Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1937, Blaðsíða 26
Löf/ Istindssainbaiulsins.
Tímarit Iðnaðarmanna
hvetjandi og leiðbeinandi um iðnaðarmál hve-
nær sem tækifæri er til.
g. Halda livetjandi og fræðandi fyrirlestra
lil að leiðbelná iðnaðarmönmmi og skipu-
leggja mál þeirra.
h. Stuðla að bættum vinmibrögðum og verk-
bekkingu í iðnaði.
I. gr. í Sambandinu geta verið félög, sem
vinna að iðju og iðnaðarmálum. I liverjum bæ
eða kauplúni getur þó aðeins eilt iðnsveinafélag
og eitt iðnmeistarafélag i hverri iðngrein feng-
ið inntöku í Sambandið. Einnig geta iðnskólar
verið meðlimir Sambandsins.
ö. gr- Umsókn um upptöku í Sambandið skal
vera skrifleg og sendist stjórn Sambandsins.
Samþvkkir stjórnin upptökuna eða synjar
heniii, eij allar slíkar ákvarðanir hennar skulu
lagðar fvrir næsta iðnþing til staðfestingar.
Umsóknum um upptöku í Sambandið skal
fylgja skýrsla um stofnun og starfsemi félags-
ins og lög þess og meðlimaskrá.
(i. gr. í júni eða júlí annaðhvort ár heyir
Landssambandið þing, sein heitir Iðnþing ís-
lendinga og skal ])ingstaður ákveðinn á næsta
þingi á undan. Sainbandsstjórnin boðar lil
þess með .‘ija mánaða fyrirvara. Annaðlivort
þing sé haldið utan Reykjavíkur og þá i hin-
um kaupstöðum landsins á vixl.
Aukaþing skal lialda ef % Sambandsfélaga
óska þess, eða Sambandsstjórn telur það nauð-
synlegt, og nægir að það sé lioðað með mán-
aðar fyrirvara.
7. gr. Hvert þa'ð félag og iðnskiili sem i Sam-
bandiiju er kýs einn fulítrúa á Iðnþing. Séu með-
limir félagsins fleiri en 100 á það rétl á að
kjósa 1 fulltrúa að auki fyrir hverja 100 eða
brot úr 100 umfram fyrstn 100 meðliminá.
Auk þess eru formenn iðnaðarmannfélaga
og iðnráða sjálfkjörnir á Iðnþing, svo og rit-
stjóri Tímarits iðnaðarmanna. Fulltrúi Iðn-
skóla skal kosinn al' skólanefnd skólans.
Nú getur kjörinn fulltrúi ekki mættá Iðnþingi
og má þá aðili sá, er kaus liann, fela samiðn-
aðarmanni á þingstaðnum að mæta í lians
stað, enda sé liann meðlimur í Sambandsfélagi.
8. gr. Kjörgengir á Iðnþing eru þeir sem hafa:
1. Iðnpróf eða iðnréttindi i einhverri grein.
2. Próf i einhverri iðnfræðilegri (tekniskri)
fræðigrein eða kunnáttuvottorð sem Sam-
bandsstjórn tckur gilt.
3. Verkfræðipróf.
Kjörgengir eru þó ekki þeir, sem hafa verzl-
un með erlendan varning í samkepni við ís-
lenzkan iðnað að aðalatvinnu.
9. gr. Iðnþingið úrskurðar kjörbréf kosinna
l'ulltrúa og rctt þeirra lil þingsetu, svo og
hvort þeir séu kosnir af hlutgengum aðila.
10. gr. Hvert Sambandsfélag skal hafa til-
kynl stjórn Sambandsins hver eða hverjir séu
kosnir fulltrúar á Iðnþing af þess hálfu, í sið-
asta lagi 14 dögum fvrir ]iing.
A sama hátt skal tilkynna stjórn Sambands-
ins allar breytingar á stjórn og meðlimatölu
Sambandsfélaga innan mánaðar frá árlegum
aðálfundi hvers félags i Sambandinu.
11. gr. Iðnþing hefir æðsta vald í öllum mál-
uin Landssambandsins. A ]iví skulu tekin fyrir
öll þau mál, sem þurfa þykir og Sambandið
varða eða félög þess. Mál, er einstakir félagar
eða félög óska að verði tekin fyrir á þinginu,
skulu komin til Sambandsstjórnar ekki síðar
en 14 dögum fyrir þing. Iðnþing er löginætl,
ef löglega hefir verið boðað. Þingfundir eru
lögmætir þegar % þeirra, sem á þingstað eru,
eru mæltir.
12. gr. Stjórn Sambandsins ski|>a finnn menn,
búsettir í Hafnarfirði og Reykjavík, og aðrir
fimm séu kosnir til vara. Skulu þeir kosnir á
Iðnþinginu lil næsta þings, aðalstjórnarmenn-
irnir, forséti, varaforseti, ritari, vararitari og
gjaldkeri hver í sínu lagi. Slungið skal upp á
mönnum i stjórnina og kosið siðan um þá
bundnum kosninguin skriflega. Einfaldur
meirihluti ræður úrslitum. Ennfremuf skal
þingið á sama hátt kjósa tvo endurskoðendur
og aðra tvo til vara. Forfallist einhver úr aðal-
stjórn, kemur sá úr varastjórninni, sem flest
fékk alkvæði, í aðalstjórnina.
13. gr. Stjórn Sambandsins framkvæmir á-
Ivktanir þingsins og undirbýr mál undir næsta
]iing. Hún fer með mál Sambandsins milli
þinga og kemur fram fyrir hönd þess út á við
og inn á við. Hún skal vera ráðunautur stjórn-
arvalda rikisins um málefni, sem snerta iðju
72