Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 104

Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 104
68 3. október 2009 LAUGARDAGUR skipta um dekk Umfelgun og ný dekk á góðu verði Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu stálfelgum 6.458 kr. Kauptu vetrardekkin hjá Max1 á góðu verði. Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig. Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2. Hafnarfjörður: Dalshrauni 5 (opnar á næstunni). Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5. Sparaðu, láttu Ný vetrardekk Dekkjaskipti hjá Max1 Opið í dag frá 9 til 13 á öllum Max 1 stöðvum Lokað í Knar rarvogi FYRIRLIÐI FÓTBOLTALEIKJANNA ER LENDIR 01.10.09 10. HVERVINNUR! FULLT AF AUKAVINNINGUM TÖLVULEIKIR · DVD MYNDIR · FULLT AF PEPSI MAX OG MARGT FLEIRA! Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. ÓL 2016 Tilkynnt var í gær við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn að Ólympíuleikarnir árið 2016 yrðu haldnir í Rio de Janeiro en fjórar borgir börðust um að fá að verða gestgjafar. Tíðindunum var fagnað af um það bil fimmtíu þúsund manns sem voru saman komin fyrir framan risaskjá á Copacabana-ströndinni í Rio í gær. „Heimurinn hefur viðurkennt að tíminn sé kominn fyrir Brasil- íu og Rio de Janeiro er tilbúin. Þið eigið ekki eftir að sjá eftir atkvæði ykkar,“ sagði Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, við tilefn- ið. Þetta verður í fyrsta skiptið sem Ólympíuleikarnir fara fram í Suður-Ameríku. Í lokin stóð valið á milli Rio de Janeiro í Brasilíu og Madríd á Spáni eftir að Tókýó í Japan og Chicago í Bandaríkjunum heltust úr lestinni. Fyrir fram var búist við því að baráttan stæði á milli Rio de Jan- eiro og Chicago en þrátt fyrir að forsetahjónin bandarísku, Bar- ack og Michelle Obama, væru við- stödd til þess að tala máli Chicago í Kaupmannahöfn í gær var hún fyrsta borgin af fjórum til þess að falla úr leik. Þar á eftir féll svo fallöxin á Tókýó og loks Madríd. Það verður nóg að gera hjá Bras- ilíumönnum í að skipuleggja stór- mót því lokakeppni heimsmeistara- mótsins í fótbolta árið 2014 verður einnig haldin þar í landi. Knattspyrnugoðsögnin Pelé tók virkan þátt í kynningarstarfi fyrir Brasilíu bæði fyrir HM árið 2014 og Ólympíuleikana árið 2016. - óþ Í gær varð ljóst hvaða borg vann kapphlaupið um hlutverk gestgjafa á ÓL 2016: Ólympíuleikar árið 2016 í Rio FAGNAÐARLÆTI Fólk streymdi út á götur og torg í Rio de Janeiro í Brasilíu í gær þegar ljóst varð að Ólympíuleikarnir árið 2016 myndu fara fram í borginni. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Samstarf Björgólfs Tak- efusa og Guðmundar Benedikts- sonar reyndist KR gjöfult í Pepsi- deild karla í sumar. Björgólfur varð markahæsti leikmaður deild- arinnar og aðeins Matthías Vil- hjálmsson úr FH lagði upp fleiri mörk í deildinni en Guðmundur. Matthías var með ellefu stoðsend- ingar en Guðmundur tíu, rétt eins og Gunnar Örn Jónsson, félagi hans í KR. Þeir Björgólfur og Guðmundur voru þó aldrei betri en þegar þeir voru saman í byrjunarliði KR. Það gerðist þó ekki í nema sjö leikjum í sumar en óhætt er að segja að leik- menn KR hafi verið á skotskónum í þeim leikjum. Alls skoruðu þeir 27 mörk í þeim og áttu þeir Björ- gólfur og Guðmundur beinan þátt í 21 þeirra. „Ég var búinn að bíða eftir að fá vera í byrjunarliðinu með Guðmundi í nokkurn tíma og við fengum loksins tækifæri til þess þegar við mættum Víði í bikarn- um,“ sagði Björgólfur í samtali við Fréttablaðið. „Ég vissi auðvitað vel hversu góður hann er enda hefur hann verið drjúgur við að skora sjálfur og skapa mörk fyrir aðra. Það er mjög auðvelt að spila með svo góðum fótboltamönnum,“ bætti hann við. Guðmundur tók í svipaðan streng og lofaði samstarfið við Björgólf í sumar. „Ég kunni einstaklega vel við að spila með honum enda góður knatt- spyrnumaður. Ég hefði viljað fá að spila fleiri leiki með honum en fékk því miður ekki að ráða því,“ sagði Guðmundur. „En Björgólfur er alvöru sóknarmaður sem kann leikinn. Það er auðvelt að finna hann. Maður getur nánast lesið hugsanir góðra leikmanna og það eru forréttindi að spila með slíkum leikmönnum.“ Það vill þó oft vera þannig að tveir góðir sóknarmenn virðast einfaldlega ekki ná saman. „Maður hefur svo sem séð það gerast marg oft,“ sagði Guðmundur. „Það þarf að vera ákveðið samspil til staðar og það var það svo sannar- lega hjá okkur.“ Björgólfur sagði að flestir sókn- armenn ættu auðvelt með að spila með Guðmundi. „Það skiptir í raun engu hver hefði spilað með honum – hann hefði staðið sig vel.“ Guðmundur er nú hættur hjá KR og tekinn við þjálfun Selfoss þar sem hann mun sennilega spila einnig, ef heilsan leyfir. Hann á langan leikmannaferil að baki og hefur spilað með mörgum góðum sóknarmönnum í gegnum tíðina. „Á mínu fyrsta tímabili hjá KR spilaði ég með Mihajlo Bibercic sem mér fannst ganga mjög vel. Mér gekk líka vel að spila með Ríkharði Daðasyni sem og Bjarka Gunnlaugssyni árið 1999,“ sagði Guðmundur. „Hjá Val fékk ég einnig að spila með mörgum góðum eins og Helga Sigurðssyni, Garðari Gunnlaugs- syni og Matthíasi Guðmundssyni. Mér hefur yfirleitt gengið vel að ná saman við mína félaga enda lítið vesen á mér,“ sagði hann í léttum dúr. - esá, óój Bjuggu til 21 mark í sjö leikjum Björgólfur Takefusa og Guðmundur Benediktsson voru langatkvæðamestir þegar þeir voru saman í byrj- unarliði KR í leikjum liðsins í sumar. Þótt það hafi aðeins gerst í sjö leikjum sköpuðu þeir 21 mark alls. ÖFLUGIR Í SÓKNINNI Þeir Björgólfur Takefusa, til vinstri, og Guðmundur Benediktsson voru báðir á skotskónum þegar KR tók á móti Fylki í sumar. Það dugði þó ekki til þar sem gestirnir unnu leikinn, 4-2. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FORMÚLAN Englendingurinn Jen- son Button hjá Brawn-liðinu getur landað sínum fyrsta meist- aratitli í Formúlu 1 á sunnudag þegar keppt verður á Suzuka- brautinni í Japan. Button er með fimmtán stiga forskot á Rubens Barrichello, liðsfélaga sinn hjá Brawn-liðinu, þegar aðeins þrjár keppnir eru eftir. Button nægir því að vera fimm stigum fyrir ofan Barrichello um helgina til þess að verða meist- ari en hann viðurkennir að hann finnur fyrir mikilli pressu. „Þetta er erfitt því það eru svo margir hlutir sem geta gerst um helgina. Það er mikil pressa á mér en draumurinn er að vinna titilinn um helgina,“ segir Button. - óþ Jenson Button: Finnur fyrir pressunni BUTTON Getur landað sínum fyrsta Formúlu 1-titli í Japan um helgina. NORDIC PHOTOS/AFP 21 MARK Í SJÖ LEIKJUM Björgólfur Takefusa og Guðmundur Benediktsson voru bestir þegar þeir voru báðir í byrjunarliði KR í sumar. Saman í byrjunarliði KR: Björgólfur 10 mörk, 2 stoðsendingar Guðmundur 3 mörk, 6 stoðsendingar Árangur KR 5 sigrar, 2 töp Markatala KR 27-16 Í hinum leikjum KR: Björgólfur 6 mörk, 3 stoðsendingar Guðmundur 1 mark, 4 stoðsendingar Árangur KR 10 sigrar, 3 jafntefli, 2 töp Markatala KR 31-15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.