Nýtt kirkjublað - 01.01.1910, Blaðsíða 17

Nýtt kirkjublað - 01.01.1910, Blaðsíða 17
NYTT KIRKJUBLAÐ 13 lesadinn sé honum stundum ósamþykkur og leyfi sér að setja spurnarmerki við sumt af því sem hann segir. Þeir sem lesið hafa „Þýðing trúarinnar" vita hvernig kennimaður Skov- gaard Petersen er, hversu alt beinist þar að hinu raungæfi- lega (praktíska), hversu hann er frásneyddur öllu skýjaflugi, en heldur sér við jörðina, stendur báðum fótum í mannlífinu miðju og tekur dæmi sin þaðan. Þetta síðasttalda er styrk- leiki hann, og það er öllu öðru fremur það, sem gjörir bæk- ur hans svo aðlaðandi og skemtilegar aflestrar. Svo er og farið hinni síðast útkomnu bók Skovgaards Petersens „Bók æskunnar“ („Ungdommens Bog“ eins og titill hennar er á dönsku). Eg get naumast (að undantekinni bók Ricards ,,Æskulíf“) hugsað mér betri betri bók að fá æsku- lýðnum i hendur — þeim er geta lesið dönsku — en einmitt hana, og væri mikið gefandi fyrir að eiga hana í góðri ís- lenzkri þýðingu. Bókin er í þremur höfuðköflum (er aftur skiftast í minni kafla). Fyrsti kaflinn er um „æskulýðinn og guðsríki“. Annar kaflinn um „uppvaxtarárin“ og þriðji kafl- inn um „byltinga-árin“, (1) þegar hinir andlegu hæfileikar vakna, 2) þegar samvizkulífið vaknar og 3) þegar ástalifið vaknar). Rúm- ið leyfir ekki að rekja innihaldið neitt frekar eða tilfæra neitt af hinum mörgu dæmum úr lífinu, sem bókin er svo auðug að, svo freistandi sem það þó hefði verið, enda var tilgangurinn með línum þessum einvörðungu sá, að vekja athygli manna á bókinni og hvetja menn til að eignast hana og lesa. J. H. Séra Jón Bjarnason. „Lögberg“ segir frá heiðurssamsæti sem þeim hjónum séra Jóni og frú Láru befir verið haldið 15. nóvember, i kirkju hins fyrsta lúterska safnaðar i Winnipég- Séra Jón kemur alfarinn frá íslandi á áliðnu sumri 1884, og sezt hann þá að í Winnipeg og söfnuðurinn stofnast og upp úr því Kirkjufélagið. Þessari aldarfjórðungs-minning safnaðarins var þó frestað til 15. nóvember, en þann dag varð séra Jón 64 ára og rélt 39 ár liðin frá því þau hjón- in giftust i Reykjavik. Söfnuðurinn þakkaði séra Jóni i ávarpinu bæði prests-

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.