Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 12
3. október 2009 LAUGARDAGUR
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
. Kanarí
Verð kr. 119.900 – 25 nætur
Frá kr. 149.900 – 30 nætur
Frá kr. 119.900
Glæsilegar haustferðir
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á
Kanaríeyjum í haustferðirnar 25. október í 30
nætur eða 24. nóvember í 25 nætur á frábæru
tilboði. Í boði er m.a. frábært „stökktu tilboð“ auk
sértilboða á Parquemar og á hinu vinsæla Jardin
del Atlantico íbúðahóteli með öllu inniföldu á
hreint ótrúlegum kjörum.
Ath. verð getur hækkað án fyrirvara!
25. okt. & 24. nóv.
Frá kr. 169.900
– með „öllu inniföldu“
ÓTRÚLEG SÉRTILBOÐ!
Ný jólaferð!
14 nætur frá kr. 119.500
Tryggðu þér sæti strax!
NÝTT!
Jardin A
tlantico
með „ö
llu innifö
ldu“
690,
399,
.990,
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþing-
is telur ekki ástæðu til að gera
athugasemdir við þá ákvörðun Ein-
ars K. Guðfinnssonar, þáverandi
sjávarútvegsráðherra, að heimila
hvalveiðar.
Tvö hvalaskoðunarfyrirtæki
kvörtuðu til umboðsmanns þar
sem þau töldu ákvörðun ráðherra
um að leyfa hvalveiðar ólöglega,
sem og ákvörðun Steingríms J.
Sigfússonar, sem tók við ráðherra-
dómi af Einari, að hrófla ekki við
þeirri ákvörðun.
Töldu fyrirtækin leyfisveiting-
arnar ekki hafa byggst á haldbær-
um rökum. Á það féllst umboðs-
maður Alþingis ekki. - bj
AKRANES Tölvufyrirtækið Omnis
hefur kært Akraneskaupstað til
kærunefndar útboðsmála fyrir
ákvörðun bæjaryfirvalda um
að framlengja samning sinn við
Tölvuþjónustuna SecurStore. Fallið
var frá útboði og ákveðið að semja
við fyrirtækið til 18 mánaða.
Líkt og Fréttablaðið hefur greint
frá hefur minnihluti bæjarstjórn-
ar gagnrýnt meirihlutann í mál-
inu. SecurStore er í eigu Arnar
Gunnarssonar, sem er sonur Gunn-
ars Sigurðssonar forseta bæjar-
stjórnar, og Bjarna Ármannssonar.
Bæjarráð fól bæjarstjóra í sumar
að undirbúa útboð á tölvuþjón-
ustunni. Á öðrum fundi var bæj-
arstjóra einnig falið að leita eftir
afslætti á fyrirliggjandi samning-
um. Bæjarstjórn samþykkti síðan
framlengdan samning við Secur-
Store með 25 prósenta afslætti, í
stað þess að fara í útboð.
Omnis krefst þess að sá samn-
ingur verði stöðvaður, eða gerður
ógildur hafi hann þegar verið gerð-
ur, og bæjaryfirvöldum gert að
bjóða þjónustuna út. Þá er nefndin
beðin að láta í ljós álit sitt á skaða-
bótaskyldu bæjarfélagsins.
Eggert Herbertsson, fram-
kvæmdastjóri Omnis, segir fyrir-
tækið hafa unnið forvinnu vegna
fyrirhugaðs útboðs sem aldrei
varð af. Tilboð þess hefði sparað
bæjarfélaginu rúmar 11 milljónir
króna á samningstímanum. Hann
hafi sent inn tilboð sem aldrei hafi
verið svarað.
Nokkuð hefur verið deilt um
kostnað við tölvuþjónustuna. Gísli
sagði við Fréttablaðið 12. sept-
ember að kostnaður við hýsingu
og afritun væri um sex milljónir.
Það er undir viðmiðunarmörkun
um útboð í innkaupastefnu bæj-
arins og lögum um opinber útboð,
sem er 10 milljónir króna.
Eggert segir hins vegar að það
sé ekki nema brot af kostnaði bæj-
arins við samninginn. Mun fleira
felist í þjónustunni og heildar-
kostnaður sé yfir 20 milljónir á
ársgrundvelli. Samningur til 18
mánaða sé því um 30 til 35 millj-
óna króna virði og útboðsskyld-
ur.
Þetta er í annað skipti sem fall-
ið er frá því að bjóða tölvuþjón-
ustu bæjarins út. Árið 2008 var
samið við SecurStore og bókun
bæjarráðs frá 25. október 2007 um
útboð var þar með snúið við. Eyj-
ólfur R. Stefánsson tölvunarfræð-
ingur kærði þá ákvörðun til sam-
gönguráðuneytis sem úrskurðaði
hana lögmæta. kolbeinn@frettabladid.is
Kærir Akra-
nesbæ vegna
tölvusamnings
Tölvufyrirtækið Omnis hefur kært Akraneskaup-
stað til kærunefndar útboðsmála fyrir að fram-
lengja samninga um tölvuþjónustu í bænum. Í
tvígang hefur verið fallið frá útboði.
AKRANES Enn er deilt um samninga um tölvuþjónustu bæjarins. Nú hefur ákvörðun
bæjarstjórnar verið kærð til kærunefndar útboðsmála. Kærandi segir upphæð samn-
ingsins gera hann útboðsskyldan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EGGERT
HERBERTSSON
GÍSLI S.
EINARSSON
Kvartað yfir hvalveiðum til umboðsmanns Alþingis:
Telur ekki tilefni
til athugasemda
EINAR K. GUÐ-
FINNSSON