Ljósberinn - 01.12.1960, Side 3
^ÁO. árg., 10.—12. tbl.
Jsjcslíerinn
J ólin 1960
FJÁRHIRDIRINN
ra
BETLEHEM
Jom
letgióaffa
Eftir veginum frá Jerúsalem til Gasa hljóp
unguf maður sem fætur toguðu. Það var engu
líkara en að hann væri að hlaupa undan óð-
um óvini eða óargadýrum, — Svitinn stóð
eins og perlur á enni hans. Hann var spreng-
móður og blóðþrunginn í andliti, og hárið
mikið og dökkt flaksaði um háls hans og herð-
ar.
Nafn hins unga manns var Ben-Huri og
hann var fjárhirðir frá Betlehem. Það var
auðsætt, að eitthvað hræðilegt þrengdi að
honum. Varir hans skulfu og társtokkin aug-
un störðu hvasst eftir veginum. Stundum var
sem eldur brynni úr þeim og yfir svipfrítt
andlitið brá þó einbeitni og kjarki.
Ung,i maðurinn hljóp áfram hvíldarlaust.
Aldrei gaf hann sér tima til að fá sér eipa
fíkju af trjánum við veginn eða til að svala
þorsta sínum eða kæla hitabrunann á enni
sínu í lækjum, sem urðu á vegi hans. Hann
nam heldur aldrei staðar til að kasta kveðju
á þá, er hann mætti á leið sinni.
Allir þeir, sem mættu honum, og aðrir sem
sáu til ferða hans, horfðu með undrun á þenn-
an unga mann, sem hljóp svo mjög.
Þessum manni hlýtur að liggja mikið á,
ekki er vert, að við tefjum hann með kveðju
okkar, sögðu þeir.
Seint um kvöldið kom hann til Gasa og
dróst þá með naumindum heim að húsi Sidi-
Hamans, kaupmanns, Kápa hans hélzt varla
utan á honum og blóðið lagaði úr nöktum fót-
um hans eftir steinnibbur á veginum.
í blómgarði við húsið var mær ein ung og
vökvaði blómin.
Naómi litla, systir mín, kallaði Ben-Húri um
leið og hann opnaði hliðið og gekk dnn í garð-
inn.
— Friður sé með þér.
Mærin unga hrökk við, rak upp gleðióp og
hljóp upp um hálsinn á honum.
— Þú kominn hingað, elsku bróðir, sagði
hún himinglöð, Friður sé með þér.
En hún hrökk samstundis óttaslegin aftur
á bak, er hún sá angistarsvipinn á honum.
— Ég er aðframkominn af hungri og þorsta.
Hefur þú nokkuð til matar?
Mærin leiddi hann að grasbekk þar í garð-
inum og sótti í skyndi brauð, hunang og vín-
berjasafa, er hún færði honum.
Þau sátu bæði þögul meðan ungi maðurinn
nærði sig, að því loknu mælti hann:
— Ég er kominn hingað til að kveðja þig
fyrir fullt og allt, systir mín. Á morgun verð
ég líflátinn á Golgatahæðinni í Jerúsalem.
Unga stúlkan varð yfirkomin af skelfingu
við þessi orð og lá við sjálft, að hún félli í
ómegin. En Ben-Húri tók mjúklega utan um
hana.
— Ég ætla að segja þér allt af létta, mælti
hann. í Betlehem er grátur og kvein, því böðl-
ar Heródesar konungs ganga hús úr húsi og
LJDBBERINN
135