Tímarit iðnaðarmanna - 01.04.1939, Blaðsíða 17

Tímarit iðnaðarmanna - 01.04.1939, Blaðsíða 17
Tímarit iðnaðarmanna. Frá sambandsfélögum. Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík, Iiélt aðalfund 27. marz siðastliðinn. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf. Formaður, Einar Erlendsson, skýrði frá störfum fé- lagsins á síðasta ári. Á fundum í vetur hefir verið m. a. rætt um kunnáttuskilyrði til upptöku í Iðn- skólann, verðlaunaveitingar fyrir prófsmíðar, iðn- sýningu á þessu sumri, og útgáfu iðnaðarsögu, sem verið er að vinna aö. Bókfærðar skuldlausar eighir félagsins voru í árslok kr. 149.486.90. Úr stjórn fé- lagsins átlu að ganga Itagnar Þórarinsson gjaldkeri og Guðmundur H. Þorláksson ritari, en voru báðir endurkosnir. Auk þeirra skipa stjórnina Einar Er- lendsson formaður, Ársæll Árnason, bókbindara- meistari og Sigurður Halldórsson húsasmiðameist- ari. í varastjórn var kosinn: Guðmundur .1. Breið- fjörð blikksmiðameistari, í skólanefnd Iðnskólans: Friðrik Þorsteinsson húsgagnasmiðameistari, (end- urkosinn); endurskoðendur voru kosnir: Guðmund- ur Gamalíelsson, Pétur G. Guðmundsson og til vara Stefán Sandholt, atlir endurkosnir. I stjórn jarðar- farasjóðs voru endurkosnir: Helgi Guðmundsson, Sigurður Halldórsson og Snæbjörn G. Jónssón. í skemtinefnd: Ragnar Þórarinsson, Óskar Gíslason og Theodór Magnússon. í bókasafnsnefnd var endur- kosinn Pétur G. Guðmundsson. Á fundinum afhenti Helgi Guðmundsson málara- meistari félaginu að gjöf mjög vaiidaða bók, lil þess gerða að færa inn í hana nöfn þeirra manna, er færðu jarðarfarasjóðnum gjafir, eða keyptu minning- arspjöld sjóðsins. vorið 1885 og hefir jafnan stundað gullsmiði síðan og stundar enn. Er það langur vinnudagur að hafa unnið sjálfstætt að iðn sinni 53 ár. Þótti Helgi strax góður smiður, en hann er einn þeirra manna, sem altaf hefir verið að læra og farið vaxandi í iðn sinni fram á gamals aldur. Er Helgi nú án efa einhver inesti leturgrafari hér á landi, og jafnan til hans leitað ineð Jiað, sem bezt skal vanda. Bera flestir smiðagripir hans vott um afburða hagleik og lista- smekk. Stærsta smíðisgrip sinn telur Helgi líkingu af fornu drykkjarhorni, sem er eign Kristjáns sonar hans, sem nú er laxveiðimaður í Alaska. Fram á síðustu ár hefir Helgi látið sig miklu skipta öli mál iðnaðarmanna, og á fyrstu árum var hann þar í fylkingarbrjósti; ei.nn af stofnendum Iðnaðar- mannafélagsins og um mörg ár í stjórn Jiess. Helgi er einnig áhugamaður um almenn mál og fylgdist vel með þeim málum. Hann hefir jafnan verið góður og nýtur borgari, og iætur sér ant um hag bæjarins í hvívetna. Arngr. Heimsókn til Keflavíkur. Þann 7. apríl fóru þeir Helgi H. Eiríksson formað- ur Landssambandsins og Sveinbjörn Jónsson til Keflavikur og voru á fundi með Iðnaðarmannafélag- inu liar. Var aðallega rætl um skólamál iðnaðar- manna í Jieini kauptúnum, sem erfitt er að Iialda uppi kvöldskólum sökum fámennis iðnaðarmanna. Kom fram ósk um að Landssambandið rannsakaði hvort meistarar utan Reykjavíkur kærðu sig um að fá 6—8 vikna dagskóla við Iðnskólann í Reykjavík, á henlugum tíma árs, fyrir nemendur sína. Hefir nú Landssambandið sent út fyrirspurnir um lietta. Iðnaðarmannafélag Akraness hélt aðalfund 20. jan. s.l. 10 félagsfundir hafa verið haldnir á árinu. Á þeim hafa mætt flest 28, fæst 10 af 44 starfandi félagsmönnum. Fimm nýir félagar hafa gengið í félagið um áramótin. Stjórnin var öll endur- in og skipa hana: Jóhann B. Guðnason, liúsasmiður, form., Bjarni Gislason, luisasm., gjaldkeri, Einar Helgason húsasm., ritari. Meðstjórnendur: Ásmundur Jónsson rafvirki og Einar G. Veslmann járnsmiður. Skólanefnd iðnskólans skipa: Ásmundur Jónsson rafv., Ólafur Magnússon lnisasm. og Lárus Þjóðbjörns- son, húsasm. og hefir hann kent flatar- og rúmmáls- teikniiigu við skólann undanfarið. I skólanum eru 10 nemendur. Félag söðla- og aktygjasmiða í Reykjavík hefir verið tekið upp í Landssamband iðnaðarmanna. Félagar eru 15. Stjórnina skipa: Baldvin Einarsson, l'orm., Guðmundur Jónsson, ritari og Jón Þorsteinsson gjaldkeri. Fulltrúi i Iðnráði Reykjavíkur er Baldvin Einarsson. Á aðalfundi Matsvcina- og veitingalijónafélags íslands voru Jiess- ir félagar kosnir í stjórn félagsins: Janus Halldórsson form., Henry Hansen varaform., Pétur Daníelsson gjaldkeri, H. Petersen ritari, Jóh. Viggó Eggertsson meðstjórnandi. Kosin var á fundinum þriggja manna nefnd, er undirbúi samning við hóteleigendur. í nefndinni eiga sæti: Steingr. Jóhannesson, Janus og Hjörtur Nielsen. Iðnaðarmannafélag Akureyrar hélt árshátið sína laugardaginn 25. marz s.I. í sam- komuhúsi bæjarins. Hófst liún með kaffidrykkju kl. 9. Þátttakendur voru um hundrað manns. Formaður félagsins, Guðbjörn Björnsson, setti liófið, bauð alla velkomna, tilkynti skemtiatriði og bvatti til sameigin- legrar þátttöku. Jóhann Frímann skólastjóri iðnskól- ans flutti ágæta ræðu fyrir minni félagsins. Karl Ein- arsson, húsgagnabólstrari flutti kvennaminni i ljóð- um og var gerður að góðnr rómur. Formaður mintist 31

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.