Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 42
4 fjölskyldan
Hann sendi einfaldlega öllum sem
báru nafnið Cindy Huse bréf og
spurði hvort að það gæti verið að
viðkomandi væri dóttir Stefáns
og ef svo væri hvort að hún myndi
vilja gerast vinkona sín. Það
skipti engum togum, ein konan,
hin 22 ára Cindy svaraði nokkrum
dögum síðar. „Dan hringdi í mig
í einum grænum og ég hringdi
heim til hennar, fyrst talaði ég við
móður hennar og svo Cindy, sem
var feimin í fyrstu en svo náðum
við saman.“
Enn einn hálfbróðir
Cindy lumaði aldeilis á viðbótar-
upplýsingum fyrir sinn nýfengna
hálfbróður. Það var enn einn hálf-
bróðir í spilinu. Sá hét Tommy
Bronstad og það var sama sagan,
enn var leitað á náðir Facebook til
að komast í samband.
Elfar segir að í kjölfar þess að
systkinin voru öll komin í sam-
band fyrir tilstuðlan tækninn-
ar þá var stefnan tekin á það að
hittast. „Við vorum búin að vera í
sambandi í næstum ár og spennan
var orðin mjög mikil. Svo áttum
við Dan báðir frí í ágúst síðast-
liðnum og ákváðum að kíla á það.“
Elfar býr í Lúxemborg og Dan í
London en þeir ákváðu að hittast í
Noregi enda búa hin systkinin þar.
„Þar hittumst við í fyrsta sinn í
tuttugu ár og það var ótrúlegt,
við þekktumst náttúrulega ekki
neitt en samt var strax eins og við
þekktumst afar vel, það var sami
húmorinn í gangi til dæmis.“
Eftir stutta dvöl hjá móður Dans
í Osló var sest upp í bíl og ekið til
Haugasund, til óundirbúins fundar
við föður þeirra.
„Ég hringdi bara í hann þegar
ég var komin í bæinn, sagði við
hann að ég væri á ferð með félaga
mínum og hvort við ættum ekki
að hittast. Hann var til í það og
þegar að því kom þá kynnti ég
bara félagann sem son hans.“
Elfar segir frá öllum þessum stór-
viðburðum léttur í skapi, enda er
hann hress maður og er ekkert að
dramatísera málið. Hann segir
þá feðga hafa haft gott af kynn-
unum en þeir dvöldu sólarhring
hjá Stefáni.
FRAMHALD AF FORSÍÐU
Fjölskyldublaðið veit um
nokkur dæmi þess að fólk
hafi tekið fyrsta skrefið að
kynnum við fjölskyldu-
meðlimi í gegnum
samskipasíðuna Facebook.
Árný Ingvarsdóttir
sálfræðingur segir það
tvímælalaust auðveldara
og þægilegra fyrsta skref í
áttina að því að hafa
samband að senda línu
með tölvupósti eða skeyti
á samskiptasíðu heldur en
að hafa samband í
gegnum síma eða augliti
til auglitis. „Ef fyrsta
skrefið að samskiptum er
tekið með þeim hætti er
hægt að móta það sem
maður ætlar að segja í
sínu örugga umhverfi,
heima. Hinn aðilinn fær
líka tíma til þess að melta
bréfið og svara því.“ Árný
bendir einnig á að
auðveldara er að takast á
við skriflega höfnun en
munnlega.
Léttara
fyrsta skref
Tommy sóttur heim Elfar með
Tommy og Cindy.
Sami húmorinn Elfar, Dan og Cindy bregða á leik. Þrátt fyrir að hafa hist
fyrst nýverið þá ná hálfsystkinin mjög vel samam.
Feðgar Stefán og Dan þegar þeir
hittust í fyrsta sinn.
ATHUGASEMDIR Foreldrar stálpaðra unglinga ættu að fara sparlega í
athugasemdir við færslur unglinganna á Facebook – ef þeir vilja halda
netvinskapnum það er að segja.
fjölskyldur
eru af öllum stærðum og gerðum...