Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1937, Blaðsíða 29

Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1937, Blaðsíða 29
Tímarit Iðnaðarmanna Rannsóknarstofnun Háskóla íslands var vígð og opmið almenningi lil tifnola þann 18. sept. s. 1. í daglegu tali cr stofnunin kölluð Atvinnudeildin, af því að héhni er einkuni ;ellað að vinna í þágu atvinnuveganna, hæði með smærri daglegum rannsóknum og stærri, itarlégum, vísindalegum tilraunum og atlnig- unum. Allmyndarlegt hús Jiefir verið reisl fýrir stofnunina á lóð Háskóla íslands við framhald Tjarnargötu. Yar In'isið með nauð- synlegasta húsbúnaði vígt ofannefndan dag með 3 ræðum og kaffidrykkju á eftir. All- mörgum gestum, ríkisstjórn, bæjarstjórn, al- þingismönnum, háskölakennurum og fulltrú- um frá atvinnuvegunum var boðið að vera viðstaddir. Ræður fluttu þeir jtróf. Alexander Jóliannesson, formaður liyggingarnefndar há- skólans, Haraldur Guðmundsson atvinnumála- ráðherra og Trausti Ólafsson forstöðumaður stofnunarinnar, og gerðu grein fyrir hyggingu, tilgangi og stafstilhögun stofnunárinnar. Skai hér getið hins helzla. Hús slofmmarinnar er þriggja liæða hús, 11x30 m. að stærð, og kostaði með húsbúnaði 210.000 kr. Þeir feðgar Ingihergur Þorkelsson, húsasmiður og Þorkell Ingihergsson, múrari, reislu húsið. A neðstu lnæð er húsnæði land- húnaðárdeildar, aðalskrifslofa hússins, mið- stöðvar o. fl. A næstu hæð er iðnaðardeildinni ællaður staður. Suðurendi þeirrar hæðar er efnarannsóknarstofa, 10,5x12 m. að stærð, en í norðurendanum eru skrifstofur forstöðu- manna, hókasafn og gerlarannsóknarstofur og ein stofa fyrir sérstakar efnarannsóknir. Á þriðju hæð eru fiskirannsóknir, kenslustofur, mvndastofa o. fl. Eins og að ofan er sagt er Trausti Ólafsson efnafræðingur forstöðumaður stofnunarinnar og jafnframt deildarstjóri iðnaðardeihlar, en við þá deild starfar einnig dr. Jón Vestdal sem efnafræðingur matvælaeftirlitsins. Deild- arstjóri fiskirannsóknardeildar er Árni Fnð- riksson og deildarstjóri landhúnaðárdeildar Steingrímur Steinþórsson. Með húsnæði því, sem hér liefir verið reist og úlhúið í þarfir raunvísindalegra rannsókna, er að miklu leyti hætt úr brýnni þörf og að nokkru búið svo um, að vinnuskilyrði á þessu sviði mega nú teljast sæmileg. Er það stört spor i framfaraátt frá því sem var. Að vísu eru ýmsir smágallar á aðbúðinni, svo sem það, að þurfa að bera öll kol í gegniun vélastofu efna- rannsóknastofunnar, að borðplötur i rann- 75

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.