Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1937, Blaðsíða 27
Tímarit Iðnaðarmanna
Lö() Landssarnbundsins.
eða iðnað, þegar lil hennar er leitað. Hún
stjórnar skrifstofn Sambandsins og ræðnr
starfsfólk hennar og aðstoðarmenn alment
nieð þau mál, er varða iðju og iðnað, og til
hennar er vísað. Hún skal og sjá um útgáfu
rita af hendi Sambandsins, en ráða má hún rit-
stjóra, að þeim, ef hún vill.
14. gr. Skrifstofa Sámbandsins skal meðal
annars gefa iðnaðarmönnum upplýsingar og
ráð um kaup og meðferð véla, efniskaup o. fl.
sérstaklega viðvíkjandi smærri iðnaði. Er
stjórn Sambandsins í því skyni heimilt að fá
sérfróða menn lil ráða ef með þarf, en
kostnað við slíkar upplýsingar greiða þeir er
um þær biðja.
15. gr. Fé til reksturs Samhandsins og starf-
rtekslu skrifstofunnar pg þinghaldafáistþannig:
1. Þóknun fyrir upplýsingarstarfsemi.
2. Tillag úr ríkissjóði.
5. Skattur frá félögum Samhandsins, er sé
ákveðinn á hverju þingi og gildi til næsta
þings. Skal skatturinn miðast við meðlimalölu
við siðustu áramót og greiðast fyrir 1. apríl
ár hvert.
1(5. gr. Sambandið greiðir ekki kaup, lerða-
kostnað eða dvalarkostnað fulltrúa þeirra, er á
Iðnþinginu sitja, en allan annan beinan kostn-
að al' þinginu. Ferðakostnað þingfulltrúa
greiðir viðkomandi Samhandsmeðlimur, að
nokkru eða öllu leyti, sé þess krafist.
Stjórn Landsambands eða stjórn iðnaðar-
mannafélags á þingstað skal falið að útvega
fulltrúum frían dválarstað á meðan þing
stendur yfir, eltir því sem unt er.
17. gr. Sambandsstjórn skal semja reikning
yfir tekjur og gjöld Sambandsins og leggja
hann endurskoðaðan fyrir Iðnþing, sem úr-
skurðar hann. Reikningsárið er almanaksárið.
18. gr. Sambandsstjórnin hefir umboðsmenn
um land alt, þar sem nokkur samtök eða fé-
lagsskapur er til mcðal iðnaðarmanna. Skal
það vera formaður iðnaðarmannafélags eða
iðnráðs, þar sem það er til.
Þar sem iðnaðarmannafélag ekki er starf-
andi óg ekki er iðnráð, má Samhandsstjórnin
sémja við kjörinn þingfulltrúa frá hverjum
stað um að vera umboðsmaður hénnar.
19. gr. Hvcrl félag í Sambandinu skal senda
Sambandsstjórn skýrslu um starf sitt, fjárhag,
félagafjölda og atvinnuafkomu félaga sinna
síðastliðið aimanaksár, og sé skýrslan komin
til Sambandsstjórnar fyrir 31. marz ár hvert.
20. gr. Hvert félag í Sambandinu hefir fult
frelsi um félagsmál sín, þó svo, að ekki komi i
hága við Sambandslög, stefnuskrá eða sam-
þyktir Samhandsins.
21. gr. Hverjum félagsmanni í félagi, sem
er í Samhandinu, er óheimilt að ganga í hága
við samning eða kaujitaxta, sem gilda fyrir
Samhandsfélag samiðnaðarmanna hans á
þeim stað, sem kauptaxtinn nær yfir. Komi
aðilar sér saman um að leg'gja málið í gerð,
fer um það samkvæmt reglum um gerðardóm,
er Iðnþingið setur. Agreiningur úl af vinnu-
taxla eða samningstaxta skal einnig útkljá af
þessum gerðardómi, ef aðilar koma sér sam-
an um það.
22. gr. Hvert félag hefir rétt til að skjóta
öllum ágreiningsmálum og málum stjórnmála-
legs eðlis til Samhandsstjórnar lil úrskurðar.
Áfrýja má úrskurði stjórnarinnar til Iðn-
þingsins.
23. gr. Nú hrýtur eitthvert félag i Samband-
inu lög þess, reglur eða samþyktir og skal þá
Samhandssstjórninni heimilt að víkja ])vi úr
Samhandinu. Þó skal næsta Iðnþing leggja
fullnaðarúrskurð á ])að mál. Brjóti einstakur
félagsmaður lög Sámbandsins, skal félag
hans víkja honum úr félaginu um stundar-
sakir samkvæmt úrskurði Sambandsstjórnar.
24. gr. Úrsögn úr Sambandinu skal sendast
skriflega til Samhandsstjórnarinnar, og verður
því aðeins tekin til greina að viðkomandi fé-
lag sé skuldlaust við Sambandið.
25. gr. Tillögur um hreytingar á lögum og
þingsköpum Samhandsins séu i höndum Sam-
bandsstjórnar ekki síðar en 14 dögum fyrir
þing. Á þinginu skal hafa tvær umræður unt
slikar tillögur og þarf % liluta atkvæða á þing-
fundum lil þess að þær nái samþykki.
Þingsköp fyrir Iðnþing íslendinga.
1. gr. Þegar l'ðnþing kemur saman, skal for-
seti Sambandsins, eða í forföllum hans, vara-
73