Stúdentablaðið - 01.12.1981, Qupperneq 5
1. des. blað
5
Við viljum minna á:
Allt það sem við höfum gert fyrir komandi kynslóðir, ekki minnst á sviði
blóðsúthellinga og kúgun fólks af öðrum litarhætti og með annan hugsana-
hátt en við viljum minna á:
Að við leyfum þakklátum og hlýðnum hermönnum okkar að gera i raun
allt gegn i raun hvaða safni óbreyttra borgara sem hefst við þar sem landa
mærum okkar vestrænu menningar er ógnað af röngum hugmyndum og
þess vegna viljum við ennfremur minna á:
Við eigum inni hjá æskunni þakklæti fyrir það ástand sem rikir i heimin-
um i dag, það er að segja fullkomið jafnvægi, ásamt óstöðvandi sigurgöngu
hins góða og stanslausum ósigri þess iiia.
á móti væntum við að æskan sýni
trúnað, skýrlifi, hlýðni.
Timamir krefjast hreinleika af æskunni, að minnsta kosti á ytra borði.
Hún má, sem neyðarúrræði og helst leynilega, i felum, og með slæmri sam-
visku, gera það sem hún vill, en hún má ekki tala um það, sérlega ekki tala
um það og fyrir alla muni ekki nefna nokkurn hlut réttu nafni. Við kefjumst
hreinnar kynslóðar.
Þegar við höfum látið svo mikið blóð renna ( aldrei hafa jafn margir blætt
jafn mikið af jafn litlu tilefni!) viljum við i þakklætisskyni fá kynslóð sem
ekki þekkir mun á samförum framan frá og samförum aftan frá, kynslóð
sem að sönnu hefur litið blóð á höndum sér, en sem er að minnsta kosti ekki
ósiðleg.
Við sem höfum þegið allt vald á himni og jörð, lýsum yfir:
Kardináli Spellmann og Guð gleðjast kristilega yfir hverjum þeim lifandi
sem deyr til að írelsast frá rangri hugsun, en Guð
verður miður sin ef úlla misnotar klofið sitt til að gera það nokkuð sem
klofi er eðlilegt, þvi Guð
hefur ekki annað að hugsa um, en hvað úlla, Elisa og Karin gera með það
óskaplega mikilvæga gat sem hún hefur á milli fóta sér.
Þar fyrir utan:
Við, verðir siðgæðis á himni og jörð, við höfum ákveðið:
Þegar þú hefur afklæðst þinum heilaga einkennisbúningi sem gerir þig
að þjóni hins heilaga málefnis, máttu ekki drepa lengur. Hins vegar máttu
skrifa um það. Hins vegar getur þú lika, öðru hvoru, ef þú ert giftur, eða
ef þú ert ástfanginn
eða
ef þig langar til
fengið leyfi til samfara bæði ofan frá og neðan frá, aftan frá eða framan frá,
i munn eða rass eða næsta aðgengilegt op, hins vegar áttu ekki að tala eða
skrifa um það.
Auk þess:
Sá illgjarni, kommúniski orðrómur sem gengið hefur i Evrópu, Banda-
rikjunum og annars staðar i heiminum, og sem heldur þvi fram að Guð
gráti, þessi falski og frelsisfjandsamlegi orðrómur afsannast hér með sem
áróðurskennd, kommúnisk, gyðingleg, bolsévisk lygi
sannleikurinn er:
Guð er jafn ánægður með okkur og við erum sjálf.
t nafni Norsku Ríkisst jórnarinnar
og Hinnar alþýðlegu, trúræknu NATO hreyfingar
Jens Björneboe
hinn dökkva dag
risa i vestri,
við þungbúinn himin
ber stáldreka mikinn
og sindrar á skrokkinn.
í magnþrota angist
litum vér grásvarta ógn
höggva rauðum tönnum
i helgan svörð.