Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 40
2 fjölskyldan Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sigríður Björg Tómasdóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Í einkaeigu Pennar: Vera Einarsdóttir, Karen Kjartansdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Benedikt Jónsson benediktj@365.is Sólveig Gísladóttir skrifar BÓKIN Bangsímon snýr aftur Bókin um Bangsímon er nú komin út í íslenskri þýðingu – í annað sinn. Bókin kom út í þýðingu Guðmundar Andra Thorssonar fyrir ári en seldist upp og var uppseld þegar Guðmundur Andri hlaut barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir best þýddu barna- bókina síðastliðið vor. Aðdáendur gátu í þetta sinn tryggt sér eintak í forsölu til að gulltryggja að þeir eignuðust bókina góðu og nýttu nokkur hundruð manns sér það tækifæri að sögn Jóhönnu Ásmundsdóttur markaðsstjóra Eddu sem gefur bókina út. Bók númer tvö í bókaflokknum, Húsið á bangsahorni, er einnig væntanleg í verslan- ir, nú um helgina eða rétt eftir helgi. Bækurnar eru með upphaflegum myndum og í vandaðri útgáfu sem augljóslega hittir í mark hjá lesendum sem þekkja hann ef til vill margir hverjir í stílfærðri útgáfu Disney. Bangsímon, sem á frummálinu heitir Winnie the Pooh, birtist lesendum fyrst árið 1926 og er bangsinn því orðinn rúmlega áttræður. Höfundurinn A.A.Milne notaði son sinn og tuskudýrin hans sem fyrirmyndir þegar hann stakk niður penna. Í upphafi meðgöngu hafði ég sterkar skoðanir á því hvernig svefnvenjum verðandi erfingja skyldi háttað. Það skyldi verða rútína, barnið myndi sofna í eigin rúmi og svei því ef ég ætlaði að standa í því að fá gríslinginn upp í rúm til mín í tíma og ótíma. Svo kom hún í heiminn þessi litla dásemd og allur góður ásetningur fór forgörðum. Allt var gert til að halda barninu góðu, kannski ekki síst vegna síþreytu okkar foreldranna sem höfðum ekki þrek til að hlusta lengi á vol og væl. Stúlkan komst fljótt upp á lagið að vefja foreldr- unum um fingur sér. Eitt lítið bofs og við stukkum til, til að hugga, sussa, bía og vagga aftur í svefn. Smám saman þróaðist kvöldskipanin út í það að ég eða maðurinn minn fórum með barnið inn í rúm, leyfðum því að drekka pela í hjónarúminu og lágum svo hjá því þangað til það sofnaði. Síðan færðum við hana, ofurvarlega, úr stóra rúminu í rimlarúmið og læddumst á tánum út úr herberginu. Yfirleitt gekk þessi rútína nokkuð vel, stúlkan sofnaði án mikilla vandræða og við vorum glöð að eiga svona þægt barn. Þegar leið fram yfir eins árs aldur fór að bera á þrjósku, sjálfstæði og frá- muna frekju hjá englinum ljúfa sem virtist nú fallinn. Kvöldskipanin breyttist úr þægilegu ferli í martröð. Stúlkan velti sér og bylti, settist upp og spjallaði rétt í þann mund sem ég hélt að hún væri sofnuð. Þetta myndaði togstreitu milli okkar foreldranna og við vorum farin að velta fyrir okkur að draga strá að kvöldi til að ákveða hvort okkar skyldi eyða drjúgum tíma í svæfingar. Svo var það eitt kvöldið að móðirin fékk nóg. Eftir klukkutíma armæðu og sjálfs- efa ákvað ég að taka stórt skref. Skellti barninu í rúmið sitt, gekk út og hallaði hurðinni. Svo beið ég meðan barnið öskr- aði yfir þessu óréttlæti heimsins. „Ég gef þessu tíu mínútur,“ hugs- aði ég með hnút í maganum. Fimm mínútum síðar sló þögn á svefnherbergið. Krakkinn var sofnaður. Hallelúja! Næstu kvöld voru gerðar tilraunir með þetta fyrirkomulag enda töldum við að þetta væri of gott til að vera satt. En stundum er maður bara heppinn í lífinu og í dag sofnar barnið mitt eitt á hverju kvöldi. Dvel ég í draumahöll Mæðginin Myrra Leifsdóttir og Eldur Lynx æfa bæði taekwondo með Glímufélaginu Ármanni. Myrra er að hefja sitt annað ár en Eldur er kominn önn lengra. En hvern- ig kom það til að móðirin fetaði í fótspor sonarins? „Eld langaði að byrja að æfa einhverja bardagaíþrótt. Ég fór að skoða það sem var í boði og leist best á taekwondo-deild Ármanns. Þar var einstaklega vel tekið á móti honum og yfirþjálfarinn Írunn Ketilsdóttir er frábær með börn. Ég sat og fylgdist með Eldi á æfingum og fann að mig langaði líka að prófa. Ég fór að spyrjast fyrir um fullorðinsæfingar og var bara sagt að mæta. Írunn, sem er með svarta beltið, sagði mér að hún hefði sjálf smitast af syni sínum, komin eitthvað yfir tvítugt. Það var mér mikil hvatning,“ segir Myrra. Hún bendir á að taekwondo sé íþrótt sem hægt sé að byrja að æfa á hvaða aldri sem er. „Pabbi minn er meira að segja að velta því fyrir sér að koma með okkur.“ Eldur er nú kominn með gula beltið og stefnir að því appelsínugula en Myrra stefnir að því að taka gula beltið í vetur. Hún segir íþróttina fela í sér jákvæð- an kraft. „Taekwondo gengur mikið út á að brjóta og veitir það sjö ára strákum mikið öryggi að ráða við að brjóta þykka viðarspýtu eða að sjá kennarana fara í gegnum múrstein. Eins fylgir því mikil hvatning að taka nýtt og nýtt belti.“ En hvernig líkar Eldi það að þú skulir æfa sömu íþrótt og hann? „Honum finnst það frábært. Það er svo mikil speki í kringum taekwondo. Hann þarf að læra orð og tölur á kóresku og nú þegar ég er byrjuð að æfa á ég auðveldara með að hjálpa honum. Ég er líka betur inni í hugmyndafræðinni og því sem hann er að gera og það hefur reynst mjög vel. Þá er mikið félagslíf og foreldrastarf í kringum íþróttina og honum finnst mikið öryggi í því að sjá mig vera að mausa eitt- hvað í kringum starfið, en ég hef meðal annars tekið að mér að gera grafík og annað fyrir félagið,“ segir Myrra, sem er listakona. Myrra er um þessar mundir að leggja lokahönd á búninga fyrir Nemendaleik- húsið en útskriftarnemar á fjórða ári í leiklistardeild Listaháskóla Íslands munu frumsýna Eftirlitsmanninn eftir Nik- olai Gogol hinn 9. október næstkomandi. Eins er Myrra með þriðju Dagatalsbók- ina Konur eiga orðið allan ársins hring á prjónunum en hún gerir myndskreyt- ingar við 64 setningar íslenskra kvenna og kemur bókin út hjá Sölku hinn 20. nóvember næstkomandi. - ve Saman í taekwondo Mæðginin Eldur og Myrra deila sama áhugamáli en þau æfa bæði taekwondo. Það gefur Myrru góða innsýn í reynsluheim Elds og hann er hæstánægður með mömmu sína. Samstillt mæðgin Eldi líkar það vel að mamma hans skuli æfa sömu íþrótt og hann sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822 www.polarnopyret.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.