Ljósberinn - 01.02.1944, Síða 21

Ljósberinn - 01.02.1944, Síða 21
LJÓSBERINN 21 Týndi sauðurinn. Eftirfarandi saga gerist á dögum þeirra ensku trúboðanna, Moody’s og Sankey’s. — Hjón nokkur ensk brugðu sér til Par- ísarborgar til þess að dvelja þar nokkra daga sér til skemmtunar. Þau tóku sér gistingu á einhverju stærsta gistihúsi borgarinnar. Konan liafði verið mjög inn- lífuð starfi hinna nafnfrægu heimatrú- boða og bafði því stungið nokkrum ein- tökum af Sankey’s-söngvum í tösku sína í þeirri von, að benni gæfist tækifæri til að nota þá, er til Parísar kæmi. En svo liðu dagar, að henni gafst ekkert slíkt tækifæri. Þá hugkvæmdist lienni eitt kvöldið, er gestirnir sátu sem flestir að sameiginlegu veitingaborði, að hún lagði nokkra söngva í kyrrþey á borðið í lestr- arsalnum; en þar var allt fullt fyrir af margs konar blöðum til lestrar. Að lokinni máltíð komu margir af gest unum aftur inn í lestrarsalinn. Einn í þeirra tölu var ungur Englendingur aí góðu bergi brotinn; var liann nýkominn til borgarinnar til að skemmta sér þar hálfsmánaðartíma, eða réttara sagt: fara þar með sig á sál og líkama. Hann renndi nú augum yfir blöðin, en meira ekki; en þá varð honum litið á smábækling, er dró að sér athygli lians. Hvað er nú þetta? hugsaði hann með sér, eru þeir Moody og Sankey þá líka komnir hingað? Hann kannaðist óðara við nöfn þeirra félaga, því að María syst- ir lians, sem hann unni hugástum, hafði aðstoðað þá með ráðum og dáð. Oft hafði hún beðið bróður sinn að koma með sér á samkomur trúboðanna, en árangurs- laust. En — nú tók hann bæklinginn í hönd sér eins og í leiðslu og lauk hon- um upp og datt þá niður á þessa hend- ingu í alkunnum og dýrlegum söng, sem Sankey liafði tekið upp í söngva sína og mikið verið sunginn: „En einn hafði vilst á eyðistig". Þá sagði hann við sjálfan sig: „Ég hygg, að María systir mundi segja, að þessi eini (sauður) væri ég — einmitt ég“. Hann lagði þá söngvana í snatri frá sér aftur á borðið; en hendingin sat föst í huga lians; hann gat ekki lirundið henni úr liuga sér, livernig sem hann fór að og þótti lionum það lieldur spilla allri skemmtun fyrir sér. Á endanum tók liann kverið og fór með það upp á lierbergið sitt og fletti því blað fyrir blað, unz hann fann sönginn dýrlega, sem þetta var upp- baf að: „í byrginu sauðirnir bældu sig og biðu þar dags svo rótt; en einn haföi vilst á eyðistig, og átti þar kalda nótt, því liirðirinn fjarri honum var — og bætturnar vísar allstaðar". „Ó!“ hrópaði liann upp, „þarna kem- ur það. Ég veit, að María systir er ein í byrginu; henni er óliætt; en þessi eini, það er ég“, hugsaði liann angurvær. „En það verður nú ekki öllu lengur“, mundi María sagt hafa, því að andi Guðs var farinn að vinna góða verkið í hjarta hins unga manns. „Það er ég“, sagði hann; nú skildi hann það, að hann var syndari — skildi það til fulls. Að því búnu las hann sönginn allan, las það, að hirðir- inn liefði lagt líf og blóð í sölurnar til að leita sauðinn uppi og bera hann síð-

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.