Ljósberinn - 01.02.1944, Síða 16

Ljósberinn - 01.02.1944, Síða 16
16 LJÓSBERINN Þegar við komum til herbergis okkar, tóku hundarnir á móti okkur með reiði- legu urri. Þeir þekktu mig ekki aftur, en undir eins og þeir heyrðu rödd mína, flyðruðu þeir upp um mig af ánægju. „Nú verðum við að taka til með æf- ingar“, sagði Vitalis. „Ég hef næstum eytt öllum okkar peningum. En það var nauð- synlegt, að þú fengir góð föt. í fyrramál- ið höldum við fyrstu sýninguna okkar og þú átt að leika með í leiknum“. „Já, en ég get ekki leikið í sjónleik- um“, sagði ég. „Þú lærir það“, svaraði Vitalis. „Held- ur þú, að hundunum séu þessar listir meðfæddar. Leikurinn, sem við eigum að leika, heitir: „Þjónn Jankos“, og aðalat- riði leiksins eru þessi: Hr. Janko liefur þjón, sem hann er mjög ánægður með — það er Bríó, en nú Iiefur hann ráðið til sín nýjan þjón — það ert þú“. „En apar liafa ekki þjóna“, skaut ég inn í. „Jú, í sjónleikum hafa þeir þá. Þú kemur ofan úr sveit og skilur ekki neitt af því, sem þú átt að gera, og gerir eina heimskuna af annarri. Hr. Janko verður að lokum reiður og skipar Bríó að sýna þér hvernig þetta á að gerast. Bríó og Janko gera síðan allt á réttan hátt. Áður var Zerbínó heimski þjónninn, en þú munt gera meiri lukku. Reynum nú!“ „Þjónn Jankos“ var ekki veigamikilJ leikur, en æfingarnar stóðu yfir þrjá tíma. Hundarnir höfðu ýmsu gleymt og mig furðaði á þolinmæði Vitalis. Tuttugu, þrjátíu sinnum í röð endurtók hann list- irnar með þeim, og hann barði þá aldrei. „Hundarnir eru eins og börnin“, sagði hann. „Maður getur fengið þá til að gera allt, ef vel er að þeim farið, en slái mað- / ur þá, verða þeir þrjóskir. Þeir eru sjald- an barðir, en þegar það kemur fyrir, hef- ur það því meiri áhrif“. Hann var ánægður með mig. „Þú ert námfús“, sagði hann. „Og það, sem er ennþá betra, þú liefur áhuga. Það er mest um vert“. Fyrsta sýningin okkar gekk ágætlega. Við gengum fylktu liði frá gistihúsinu tii torgsins. Vitalis gekk fremstur og blés í flautu, þar næst hundarnir, Bríó með Janko á bakinu, og síðast ég. Á torginu hafði hópur manna safnazt saman, sem fagnaði Janko með hlátrum og húrra- lirópum, þegar liann, klæddur rauðum kjólfötum og með þríhyrndan hatt gekk inn á leikvöllinn. Ég gekk inn næstur Eins og Vitalis hafði kennt mér, stóð ég með opinn munn og leit mjög heimsku- lega út, meðan Janko fórnaði liöndum í örvæntingu. Var þetta þjónninn, sem átti að ganga honum um beina. Hann hristi höfuðið fyrirlitlega. Bríó dró borð til mín og gerði mér skiljanlegt, að ég ætti að sitjast niður og borða. Ég tók pentudúkinn. En livernig átti ég að nota hann? Ég vafði honum saman og batt honum tun hálsinn á mér. Þannig hélt ég áfram og áhorfendurnir höfðu mikla ánægju af lieimskupörum inínum. Leikurinn endaði á þá leið, að Janko settist í minn stað og borðaði, en Bríó bar fram fyrir hann. Janko vissi hvernig hann átti að hegða sér. Áhorfendurnir voru hrifnir og lirifn- ingin náði hámarki þegar Bríó færði Janko tannbursta og hann gekk fram og aftur um gólfið og burstaði tennurnar.

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.