Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 28
28 3. október 2009 LAUGARDAGUR
H
run bankanna í byrj-
un október í fyrra
þurfti ekki að koma
nokkrum manni á
óvart. Þetta blasti
við. Og hafði gert lengi.
Engin leið er að henda reiður á
hve oft útlendingar höfðu mánuðina
og misserin á undan bent á veik-
ar stoðir íslensku bankanna. Þeir
sögðu þá alltof stóra, fjármögnun
þeirra dýra og útlánastefnuna var-
hugaverða. En við kunnum svör við
þessum dylgjum, eins og við köll-
uðum viðvörunarorðin. Þið eruð
asnar, sögðum við, og hafið ekki
hundsvit á bankarekstri. Vitið
ekkert um íslenskan dugnað og
útsjónarsemi. Fattið ekki að and-
legt atgervi okkar er á öðru stigi
en annarra.
Útlensku sérfræðingarnir gátu
lítið annað gert en að hrista haus-
inn yfir þessari veruleikafirringu
smáþjóðarinnar og héldu áfram
að greina stöðuna. Niðurstaðan
var alltaf sú sama. Stoðir íslensku
bankanna eru veikar.
Á einhvern óskiljanlegan hátt
höfðum við bitið í okkur að við
kynnum öðrum þjóðum betur að
reka banka. Og gott betur en það;
við stæðum þjóða fremst í öllum
bisness.
Við, segi ég, og á þar við íslenska
þjóð. Þeir sem samsinntu útlending-
unum taki sjálfa sig út fyrir sviga.
Svo kom auðvitað að því. Þetta
hrundi allt saman.
Aðdragandi hrunsins er í stuttu
máli svona. Menn eignast litla
banka og vilja gera þá stóra.
Aðstæður í heiminum eru þeim
hliðhollar, blússandi framboð og
eftirpurn eftir peningum. Ekkert
annað en kjarkur skildi milli feigs
og ófeigs.
Okkar menn voru dyggilega
studdir af ráðherrum og sjálfum
forsetanum sem ferðaðist heims-
horna á milli til að greiða fyrir
hvers kyns viðskiptum. Bankarn-
ir voru fínustu vinnustaðirnir í
bænum og þangað lá leið fólks eftir
háskólanám með viðkomu hjá Sæv-
ari Karli og B&L.
Allt var í fínasta lagi og unnið
eftir mottóinu heimsyfirráð eða
dauði. Dauðinn var samt aldrei í
kortunum, það hvarflaði ekki að
bankamönnunum að þetta kynni
að fara illa. En auðvitað fór það
þannig. Menn gleymdu sér í látun-
um. Og svo kom á daginn að þessi
fyrirtæki voru bara skýjaborgir.
Sagt er að fjölmiðlarnir hafi
sofið á verðinum. Sannleikurinn er
sá að blöðin fluttu mýgrút frétta af
áhyggjum manna af stöðu íslensku
bankanna.
Sjáið þið forsíðu
Fréttablaðsins frá 18.
mars í fyrra. Einn lýsir
áhyggjum af að bank-
arnir og ríkið geti ekki
staðið við skuldbind-
ingar sínar og annar
segir bankana ekki
njóta trausts á mörkuð-
um. Þarna sjást geng-
ið og úrvalsvísitalan í
frjálsu falli og bensín-
verð í hæstu hæðum.
Á myndinni er Birg-
itta Jónsdóttir að
mótmæla framferði
Kínverja gagnvart
Tíbetum. Rúmu ári
síðar var hún kjörin
á þing. Á þessari for-
síðu er líka sagt frá
því að Hreiðar Már
Sigurðsson dans-
aði Michael Jack-
son-dansa á árs-
hátíð Kaupþings
helgina áður. Ætli
hann dansi mikið í
dag?
Lok september
Það dró til tíðinda í lok septemb-
er í fyrra. Ríkið ætlaði að taka
Glitni yfir að ráði Seðlabankans.
Þjóðnýting, var orð sem ekki hafði
heyrst lengi. Í framhaldinu fór allt
af stað.
Jón Ásgeir kallaði gjörninginn
bankarán, sumir sögðu yfirtökuna
óþarfa og fráleita en aðrir töldu
hana nauðsynlega aðgerð. Óvissa
ríkti um áhrif þessa inngrips
og til marks um það sagði
Geir Haarde daginn sem
yfirtakan var kunngerð að
hinir bankarnir stæðu vel
og því ekki líklegt að þeir
þyrftu aðstoðar ríkisins
við. Úbbs.
Það spurðist líka í þess-
ari viku að Davíð Oddsson
hefði orðað þjóðstjórn á
ríkisstjórnarfundi.
Tvær auglýsingar í
Fréttablaðinu 30. sept-
ember 2008 eru öðrum
athyglisverðari. Í ann-
arri auglýsa Heimilistæki
flatskjái á aðeins 249.995
krónur. Í hinni boðar
Glitnir viðskiptavini
sína á fund til að svara
spurningum þeirra um
hvort þeir þurfi að hafa
áhyggjur.
Helgin 4. og 5. október
Helgina 4. og 5. október
hreiðraði Geir Haarde
um sig í Ráðherrabú-
staðnum við Tjarnar-
götu og kallaði til sín
aðra ráðherra, sér-
fræðinga, bankamenn og hags-
munaaðila víða að úr samfélaginu.
Alls nokkra tugi manna.
Flestir strunsuðu upp og niður
tröppurnar, ábúðafullir eftir efninu
auðvitað, en þriggja skrefa stökk
Björgólfs Thors varð frægt.
Ekki fengust nákvæmar upplýs-
ingar um hvað var á seyði en einn
sagði þjóðina hanga í snöru og
annar lýsti verkefninu sem björg-
unarleiðangri.
Búist var við að Geir myndi
kynna „aðgerðapakka“ á sunnu-
dagskvöldinu ef af því varð ekki.
Þvert á móti sagði hann að dreg-
ið hefði úr spennu í efnahagsmál-
um og því ekki þörf á sérstökum
aðgerðapakka.
Fólki létti vitaskuld við þessi orð
þótt mótsögn fælist í ríkri áherslu
hans á að innstæður sparifjáreig-
enda í bönkunum væru tryggar.
Mánudaginn 6. október fór svo
aftur allt á annan endann.
Geir flutti Guð blessi Ísland-
ávarpið sitt og Alþingi samþykkti
neyðarlögin svonefndu. Daginn
eftir var þeim beitt með hreinni og
klárri yfirtöku á Glitni og Lands-
bankanum og þremur dögum síðar
var Kaupþing tekið yfir.
Fljótlega fóru menn að tala um
Icesave, þá tæru snilld, eins og
Sigurjón Árnason hafði áður kall-
að þessa reikninga Landsbankans
í Bretlandi og Hollandi. Snilldin sú
var allt í einu orðið helsta vanda-
mál Íslands. Og er enn heilu ári
síðar.
Milliríkjadeila var stað-
reynd, Gordon Brown var her-
skár og beitti hryðjuverkalögum á
Landsbankann. Hann taldi Ísland í
raun gjaldþrota.
Viðskipti íslenskra og breskra
fyrirtækja voru í uppnámi. Öll
milliríkjaverslun var raunar í öng-
stræti þar sem Ísland naut ekki
trausts í útlöndum.
Bresku blöðin spöruðu ekki stóru
orðin föstudaginn 10. október eins
og sjá mátti á forsíðu Fréttablaðs-
ins þann dag.
Fram að haustdögum 2008 var
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn í
hugum Íslendinga stofnun sem
hjálpaði þróunarríkjum. Í kjölfar
hrunsins fóru menn af fullri alvöru
að tala um að forsenda endurreisn-
ar efnahagslífsins væri samstarf
við þann sama sjóð. Vorum við þá
orðið þróunarríki?
Undir miðjan október unnu
íslensk stjórnvöld að samningu
efnahagsáætlunar til að leggja
fyrir sjóðinn og hálfum mánuði
síðar var óskað formlega eftir
samstarfi. Nokkrum dögum síðar
var skrifað undir samning þar um
og nákvæm áætlun um tímasett-
ar aðgerðir kynnt. Hún hefur ekki
gengið eftir. Enn er beðið endur-
skoðunar sem átti að fara fram í
febrúar.
Stiklum nú á stóru
14. okt. Ingibjörg Sólrún vill
Davíð Oddsson úr Seðlabankan-
um.
15. okt. Tryggvi Þór Herbertsson
hættir sem efnahagsráðgjafi
forsætisráðherra. Þeir voru ekki
sammála um leiðir.
16. okt. Upplýst er að Baldur Guð-
laugsson, ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu, seldi hlutabréf
Auðvitað hrundi
þetta allt saman
Ár er síðan bankarnir féllu og gjörvallt efnahagskerfið fór á hliðina með til-
heyrandi áhrifum. Björn Þór Sigbjörnsson lítur í gömul blöð og staldrar við
nokkra minnisstæða atburði.
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
EFNAHAGSMÁL „Horfurnar eru ekki góðar,“ segir Finnur Árnason, for-stjóri Haga, og telur verðhækk-anir fram undan í kjölfar mikillar gengislækkunar krónunnar undan-farna daga. Undir það taka fleiri verslunarmenn. Vilhjálmur Egils-son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir þetta stað-festa það skipbrot sem peninga-stefna Seðlabankans hafi beðið. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambandsins, segir þessa þróun mikið áhyggjuefni.Alþjóðlega viðskiptafrétta-veitan Bloomberg sagði í gær að íslenska krónan hefði lækkað gagnvart öllum 178 gjaldmiðlun-um sem veitan fylgist með. Krónan hefur aldrei áður veikst jafnmikið milli daga, um sjö pró-sent, frá því flotgengi hennar var tekið upp árið 2001. Auknar áhyggjur af að bankarnir og ríkið gætu ekki staðið við fjárhags-legar skuldbindingar segir Bloom-
berg hafa haft þessi áhrif. Álag á skuldatryggingar, sem lánveit-endur kaupa gegn hugsanlegu tapi, hefði hækkað í kjölfar vanga-veltna um að ríkisvaldið þyrfti að bjarga einum bankanum vegna áhrifa lánsfjárkreppunnar.„Íslenska krónan verður einna harðast úti vegna undirmáls-kreppunnar í Bandaríkjunum og áhrifa hennar á lánsfjármarkað-inn,“ segir í greiningu Ulrich Leuchtmann hjá Commerzbank. „Búast má við að krónan veikist enn frekar.“
Sérfræðingar hér innanlands rekja hins vegar veikingu krón-unnar fremur til almennrar áhættufælni á fjármálamörkuð-um, enda lækkuðu aðrar hávaxta-myntir líka. Þá er sagt ýta undir fall krónunnar að hér hefur þurrk-ast út ábati af gjaldeyrisviðskipt-um með krónunna vegna tregðu fjármálafyrirtækja til að láta frá sér erlendan gjaldeyri.
Greiningardeild Kaupþings segir seljanleika krónunnar hafa minnkað verulega vegna mót-byrsins á alþjóðlegum fjármála-mörkuðum. Kallað er eftir því að Seðlabankinn bregðist við og útvegi bönkunum gjaldeyri með skiptasamningum til skemmri tíma, en í þeim efnum er smæð gjaldeyrisforða bankans sögð hamla aðgerðum.
Einnig hafa verið uppi hug-myndir um að ríkisvaldið gefi út víxla til skemmri tíma sem erlendir fjárfestar, sem vilji nýta sér háa vexti krónunnar, geti keypt.
„Ég vona að þetta endi vel varð-andi Ísland, en ef við hugum að því sem gerðist hjá Bear Stearns eru horfur verri en fyrir viku,“ segir Paal Ringholm, forstöðu-maður greiningardeildar láns-fjármarkaða hjá First Securities í Noregi, sem er hluti af Swedbank AB. „Allir bankar eru háðir fjár-
mögnun og í dag njóta íslenskir bankar ekki trausts á markaðn-um.“ - sjá síður 4, 6 og 14
Smá
Guðrún Jóhannsdóttir matgæðingur hefur skrifað
tvær handhægar matreiðslubækur, Hollt og ódýrt og
Hollt og fljótlegt sem Salka gefur út.
„Í mínum huga er hollur matur fyrst og fremst fólginn í
fjölbreytni,“ segir Guðrún sem er óhrædd við að prófa nýj-
ungar í matargerð og lítur á það sem ævintýri að fara í sér-
staka leiðangra að leita að kryddi.
Lesendur Fréttablaðsins þekkja Guðrúnu að góðu. Hún
hefur verið með matarpistla og uppskriftir í blaðinu í rúm
þrjú ár undir yfirskriftinni Til hnífs og skeiðar. Lengi vel
miðuðust hráefniskaup við þúsundkallinn og hafa áreiðan-
lega margir blessað Guðrúnu í huganum fyrir lækkaðan
matarreikning. Nú eru þessar uppskriftir komnar út á bók
sem heitir Hollt og ódýrt. „Sumar uppskriftirnar hafði ég notað sjálf í mörg ár en
aðrar voru þróaðar næstum jafnóðum með tilraunastarf-
semi því ég hef alla tíð verið forvitin og óhrædd við að prófa
mig áfram. Mér þykir gaman að sækja í matreiðsluhefðir
annarra landa og gera mínar útfærslur á réttunum og finnst
líka frábært hversu framboð af góðu og fjölbreyttu hráefni
hefur aukist hér á landi. Í þeim meðbyr sem ég haft í sam-
bandi við pistlana finn ég að margir eru opnir fyrir því að
prófa uppskriftir og spennandi krydd úr fjarlægum álfum.
Mér finnst hugmyndin um að ferðast með bragðlaukunum
heillandi.“
Spurð hvernig gangi að halda kostnaði niðri en vera samt
með framandi hráefni svarar hún: „Margt af því sem til-
heyrir ítalskri og austurlenskri matargerð er frekar ódýrt
en í bókinni Hollt og fljótlegt einskorða ég mig ekki bara
við ódýru uppskriftirnar. Guðrún tekur sjálf myndirnar í bækurnar. „Þegar ég
byrjaði á pistlunum þá vildi ég ekki binda mig við að fá ljós-
myndara á ákveðnum tíma heldur elda réttinn þegar það
hentaði mér og innblásturinn kom. Ég hafði föndrað við
ljósmyndun og ákvað að taka myndirnar sjálf. Svo hefur
það þróast yfir í mikla ástríðu og áhuga á matarljósmynd-
un. Það má því segja að hér sé algert tilraunaeldhús.“
Guðrún gefur lesendum Fréttablaðsins uppskrift að
ítölskum tvíbökum á bls. 6.
Óhrædd við að prófa sig áfram
ÍSLENS
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
18. mars 2008 — 77. tölublað — 8. árgangur
RAKEL HÚNFJÖRÐ
Þægilegt á ferðum að þurfa ekki tannkrem
heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ungmenni flykkjast
í leikhús
María Sigurðardóttir
kemur sér fyrir í
Samkomuhúsinu á
Akureyri.
TÍMAMÓT 20
ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN
Stóra stundin rennur upp í kvöld
Sérblað um íslensku tónlistarverðlaunin
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Dansaði eins og Jackson
Hreiðar Már Sigurðs-
son fór á kostum á
árshátíð Kaupþings.
FÓLK 34
VORLEGT Í dag verður hæg breyti-leg átt. Bjartviðri austan til, annars þungbúnara og víða dálítil súld vestan til á landinu. Hiti 3-10 stig.
VEÐUR 4
4 5
4
6
5
1. JANÚAR 17. MARS
■ Gengi krónunnar
■ Úrvalsvísitalan
ÞRÓUN KRÓNU OG ÚRVALS-VÍSITÖLU FRÁ ÁRAMÓTUM
119,68
6318
153,4
4652
KARL BRETAPRINS
Kallaður til vitnis í máli hálfíslensks fjárkúgara
Lögmaðurinn með öll spjót úti
FÓLK 26
LANDBÚNAÐUR Sauðburður hófst í fyrra fallinu á bænum Mógili II á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð í fyrradag. Þá bar kindin Þoka tveimur lömbum; mórauðri gimbur og hvítum hrút. Halldóra Kjartansdóttir, bóndi á Mógili og eigandi Þoku, segir barnabarnið sitt ekki hafa hikað við að gefa nýbornu lömbunum nöfn.„Dótturdóttir mín kom í heim-sókn og nefndi þau. Sú mórauða heitir Kolbrún en hrúturinn fékk nafnið Pálmi,“ segir hún. Aðspurð
hvort einhverjar fyrirmyndir hafi verið að nöfnunum svarar Hall-dóra neitandi. „Henni datt þetta bara í hug á staðnum.“
Um tvö hundruð fjár eru á Mógili II, og byrjar sauðburður-inn yfirleitt snemma í maí. Þoka er því frekar snemma á ferðinni, en Halldóra segir það ekki í fyrsta skipti. „Hún bar á svipuðum tíma í fyrra, og var þá fjórlembd. Hún hefur eitthvað verið að skemmta sér í fyrra fallinu í haust.“
- sþs
Kindin Þoka var snemma á ferðinni í sauðburði á Svalbarðsströnd í Eyjafirði:Lömbin nefnd Kolbrún og Pálmi
Á MÓGILI Lömbin stilla sér upp fyrir ljós-myndara ásamt móður sinni. Frá vinstri eru Pálmi, Þoka og Kolbrún.
MYND/VÖLUNDUR JÓNSSON
VERÐLAG Bensínverð hefur aldrei verið hærra hér á landi en það var í gær. Yfir daginn hækkaði verðið víðs vegar og algengt verð í sjálfsafgreiðslu var 147,90 krónur. Lítrinn með þjónustu kostaði þá 152,90.
Öll olíufélögin hækkuðu verðskrá sína, nema Orkan og Atlantsolía. Orkan bauð best í gær; lítrann á 142,10 krónur.Magnús Ásgeirsson hjá N1 sagði í samtali við Vísi að það hefði fyrst og fremst verið snörp lækkun gengisins í gær sem hefði valdið hækkuninni. Kvaðst hann vonast til þess að gengið hækkaði aftur á næstunni. - kóþ
Olíufélög hækka verð:
Bensínverðið
aldrei hærra
Svartur mánudagur Krónan féll um sjö prósent í gær sem er met. Hlutabréf hafa aldrei fallið samfleytt jafn mikið í verði og síðustu átta mánuði. Bankastjórar ræddu við Seðlabankann í gær um erfiða stöðu á fjármálamarkaði.
Keflavík
komið í 2-0
Keflavík
stendur vel
að vígi gegn
Haukum í
úrslitakeppni
Iceland Express-
deildar kvenna.
ÍÞRÓTTIR 31
VEÐRIÐ Í DAG
MÓTMÆLI Harðri framgöngu Kínverja í Tíbet var mótmælt við kínverska sendiráðið í Reykjavík í gær. Birgitta Jónsdóttir listakona,
sem tók þátt í skipulagningu mótmælanna, krafðist þess fyrir hönd mótmælendanna að fjölmiðlafólki og fulltrúum mannrétt-
indasamtaka yrði hleypt inn í Tíbet. Í bakgrunni eru tröppur sendiráðsins, sem Jan Jiricek málaði rauðar í fyrradag í mótmæla-
skyni. - Sjá síðu 12
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óléttar stýrur og ófrískar
„Ég vona að leitin að öðru orði en ráðherra fyrir konur í þeirri stöðu lukkist ekki. Herra merkir vald og yfirráð. Ekki bara herrann sem er með frúnni,“ skrifar Jónína Michaelsdóttir.
Í DAG 16
MENNING Íslendingar verða fyrstir á svið í forkeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Belgrad í Serbíu.
Tvær undankeppnir verða og leikur íslenska Eurobandið, með Friðrik Ómar og Regínu Ósk í broddi fylkingar, seinna kvöldið, 22. maí. Svíar koma strax á eftir Eurobandinu en þess má geta að Danir spila einnig þetta sama kvöld.Aðalkeppnin fer fram laugardagskvöldið 24. maí. - kóþ
Eurovision-söngvakeppnin:
Íslendingar
fyrstir á svið
EUROBANDIÐ Friðrik Ómar og Reg-ína Ósk verða fyrst á svið.
ÍSLAND Í TÖLUM FYRIR OG EFTIR HRUN
Tölulegar upp-
lýsingar end-
urspegla þá
gríðarlegu
breytingu
sem orðið
hefur hér
á landi á
síðastliðnu
ári. Eins og
margoft hefur komið
fram gufaði banka-
kerfið næstum
upp í einni svipan
fyrir ári. Atvinnu-
leysi, sem var í
sögulegu lágmarki í tvö ár fyrir
hrun, margfaldaðist. Svipaða sögu
var að segja um flesta þætti í efnahagslífinu. Allt, sem hafði verið á
niðurleið fram til þessa sneri við á punktinum og virtist hækkanahrin-
unni um tíma engin takmörk sett. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson rýndi
í talnaþróunina síðustu tólf mánuði.
Sep
tem
ber
200
8 Okt
óbe
r
200
9
Mars 2009
150 kr.
Ágúst 2009
150 kr.
BENSÍNVERÐ
frá september 2008
til september 2009
200
188
176
164
152
140
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
EFNAHAGSMÁL „Þau geta ekki bara neitað að standa í skilum,“ sagði Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, um íslensk stjórnvöld og innstæður Breta í íslenskum bönkum á Sky-sjónvarpsstöðinni í gær. Hann sagði það hafa verið rétta ákvörðun að grípa til ákvæða í lögum um hryðjuverk til að kyrr-setja íslenskar eigur í Bretlandi. Þá sagðist hann telja íslensku þjóðina í raun gjaldþrota.Geir H. Haarde forsætisráð-herra segist ekki geta skýrt þess-ar harðorðu yfirlýsingar Browns og ætli ekki að munnhöggvast við hann. Hann hafi undir höndum yfirlýsingu Alistairs Darling, fjármálaráðherra Bretlands, um að greitt verði fyrir að eðlileg við-skipti milli landanna geti átt sér stað – jafnvel þótt Landsbankinn eigi í hlut – og að Bretar vilji leysa málin með samstarfi á vettvangi stjórnvalda.
„Meðan ekki kemur annað í ljós hljótum við að treysta því að þess-ir pappírar standi,“ sagði Geir í samtali við Fréttablaðið í gær-kvöldi. Hann segist ekki átta sig á tímaröð yfirlýsinga bresku ráð-herranna eða hvort misskilnings gæti innan breska stjórnkerfis-ins. Sjá verði í dag hver þróun mála verði.
„Ég veit vel að þetta er við-kvæmt mál í Bretlandi og ein-hverjir á borð við sveitarfélögin verða fyrir hnjaski en okkar vilji stendur eindregið til þess að leysa þessi mál í einhvers konar sam-komulagi við bresk yfirvöld.“ Breskir embættismenn eru vænt-anlegir til landsins í dag til við-ræðna við íslenska ráðamenn. Þá munu fjármálaráðherrar Íslands og Bretlands hittast í Washington í dag en þeir eru þar á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans.Hollensk stjórnvöld lýstu því yfir í gær að þau tryggi ekki inn-stæður á Icesave-reikningum þar í landi. Geir segist vita af þeirri afstöðu Hollendinga og koma þurfi á samræðum milli yfirvalda landanna til að leysa úr þeim málum.
„Mín skýring á þessu er helst sú að Gordon Brown hafi í reynd verið að tala inn í atburðarás gær-dagsins [miðvikudagsins] þegar þessi mikli hiti var. Hann hafi ein-faldlega ekki fengið upplýsingar um hver var niðurstaða Geirs og Darlings,“ segir Össur Skarphéð-insson, starfandi utanríkisráð-herra.
Össur kallaði sendiherra Bret-
lands á Íslandi á sinn fund í gær og tjáði honum hörð mótmæli við því að Bretar skyldu láta hryðju-verkalög ná yfir Íslendinga. „Ég, bæði sem gamall unnandi Breta og menntaður á kostnað ríkis-stjórnar hennar hátignar, varð bæði sár og reiður yfir því að þessi góða þjóð skyldi með þess-um hætti setja okkur á sama bás og ótínda terrorista.“ Össur segir
málið allt hryggja sig en kveðst vongóður um að það komist í eðli-legan farveg. „Mér þykir dapur-legt að flokksbróðir minn, því ég er enn þá í breska Verkamanna-flokknum, skuli ekki sjá að svona kemur maður ekki fram við gamla granna. Íslendingar eru ekki terroristar og það veit Gordon Brown fullvel.“
- bþs, sh, gb / sjá síðu 4
Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
10. október 2008 — 277. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ÁRLEGT KJÓLABALL hljómsveitarinnar Heimilistóna fer fram í Iðnó á
laugardagskvöld. Þar mun hljómsveitin, sem skipuð er landsþekkt-
um leikkonum, flytja á íslensku þekkt lög frá gullaldarárum
rokksins. Tónleikarnir hefjast klukkan 23 og ekki er verra að
mæta prúðbúin til fara.
Inga Rósa Ágústsdóttir er mat-
reiðslumaður á leikskólanum
Ásborg og líkar vel. Þar matreiðir
hún hollan og góðan mat ofan í
börnin og segir leikskól
m
er í miklu uppáhaldi hjá krökkun-
um.“
Inga segist dugleg að elda h i
enda hafi fó
blaðsins upp á uppskrift að
bananabrauði s h
Bananabrauð í kreppu
Inga Rósa Ágústsdóttir kokkur býður lesendum upp á uppskrift að góðu bananabrauði í frystinn. Hún
bakar brauðið oft í leikskólanum Ásborg þar sem hún matreiðir ofan í leikskólakrakka.
Inga Rósa Ágústsdóttir er matreiðslumaður á leikskólanum Ásborg, þar sem lögð er áhersla á að matreiða frekar frá grunni en að
bjóða upp á tilbúinn mat. Hún segir bananabrauð vinsælt hjá krökkunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Villibráðarhlaðborð hefst 16. október.
Jólahlaðborð hefst 20. nóvember.
Banfi kvöldverður26. september - 15. október26. september er á ný boðið upp á Banfi kvöldverð
í Perlunni, þar sem andi Toscana héraðsins á Ítalíu
svífur yfir vötnum. Á föstudögum og laugardögum
spilar Jazztríó Björns Thoroddsen.
Aðeins 3 vikur!
Gjafabréf Perlunnar
Góð tækifærisgjöf!
Parmaskinkameð fíkjusalati og balsamicoTígrisrækjur og smokkfiskur
á pappardelle pasta í tómat-basilsósuKálfahryggur á beini
með grilluðu grænmeti, kartöflumauki og madeirasósu
Sítrónugrass–kókoshneta og vanillu panna cotta
með kirsuberjaís og ávöxtum í chili-sírópi6.590 kr.Með 4 glösum af víni: 10.490 kr.
VEÐRIÐ Í DAG
INGA RÓSA ÁGÚSTSDÓTTIR
Bakar bananabrauð sem er gott í frystinn • matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
UNNUR ÖSP OG SELMA BJÖRNSSlefan slitnar ekki milli þeirra
FÖSTUDAGUR FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 10. október 2008
SAMST
Unnur Ösp Stefánsdóttir og Selma Björns-dóttir leikstýrur eru búnar að þekkjast síðan í Kardemommu-bænum árið 1983
Ungt fólk
í öndvegi
Alþjóðageðheil-
brigðisdagur-
inn er haldinn
í dag.
TÍMAMÓT 18
% 20 40 60 80 100
40.000 slaufur
Söfnunarmarkmið
Opið til 19
RIGNING EÐA SKÚRIR Í dag verða víðast suðaustan og austan 5-10 m/s. Rigning eða skúrir. Hiti 5-12 stig mildast sunnan til.
VEÐUR 4
10
8
7
10
10
Fórnarlambið?
„Davíð hefur, að eigin sögn, verið saklaust fórnarlamb óreiðumanna og brennuvarga“, skrifar Jón Bald-vin Hannibalsson.
UMRÆÐAN 16
Tap hjá
Haukum
Haukar
töpuðu
fyrir þýska
stórliðinu
Flensburg
ytra í Meist-
aradeildinni.
ÍÞRÓTTIR 26
Milliríkjadeila í miðri efnahagskreppunniGordon Brown úthúðaði íslenskum stjórnvöldum á sjónvarpsstöðinni Sky í gær. Hann varði ákvörðun
breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum. Geir Haarde segist ekki ætla að munnhöggvast við Brown.
Deilan snýst um innstæður breskra sveitarfélaga og opinberra stofnana á reikningum íslenskra banka í Bretlandi. Innlánin nema alls um milljarði punda, eða jafnvirði tæplega 182 milljarða íslenskra króna, á opinberu gengi gærdagsins.
Um hvað er að tefla?
BRESKA PRESSAN Í MORGUN „Kalt stríð“ og „Skilið peningunum okkar“ eru meðal forsíðufyrirsagna helstu dagblaða Bretlands í
dag. Ísland er alls staðar í brennidepli í kjölfar ummæla sem Gordon Brown lét falla á sjónvarpsstöðinni Sky.
Nóvember
2008
Apríl
2009
Júní
2009
600
400
200
0
September
2009
MATVÖRUVERÐ
Þróun frá september
2008 til september 2009
200
150
100
50
0
Evra
Dönsk króna
Bandaríkjasalur
Breskt pund
GENGI
GJALDMIÐLA
Þróun frá september
2008 til september 2009
FRAMHALD Á SÍÐU 30