Meira að segja megi finna heim- ildir um að íslenskum liðsmönnum Komm- únistaflokks hafi þótt vanta meiri leiðbein- ingar frá Moskvu. En fljótlega fóru að heyrast hugmyndir um samfylkingu og ýtti kreppan mjög á það. Þær viðræður reyndust þó alltaf árangurs- lausar — einna helst reyndi Héðinn Valdi- marsson fyrir hönd forystu Alþýðuflokksins að halda lífi í því samkrulli. Fór svo að hon- um var vísað úr flokknum 1938 — hann kom að myndun Sameiningarflokks alþýðu - Sós- íalistaflokksins það ár. Griðarsáttmáli Hitlers og Stalíns hjálpaði ekki og sneri þessu samfloti í andhverfú sína. „I raun hafði aldrei verið möguleiki á heilsteyptu samstarfi kommúnista og jafnaðarmanna á þessu tímabili. Nema þá með þvi móti að kratar gerðust kommar eða kommar kratar. Og það stóð aldrei til, austrið gat ekki mætt vestrinu eins og þar stendur." Fylgisleysi miðið við Skandinavíu Gunnar Karlsson vék að seinni hluta þessar- ar aldar. Hann taldi að ef sundrung er mæld í fjölda flokka á vinstri væng stjórnmála, þá væri hún ekki meiri en gengur og gerðist á Vesturlöndum. Hér hafi vinstri hreyfingin rúmast fyrir í tveimur flokkum fyrir utan stutt tímabil er til voru flokkar á borð við Þjóðvarnarflokkinn, Samtök frjálslyndra og vinstrimanna og Bandalag jafnaðarmanna. I aðeins tveimur ríkjum hafi tekist að halda þessum öflum í einum flokki, í báðum tilvik- um hafi það heppnast með takmörkunum á lýðræði. í Bretlandi með kosningakerfi sem dregur mjög hlut stærstu flokkanna. I Vest- ur-Þýskalandi með því að banna kommún- isma og uppskera fyrir vikið einu hryðju- verkasamtök á Vesturlöndum sem kenndu sig við sósíalisma. Sundrung íslenskra jafnaðarmanna hafi geisað hvað harðast í ríkisstjórnasamstarfi. Á þeim átta áratugum sem eru liðnir frá því samsteypustjórnir fóru að myndast hafa vinstri flokkar aðeins átt aðild að ríkisstjórn- um í 43 ár. í einungis 9 ár hefur allur verka- lýðsarmurinn verið saman í sjórn. Mun al- gengara hafi verið að Alþýðuflokkurinn hafi setið í stjórn með borg- araflokkum án þess að hinn vinstri flokkurinn hafi verið með. Hlut- fallið er um 26 ár á móti þeim 6 þar sem Alþýðubandalagið hafi verið í stjórn á hlut- deild krata. Hér kemur tvennt til. I fyrsta lagi fylgisleysi vinstri flokkanna sam- anborið við t.d. Skand- inavíu. í öðru lagi hafi Alþýðuflokkurinn að takmörkuðu leyti skil- greint sig sem vinstri flokk. Ákveðin sam- búðarslit urðu milli Al- þýðuflokks og verka- lýðshreyfingar á árum seinni heimssfyijaldar þegar Sósíalistaflokkur fór fram úr í kjörfylgi. Alþýðuflokkurinn hafi í auknum mæli gerst vettvangur radda um markaðshyggju og var viðreisnarstjórnin þar augljós afrakstur. Gunnar taldi að þetta yrði ef til vill sögulegt framlag Alþýðuflokks- ins til íslenskra stjórnmála. „En þetta er af- skaplega fjarri því að vera vinstri pólitík og þess vegna gat flokkur sem tók upp þetta hlutverk auðvitað ekki orðið sameiningarafl vinstri manna.“ Af hverju viðhelst klofhlngur? Ólafúr Þ. Harðarson fjallaði um þessa þróun í erlendu samhengi. í flestum löndum Evr- ópu hafi varðveist flokkar sem eru gamlir kommúnistaflokkar eða vinstri flokkar sem sprottið hafa út frá þeim. Klofningurinn er því almennur og hann hefur haldist nær all- ar götur frá rússnesku byltingunni fram til dagsins í dag. Meginlínurnar eru að jafnað- armannaflokkarnir eru stórir öfugt við vinstri sósíalista sem mun oftar eru i stjórn- arandstöðu. Á tímabilinu 1970 til 1992 er samanlagt fylgi þessara tveggja flokka yfir 40% í 10 löndum Vestur-Evrópu. Af 18 ríkjum alls er ísland í 15. sæti þar sem meðaltals- fylgi A-flokka er 34% á tímabilinu. Aðeins Belgía, Sviss og írland eru þar neðar á list- anum. I einungis tveimur löndum eru vinstri sósíalistar fylgishærri en kratar; þ.e. Islandi og Ítalíu. í nær öllu löndum hafi flokkum vinstri sósíalista hnignað eftir fall múrsins en sennilega hafa jafnaðarmenn ekki að sama skapi orðið fyrir skakkaföllum, þeir hafi orðið miðjuleitnari. Ólafur velti því fyrir sér af hveiju klofning- urinn hafi haldist. I fyrsta lagi benti hann á þá kenningu í stjórnmálafræði að flokkar hafi tilhneigingu til að lifa sjálfstæðu lífi, jafnvel þó þeir séu fylgislitlir. Þetta þekkist úr hægri ekkert siður en vinstri pólitík. Þar má benda á Venstre og Konservativ í Dan- mörku sem um árabil voru saman í stjórn og málefnaágreiningur var ekki greinanlegur. I öðru lagi er deilt um stórpólitísk mál á milli þessara flokka. Jafnaðarmannaflokkar hafa orðið hagvaxtar-, Evrópu- og markaðssinn- aðir. Fólk sem aðhyllist t.d. umhverfisvernd og er á móti Evrópusamstarfi á erfitt með að finna sig í flokkum þeirra Blairs, Schröders, Persons og Rasmussens. Það sem þurfi að skýra sérstaklega varð- andi ísland er ekki klofningur vinstri sósí- alista og jafnaðarmanna. Á því sviði hefur ís- lensk pólitík enga sérstöðu. „En af hveiju hefur það gerst á íslandi, ólíkt flestum Evr- ópulöndum, að styrkleika- og stærðarhlut- föllin milli þessara flokka eru með allt öðr- um hætti hér heldur en þar?“ Sérstaða Sjálfstæðisflokks Össur Skarphéðinsson reyndi fyrst að finna svar við spurningu Ólafs Þ. Harðarsonar um mismun á styrkleika íslenskra vinstri flokka og sambærilegra flokka í Vestur-Evrópu. Hann taldi að muninn mætti að einhverju leyti skýra með samsetningu Sjálfstæðis- flokksins. Pólitiskt inntak og eðli hans væri svo gjörólíkt því sem þekktist hjá öðrum hægri flokkum í álfunni, a.m.k. þeim hægri flokki sem hann þekkti af eigin raun, Ihalds- flokki Margrétar Thatchers. „Það er stjarn- fræðileg firrð á milli þess flokks sem ég kynntist þar úti og þess Sjálfstæðisflokks sem ég hef kynnst á Islandi. Sjálfstæðis- flokkurinn býr ábyggilega einn hægri flokka að þeim sérstöku einkennum að hafa sterka verkalýðsforingja í sínum röðum. Hann tók jafnvel forystu úr höndum róttækra komm- únista í róttækustu verkalýðsfélögum eins og Iðju. Enn í dag á hann verkalýðsforingja á Alþingi Islendinga sem koma upp í pontu og taka mjög verkalýðssinnaða afstöðu." Þetta hafi þrengt svigrúm jafnaðarmanna- flokka til að taka til sín meira fylgi. Hann vék einnig að athugasemdum um Alþýðuflokkinn og tilhneigingu þar til að leita í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðis- flokki. Gat hann þar einkum beint sjónum að þeirri stjórn sem hann tók þátt í, Viðeyj- arstjórninni frá 1991.1 kosningu um stjórn- arsamstarfið innan þingflokks Alþýðu- flokksins hafi þeir sem oft hafi kvartað yfir hægri slagsíðu flokksins, stutt þessa stjórn- armyndun. Enda hafi sú stjórn ekki verið mynduð að ástæðulausu, hún hafi haft það mikilvæga hlutverk að tryggja samþykkt samnings um Evrópska efnahagssvæðið. Ekki var talið að sátt myndi ríkja um það at- riði í stjórnarsamstarfi Alþýðuflokks, Al- þýðubandalags og Framsóknarflokks. Flokkana á að sameina „Enn þann dag í dag er málefnalegur ágrein- ingur á milli þessara flokka. En hann nær varla niður fyrir forystusveit þeirra. Hann er ekki til á milli fótgönguliðsins í Alþýðu- flokknum og Alþýðubandalaginu. Ágrein- ingurinn liggur í afstöðu roskinna alþingis- manna í Alþýðubandalaginu til hins klass- íska þrætueplis þessara tveggja hreyfinga, á sviði utanríkismála um NATO og Evrópu- samstarf," segir Össur. Ágreiningsefnin eru þvi ekki djúpstæð og ættu ekki að vera langvarandi. Össur velti fyrir sér hvernig samstarf menn vilji „Sú samfylking sem sumir alþýðu- bandalagsmenn leggja til og vilja þar með halda gömlu flokkunum óbreyttum, er ófull- nægjandi fyrir mig. Aðrir vilja stíga skrefið aðeins lengra og fara í sameiginlegt fram- boð, það er að mínu mati aðeins áfangi. Það á að leggja þessa flokka sem fyrst niður og stofna nýjan, sameinaðan flokk jafnaðar- manna. Ef sameiginleg framboð í sveita- stjórnarkosningunum vinna sigur, mun það virka sem sprengikraftur á þessa þróun.“

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.