Ljósberinn - 01.02.1944, Page 19

Ljósberinn - 01.02.1944, Page 19
LJÓSBERINN 19 uðum við til Berry til að heimsækja fóst- urmóður mína. Mig grunaði ekki, að nú byrjuðu erfið- leikar mínir fyrir alvöru. I borg einni í nágrenni Biarritz kom dálítið fyrir, sem algerlega breytti kring- umstæðunum. I miðri sýningu gekk lög- regluþjónn til Vitalis og sagði hörkulega: „Hundarnir yðar hafa ekki munnkörfu, eins og þeir eiga að liafa samkvæmt lög- reglusamþykktinni“. Fólkið tók að mögla vegna afskipta lög- regluþjónsins. „Látið að minnsta kosti þessa sýningu hafa sinn gang“, hrópaði það. „Hvernig getið þér krafizt þessa?“ spurði Vitalis lögregluþjóninn. „Hafið þér nokkurntíma séð liunda leika listir með munnkörfu?“ Og um leið og hann sneri sér að áhorfendunum, sagði liann: „Getið þér, herrar mínir og frúr, sagt mér, livernig eigum við að leika framar skemintilega leikinn „Læknirinn og sjúkl- ingurinn“, ef liundarnir hafa munnkörfu á trýninu? Hvernig á lir. Janko að geta opnað munninn og tekið lyfið úr mat- skeið?“ „Það er ekki hægt!“ lirópuðu áhorf- endurnir. Meðan Vitalis talaði, stóð lögreglu- þjónninn með krosslagðar hendur og leit hæðnislega til okkar. Janko, sem stóð að baki hans, byrjaði að herma eftir honum, án þess að hann tæki eftir því. En áhorf- endurnir uppgötvuðu það brátt og hlát- urinn kvað við hvaðanæfa. Brettir Jankos voru svo hlægilegir, að ómögulegt var annað en lilæja að þeim. Allt í einu sneri lögregluþjónninn sér við, og þegar lxann leit á Janko, sá hann strax, að hann var hafður að háði. Blóðið steig honum til höfuðsins og liann tók til að skanunast, en því liærra sem hann hrópaði, því meir lilógu áliorfendurnir, því að Janko líkti eftir hverri hreyfingu hans. Ég hafði ver- ið alvarlegur allt til þessa, en þegar ég sá Janko, gat ég ekki stillt mig um að hlæja lengur. Þá missti lögregluþjónninn stjórn á sér og liann barði mig með stafnum sín- um svo ég féll niður á einn bekkinn. I sama bili lá liann kylliflatur á jörðunni. Vitalis hafði hrint lionum um koll og hrópaði með leiftrandi augum: „Þrjót- urinn yðar, sláið þér varnarlaus börn?“ Lögregluþjónninn stóð á fætur og ætl- aði að ráðast á Vitalis, en hugsaði sig um, tók spjald upp úr vasa sínum og sagði skipandi: „I nafni laganna tek ég yður fastan!“ Vitalis varð því áþekkaslur sem liann hefði í hyggju að berja lögregluþjóninri að nýju, en orðin: „í nafni laganna“ gerðu hann óvígan. Hann lét leiða sig burtu, og fimm mínútum síðar sat hann í fangelsi. Þetta var rnikil óhamingja. Ég bað og grét, en lögin heyra ekki bænir. Ég varð aleinn að fara til liíbýla okkar, og þar var ég dögum saman milli vonar og ótta, þar til dómurinn féll. Vitalis var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, fyrir að beita lögregluna valdi. Þegar dómurinn var fallinn, var mér leyft að koma til hans, og liann faðm- aði mig að sér. „Vesalings Remi“, sagði liann, „nú ert þú einmana í lieiminum, og það er óvar- kárni minni að kenna“. „Æ, húsbóndi minn“, lirópaði ég grát- andi, „það er mín sök, að þér sitjið í fang> elsi. Hvað á ég nú að gera?“

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.