Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 90
54 3. október 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Æðislega
kósí rönd-
ótta og síða
vetrarpeysu
frá Max Mara.
Fæst hjá GK,
Laugavegi.
Tryllta skó frá Kron by Kron
Kron sem eru sannkölluð lita-
og mynsturssprengja.
Fyrsti snjórinn féll í síðustu viku og margar
konur væntanlega farnar að spá í að taka fram
pelsinn eða fjárfesta í gæðalegum og hlýjum flík-
um. Það er líka alltaf fallegt að setja á sig mörg lög
af mjúkri ull og ekkert nema svalt við það að vera
með stóran trefil og flotta húfu. Snið á kápum og
loðfeldum þetta haustið eru margvísleg og bæði er
mikið verið með víðar flíkur til jafns við klassísk-
ari þrengri kápur.
Hér er smá innsýn í hvernig hönnuðirnir Dolce
og Gabbana, Ricardo Tisci fyrir Givenchy og Chris-
topher Bailey fyrir Burberry tækla veturinn. - amb
AÐ KLÆÐA AF SÉR VETURINN:
LOÐFELDIR
OG KÁPUR
LOÐNIR FÆTUR Það væsir ekki
um kaldar tær í þessum dásam-
legu loðstígvélum frá Givenchy.
VÍTT Flottur víður pels yfir leggings
og pils úr grárri ull frá Burberry.
GRÁTT Falleg
og klassísk
buxnadragt
frá Dolce &
Gabbana.
KÓSÍ Þessi
loðna taska
frá Givenchy
minnir á hlýjan
kjölturakka
undir hand-
leggnum.
KLASSÍSK Töff og þröng
svört kápa við há leður-
stígvél frá Givenchy.
SVART
OG HVÍTT
Dásamlega
falleg kápa
frá Givenchy
sem minnir á
mexíkóskotið
rokk og ról.
Nýja rakagef-
andi meikið frá
Bobbi Brown
sem er ótrúlega
eðlilegt og veitir
húðinni ljóma.
> TÍSKUSÝNING ESKIMO
Í dag verður vegleg sýning á hausttískunni í Smáralind
þar sem fyrirsætur frá umboðsskrifstofunni Eskimo
sýna. Tískuhönnuðurinn Ási Ásmundsson hefur látið
útbúa forláta gyllt svið og það verða þrjár sýningar yfir
daginn, sú fyrsta kl. 13, önnur kl. 14.15 og svo undir-
fatasýning kl. 17.
Það er eitt dálítið einkennilegt við þennan eilífa pörunarleik mannkyns-
ins. Ég furða mig oft á því að hjá mörgum virðist það vera þannig að
það að fara út á lífið og hafa fyrir því hvernig maður lítur út sé eitthvað
sem er einungis gert í því skyni að finna maka. Þegar slíkt ferli svo
heppnast þá tekur þetta sama glæsilega fólk sig til og ákveður að fyrst
það hefur fundið draumalífsförunautinn þá sé gersamlega tilgangslaust
að gera nokkuð annað en að kúra saman heima í sófanum yfir Domi-
no‘s pizzu og spólu. Flestir hafa nú sennilega dottið i þá gryfju að fitna
aðeins þegar þeir fara í fast samband enda ótrúlega freistandi að eyða
nautnalegum kvöldum saman í matar- og rauðvínssukki. En þegar stór-
glæsileg og skemmtileg pör nenna varla út úr húsi lengur né úr jogging-
gallanum nema þá til að stoppa í Bónusvídeó þá er slíkt farið að ógna
sjálfstraustinu og jafnvel sambandinu. Auðvitað er það alveg yndis-
legt þegar manneskju finnst maður alltaf fallegur. Hvaða kona kann-
ast ekki við það að hlæja að sturluninni þegar kærastinn hennar segir
henni að hún sé aldrei fallegri en nývöknuð með bauga niður á tær og
hárið út í loftið. „Þessir karlmenn“, flissum við en gleymum því að þeim
finnst við líka alveg voðalega sætar í pinnahælum með rauðan vara-
lit. Hvenær byrjar svo þessu fólki að verða sama um hvernig það lítur
út? Þetta byrjar kannski með því að í stað kynþokkafulls nærfatnaðar
koma gamlar slitnar Sloggibuxur, næst er það andlitsmaskinn í rúmið í
stað varalitarins og á endanum eru hlutir eins og að fjarlægja líkams-
hár orðnir algjörlega óþarfi. Hvað strákana varðar þá kannski nenna
þeir ekki að raka sig lengur, ræktin verður minningin ein og allt í einu
finnst þeim góð hugmynd að ganga í sömu sokkunum í fimm daga sam-
fleytt. Svo geta slíkir hlutir verið partur af einhverskonar krípí sál-
rænum leik milli manns og konu. Kona sem ég þekki er gift manni sem
þolir ekki þegar hún fer út á lífið í stuttu pilsi eða lætur sjást í brjósta-
skoruna. Samkvæmt honum ætti hún væntanlega bara að sitja heima í
búrku. Sumir segja að það sé hluti af sannri ást að þurfa ekkert að spá
í það lengur hvernig maður lítur út, svona eins og maður gerði þegar
maður var einhleypur. En aðrir myndu sennilega telja að þegar manni
byrjar að vera alveg sama um hvernig maður lítur út þá sé maður í
rauninni að segja hinum aðilanum að manni sé alveg sama um hvað
þeim finnst um mann lengur.
Jogginggallagildran
OKKUR
LANGAR Í
…
Aðalvinnin
gur
er glæsileg
Lenovo fart
ölva!
ideapad
10. HVER
VINNUR!
Vinningar afhentir í ELKO Lindum.99 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Leik lýkur 23.10.09
SENDU SMS ELKO LTV
Á NÚMERIÐ 1900 OG SVARAÐU SPURNINGU!
Þú gætir unnið Lenovo fartölvu!
Kíktu á nýjan og glæsilegan fartölvuvef
www. .is/fartolvur
Aukavinningar eru: GSM Sími · DVD myndir · Bíómiðar · Pepsi · Geisladiskar og margt fleira.