Fréttablaðið - 03.10.2009, Qupperneq 71
fjölskyldan 5
Stefna á endurfundi sem fyrst
Þá var stefnan tekin til Cindyar
sem tók bræðrum sínum fagnandi.
„Þetta var ótrúlegt við þekktumst
án þess að hafa hist, við náðum
ótrúlega vel saman, lukum setn-
ingum fyrir hina og hlógum og
fífluðumst sem aldrei fyrr.“
Eftir viku dvöl hjá henni fóru
systkinin þrjú til Tommyar − sem
hafði kannski kviðið endurfund-
unum mest, en þeir gengu vel
þegar að þeim kom. Eftir þessa
vel heppnuðu og óvenjulegu fjöl-
skylduferð þá hafa systkinin
tengst enn frekari böndum. „Við
tölum stundum þrjá til fjóra tíma
saman á Skype-inu,“ segir Elfar
sem er nú í óðaönn við að skipu-
leggja næsta hitting, sem verður
að öllum líkindum næstu jól.
„Þetta er mjög skemmtilegt, það
er kannski algengara hjá fólki að
það missi fullorðna ættingja eftir
því sem að það eldist, hjá mér er
það öðruvísi, fjölskyldan mín nán-
asta hefur bara stækkað ótrúlega
mikið,“ segir Elfar og hlær og
segir í gríni systur sínar sem hann
ólst upp með séu hreinlega orðnar
afbrýðisamar.
Hann segir það óneitanlega hafa
þurft kjark til þess að stíga fyrsta
skrefið í átt til að hafa upp á hálf-
systkinunum, en það hafi sannar-
lega verið þess virði.
- sbt
NETIÐ
Góð ráð fyrir fjöl-
skylduna Allir vilja eiga
góðar og notalegar stundir
með fjölskyldunni þegar
vinnu og skóla sleppir.
Þreyttir foreldrar eru hins
vegar ekki endilega alltaf
mjög hugmyndaríkir. Á
síðunni www.bestfamilya-
dvice.com er að finna
fjölda ráða fyrir fjölskyld-
una, til dæmis á sviði
fjölskylduafþreyingar.
Á síðunni er líka ótal
margt fleira sem foreldrar
geta nýtt sér; uppskriftir,
upplýsingar um sjúkdóma,
ráðleggingar um uppeldi
og fleira.
Netráð fyrir þau
yngstu Saft, Samfélag,
fjölskyld, tækni, hafa gefið
út bækling sem dreift
verður í 1. til 4. bekk
grunnskóla. Í honum er að
finna ráð til foreldra barna
í fyrstu bekkjum grunn-
skólans. Þau eru góð og
þörf og benda foreldrum
meðal annars á að gera
samkomulag við barnið
um netnotkun á heimilinu
og ræða þá áhættu sem
fylgir því að hitta netvin.
Foreldrar eru áminntir um
að skoða efni á Netinu
með gagnrýnum hætti og
ekki síst að fylgjast með
netnotkun barnsins síns.
---- Nánari umfjöllun www.
saft.is/oruggnetnotkun/
fyrirforeldra/netheilraedi
AFMÆLI BARNASÁTTMÁLANS Tíu ungmenni á aldrinum 14-16 ára sjá um að kynna Barnasáttmálann fyrir börnum,
ungmennum og fullorðnu fólki næstu fimmtudaga. Fjallað verður um áhrif og þýðingu sáttmálans fyrir börn heimsins og spjallað
við fjölmarga aðila á öllum aldri um mismunandi ákvæði sáttmálans og fjölbreytt málefni sem þeim tengjast. Þættirnir eru á
dagskrá klukkan 15.25 á fimmtudögum og endurteknir kl. 20.40 á laugardögum.