Nýtt kirkjublað - 01.01.1910, Qupperneq 16
12
NÝTT KIRKJUBLAB.
deild félagsins 22 fyrirlestrar sögulegs efuis, 13 trúfræðilgs
og 12 uni ýmsan annan fróðleik.
Samkvæmt fyrirmælum aljijóða-nefndarinnar í Genf stóð
bænavikuhaldið um gjörvallan heim yfir vikuna 14—20. nóv-
ember. Um þrjár miljónir meðlima félagsins K F. U. M. af
öllum þjóðum og tungnm hafa á þeim dögum farið með og
ihugað sama texta heilagrar ritningar og beðist fvrir um
styrking bróðurkærleikans. Og slikir sambæna-fundir voru í
voru félagi i Reykjavík á hverju kvöldi þá dagana.
Bókasafn félagsins auðgast stöðugt. Bindin nú orðin
um 1500 að tölu, og eru þar margar góðar bækur („Reyfara-
sögur útilokaðar"). Og safnið hefir verið mikið notað á árinu.
Forstöðumaðurinn hefir gefið út Mánaðarblað K. F. U. M.,
eru þar auglýsingar Reykjavíkur-félagsins, fréttir af því og af
félaginu erlendis, kristilegar hugvekjur, sögur og ljóð o. fl.
Fyrsta árgangi lokið i f. m.
Félaeatalan er i Aðaldeild K. F. U. M. rúmlega 100. í
Unglingadeildinni 79 og í Yngstu deild 140. í Kristilegu Fé-
lagi Ungra Kvenna eru nálægt 200.
Það er ekki lítið starf sem hvilir langmest á herðum eins
manns, og hefir hann það i vetur á hendi með vinnumiklu
embætti. Þeir sem saman halda N.Kbl. öllu ættu að taka upp
hjá sér 1. árganginn 1906, og rifja upp fyrir sér hina ræki-
legu sögu alþjóðafélagsskaparins og félagsins hér á landi eftir
forstöðumanninn séra Friðrik.
®ók œskunnar.’
Svo nefnist nýútkomið rit eftir danska prestinn Skovgaard
Petersen, sem mörgum er orðinn að góðu kunnur bér á landi
og vafalaust sá af útlendum höfundum, er um trúrnál rita,
sem mest er Iesinn á íslenzkum pestsetrum. Hann á það
líka skilið flestum slíkum höfundum fremur. að honum sé
gaumur gefinn, þvi að alt sem hann skrifar er svo vekjandi
og gott til fróðleiks, rökfærslan svo óvenju skýr og stýllinn
svo fjörugur, að alt af er ánægja að lesa rit hans eins þótt