Ljósberinn - 01.02.1944, Side 5
LJÓSBERINN
5
Það eru ekki öll heiðin börn, sem kynn-
ast kristniboðunum fyrst á þennan bátt.
Mörg þeirra kynnast bonum fyrst af því
að hann lijálpar þeim. Hann er ef til vill
eini læknirinn á svæði sem tugir þúsunda
manna búa á, og kristniboðið befur eina
spítalann, sem menn í stórum bæjum eða
béruðum geta fengið lijálp bjá. Sum lieið-
ingjabörn kynnast kristniboðinu fyrst af
því að hungursneyð kemur og þá hjálpar
enginn eins vel og kristniboðinn og þá
er flúð til lxans.
En nú ætla ég að segja ykkur hvernig
Timmaya litli Reddi kynntist fyrst
kristniboðanum og sögunni um Jesúm.
Tinnnaya litli fór einu sinni með
frænda sínum til þess að hjálpa til út á
sykurreyrsakri. Akrarnir eru allir sund-
urskornir af litlum skurðum, sem vatni
er veitt um á akrana, og ef eitthvað dett-
ur í skurðinn og hindrar vatnsrennslið
visnar sykurreyrinn. Þegar Timmaya litli
gekk á bakka eins skurðarins sá hann, að
vatnið liafði stíflazt af einhverju, sem leit
út eins og stórt prik. Hann barði í það
með lurknum sínum, en um leið og liann
lamdi þaut þetta brúnleita prik upp, því
það var eiturslanga. Timmaya stökk aft-
ur á bak, en var of seinn. Slangan beit
hann 1 öklann og skreið síðan inn á milli
sykurreyrsleggjanna. Eitrið verkaði fljótt.
Drenginn svimaði og liann mundi svo ekk-
ert fyrr en liann lauk upp augunum og
lá þá undir tré við tjald hvíta læknisins,
sem var kristniboði. Timmaya vissi ekk-
ert hvað fram liafði farið. Hann fann
ekki þegar frændi bans tók liann upp
og bljóp lieim með liann og lagði hann
eins og dáinn fyrir fætur móður hans.
Hann heyrði ekki grátinn og andláts-
söng heiðingjanna, sem sunginn var. Þá
liafði allt í.einu kristinn maður kallað:
„Læknatrúboðinn! Berið drenginn þang
að! Hann kom í gærkveldi og er nú í
tjaldinu sínu skainmt béðan“.
Timmaya lieyrði ekki öll ópin og köll-
in, sem nú kváðu við. Sterkir karlmenn
lyftu lionum, og skiptust á um að bera
bann niður brattann gangstíg, yfir dal-
inn, gegnum frumskógarkjarr í hlíðinni
hinum megin, unz komið var að tjaldí
kristniboðans.
Þegar þeir lögðu liann á jörðina fannsl
þeim öllum, að þeir liefðu verið of seinir
og þeir sögðu, að liann væri dáinn-
Kristniboðinn var sá eini, sem sá, að enn-
þá var von. Hann bað Jesúm að hjálpa
sér nú að lækna drenginn, því þá mundu
menn frekar hlusta á boðskapinn. Og
bann sigraði. Skömmu seinna lauk Tim-
maya upp augunum og spurði: Hvar er
ég? Hann gekk sjálfur, tveimur dögum
seinna, til þorpsins, þar sem andlátssöng-
urinn hafði verið sunginn yfir honum.
Þannig atvikaðist það, að Timmaya
fékk fyrsta skipti að heyra um Jesúm-
Og hann lærði að biðja hann og trúa á
bann og elska liann. Hann lærði það,
sem liann ekki hafði áður vitað, að við
eigum að elska Guð og aðra menn, af
því Jesús elskar okkur og dó fyrir okkur.
Nú er Timmaya aldrei glaðari, en þeg-
ar hann getur sungið mn Jesúm og beðið
liann.
Bjarni.