Nýtt kirkjublað - 01.01.1910, Blaðsíða 6
2
NÝTT KIRKJUBLAB
Jallgrímur biskup.
Einir 7 Jijónandi prestar voru eldri að vígslu Jiegar Hall-
grímur heitinn biskup beiddist lausnar haustið 1908. Starfs-
tími hans í kirkjunni var rétt 37 ár, nokkru lengri en þeirra
Geirs og Helga, en tnun styttri en Steingríms og Péturs. Hann
einn, Pétur, náði júbilári og 3 árum betur. Skemst var Geir
í kennimannlegri stöðu af þessum 5 biskupum liðinnar aldar,
en flest befir hann biskupsárin, full 2fi, en hann var eigi
nema rúmlega hálfíertugur er hann varð biskup.
Þrír hafa þeir verið dómkirkjuprestar, áður en þeir urðu
biskupar, Geir, Helgi, Hallgrímur, og minstu ntunaði að Pét-
ur væri sá fjórði, stóð á Landakotskaupunum En það
flýtti fyrir prestaskólanum, og þá verður forstöðumenskan þar
hitt þrepið. Sex hafa biskupar verið yfir öllu landi og setið
í Reykjavík og ekki nema einn þeirra komið úr sveit, Stein-
grímur frá Odda, en allir þó sveitaprestar verið nema Geir
og Hallgrímur.
Þegar Pétur tók við, hafði Grímur Thomsen í glensi að
það gengi á „mínútu-skotum" hjá honum; umburðarbréfun-
um rigndi niður, eru sum þeirra í fyrsta ári Stjórnartíðind-
anna. Þegar Ilallgrímur tók við 1889 færðist og nýtt lífyfir
á ýmsa grein, í synodus og í héraðsfundi, og hann sótti heim
flesta presta landsins. Samskol efldust til Prestekknasjóðsins,
drykkjuskaparófögnuðurinn meðal presta var að kalla kveð-
inn niður og ýmislegt mætti fleira nefna.
Einna merkast til frambúðar frá biskupstið hans er hinn
almenni Kirkjusjóður, sem séra Þórarinn var faðir að, eins
og svo mörgu öðru í kirkjulöggjöf vorri.
Annars mun Hallgrímur biskup hafa átt sæti í flestöll-
um synodusnefndum, eins meðan hann var dómkirkjuprestur.
Snemma í biskupstíð hans var sett nefnd til að endur-
skoða handbókina, og hann íormaður og var töluvert unnið
að því vandaverki, en bibliuþýðingin nýja kom til áður en
lokið væri verkinu við helgisiðabókina, og var þá ráðið af að
bíða eftir nýju þýðingunni á textunum og því var ólokið end-
urskoðun handbókarinnar, er Hallgrimur biskup fór frá.
JBibliuþýðingin nýja er aðalverk Hallgríms biskups. Hann