Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 63
LAUGARDAGUR 3. október 2009 9
HEIÐARSKÓLI Í HVALFJARÐARSVEIT
Uppbygging skólahúsnæðis
FRAMKVÆMDIR
FORVAL
Hvalfjarðarsveit óskar eftir áhugasömum aðilum
til að taka þátt í lokuðu útboði vegna byggingar
Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.
Verkefnið felst í byggingu 1.976 m2 skólabyggingar
sem rísa skal á lóð skólans. Byggingin er stein-
steypt, tveggja hæða og að huta til úr forsteyptum
einingum.
Helstu upplýsingar um útboðið:
Afhending útboðsgagna: 30. nóvember 2009
Áætlað upphaf verks: 1. febrúar 2010
Verklok: 1. ágúst 2011
Forvalsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum
7. október á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3
og hjá VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20. Einnig er
hægt að óska eftir þeim á rafrænu formi með því
að senda tölvupóst á netfangið vso@vso.is.
Kynningarfundur vegna verkefnisins verður haldinn
í Heiðarskóla þann 15. október kl. 13:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofur Hvalfjarðarsveitar,
Innrimel 3, 301 Akranes eða á skrifstofu VSÓ
Ráðgjafar, Borgartúni 20, 105 Reykjavík eigi síðar
en mánudaginn 10. nóvember 2009 kl. 14:00.
Áhættumat starfa
Námskeið fyrir vinnustaði
Samkvæmt nýlegri reglugerð (920/2006) skal gera skrifl ega
áætlun um öryggi og heilbrigði á öllum vinnustöðum.
Áhættumat starfa er hluti af slíkri áætlun.
Vinnueftirlitið heldur námskeið þar sem kennd er aðferð
til nota við gerð áhættumats.
Námskeiðið er ætlað atvinnurekendum, öryggisnefndum,
ráðgjöfum, eftirlitsaðilum og öðrum sem áhuga hafa á að
fræðast um gerð áhættumats.
Næstu námskeið í Reykjavík verða; 13. október,
3. nóvember og 8. desember nk.
Staður: Ökuskólinn í Mjódd, Þarabakka 3,
Reykjavík kl. 13 - 17.
Sjá nánar á heimasíðu Vinnueftirlitsins: www.vinnueftirlit.is
Skráning í síma 550 4600 (skiptiborð Vinnueftirlitsins)
eða á netfangið vala@ver.is
www.vinnueftirlit.is
Reginn ehf. er félag sem annast umsýslu og
rekstur fasteigna og fasteignafélaga sem Lands-
bankinn kann að eignast við fullnustugerðir.
Félagið er að fullu í eigu Landsbankans.
Reginn ehf. fyrir hönd dótturfélags síns, R-Höllin ehf.,
óskar eftir tilboðum í ráðgjöf og framkvæmdaeftirlit
með fullnaðarfrágangi á Bíóhúsi við Egilshöll. Annars
vegar er um er að ræða ráðgjöf við undirbúning
framkvæmda og val á alverktaka sem annast mun
lokahönnun og fullnaðarfrágang á mannvirkinu og
hinsvegar eftirlit með fullnaðarfrágangi sem unnin
verður í framhaldi af alútboði.
Til að bjóðandi komi til greina sem samningsaðili
þarf hann að hafa reynslu af verkefnisstjórnun,
alútboðsgerð og framkvæmdaeftirliti. Innan
fyrirtækisins og hjá starfsmönnum hans verður að
vera til staðar reynsla og þekking af sambærilegum
verkum að eðli og umfangi.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með
mánudeginum 5. október 2009.
Þeir sem hyggjast gera tilboð í ofangreindu útboði
skulu senda tölvupóst á netfangið reginn@lands-
bankinn.is og óska eftir útboðsgögnum. Taka þarf
fram nafn, heimilisfang, símanúmer og kennitölu
umsækjanda. Útboðsgögn verða síðan send
viðkomandi í tölvupósti. Gögn verða ekki afhent á
annan hátt, hvorki prentuð né á geisladiski.
Skilafrestur tilboða er til 13. október 2009.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Regins ehf. að
Hafnarstræti 5, 3. hæð, 13. október 2009 kl. 11.00.
REGINN EHF.
RÁÐGJAFAÚTBOÐ
ÚTBOÐ
LÓÐ KRIKASKÓLA
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í frágang lóðar við Krikaskóla
að Sunnukrika 1. Um er að ræða fullnaðar-frágang lóðar þar sem
2200 m² verða hellulagðir og malbikaðir og um 2.400 m² þöku-
lagðir. Þá þarf að koma fyrir ýmsum búnaði svo sem rafl ýsingu,
setja upp leiktæki og smíða palla.Verkið þarf að vinna í tveimur
áföngum þar sem ganga þarf frá nærumhverfi skólahúss í desem-
ber 2009 en verklok að öðru leyti eru 15. maí 2010.
Útboðsgögn á geisladisk verður hægt að nálgast í Þjónustuveri
Mosfellsbæjar, Þverholti 2 frá og með þriðjudeginum 6. október
2009. Tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska miðvikudaginn 21. október 2009 kl. 11.
Umhverfi ssvið Mosfellsbæjar
Innkaupaskrifstofa
F.h. Strætó bs. er óskað eftir umsóknum frá verk-
tökum um að fá að taka þátt í lokuðu útboði um
akstur almenningsvagna. Um er að ræða akstur á
16 leiðum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu.
Forvalið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Forvalsgögn á geisladiski verða seld á 5.000 kr. frá 5. október
2009 í síma- og upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Umsóknum skal skila eigi síðar en: kl. 15:00 þann 1. desember
2009 til síma- og upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
12337
FORVAL
www.ferdamalastofa. is
Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Netfang: upplysingar@icetourist.is
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 535 5510 | Netfang: upplysingar@icetourist.is
Ferðamálastofa óskar
eftir tilnefningum til
Umhverfisverðlaun
Frá árinu 1994 hefur Ferðamálastofa, áður Ferða-
málaráð Íslands, veitt umhverfisverðlaun til ýmissa
aðila í ferðaþjónustu. Tilgangur verðlaunanna er að
beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða
fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfis-
málum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.
Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á
umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu
að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustu-
aðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi
og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.
Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar:
Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig um-
hverfismál varða og vinna markvisst að því að
viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og
félagslegra þátta. Það geta verið einstaklingar,
fyrirtæki, félagasamtök eða sveitarfélög.
Hér með er óskað eftir tilnefningum til umhverfis-
verðlauna Ferðamálastofu 2009. Frekari upplýsingar
veitir umhverfisfulltrúi stofnunarinnar, Sveinn Rúnar
Traustason, í síma 535 5510.
Tilnefningar sendist til skrifstofu Ferðamálastofu,
Strandgötu 29, 600 Akureyri eða með tölvupósti á
netfangið sveinn@icetourist.is fyrir 30. október nk.
umhverfisverðlauna fyrir árið 2009
Eftirtaldir aðilar hafa fengið
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu:
2008 - Elding Hvalaskoðun Reykjavík
2007 - Country Hótel Anna
2006 - Hópbílar
2005 - Gistiheimilið Brekkukot, Sólheimum í Grímsnesi
2004 - Félag ferðaþjónustubænda og Ferðaþjónusta bænda hf.
2003 - Bandalag íslenskra farfugla
2002 - Guðmundur Tyrfingsson ehf.
2001 - Íshestar
2000 - Gistiheimilið Brekkubær á Hellnum
1999 - Bláa Lónið
1998 - Þórður Tómasson á Skógum
1997 - Tjaldsvæðið á Egilsstöðum
1996 - Knörrinn á Húsavík
1995 - Ferðaþjónustan Vigur
Námskeið
Útboð
Útboð Tilkynningar
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki