Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Qupperneq 20

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Qupperneq 20
Ajgreiðslusalur Grensásútibús Iðnaðarbankans. arútibú og Grensásútibú eru rekin í, og nú er bankinn að byggja yfir útibúið í Hafnarfirði á horni Reykjavíkurvegar og Strandgötu. Á aðalfundinum voru eftirtaldir menn endur- kosnir í bankaráð: Sveinn Guðmundsson, Sveinn B. Valfells og Vigfús Sigurðsson. Iðnaðarmála- ráðherra skipaði í bankaráðið Einar Gíslaspn og Guðmund R. Oddsson. Endurskoðendur voru endurkosnir þeir Ottó Schopka og Þorvarður Alfonsson. ISnlánasjóður Úr Iðnlánasjóði voru veitt 219 lán samtals að fjárhæð 76,5 millj. kr., árið 1966, þar af voru véla- lán 124 að ljárhæð samtals 29,3 millj. kr. og byggingalán 78 að fjárhæð 36 millj. kr. Hagræð- ingarlán og lán til breytinga á lausaskuldum í föst lán námu samtals 10,7 millj. kr. Heildarútlán Iðnlánasjóðs nema 194,3 millj. kr. Tekjur Iðnlánasjóðs á árinu voru 21 rnillj. kr. í iðnlánasjóðsgjaldi, 2 millj. kr. ríkisframlag og 13,3 millj. kr. í vöxtum og þóknun. Tekjuaf- gangur sjóðsins nam 30,8 millj. kr., og er þá eigið fé sjóðsins orðið 102,6 millj. kr. Á árinu voru tek- in lán að fjárhæð 27,7 millj. kr. til endurlána. Á s.l. ári voru samþykkt lög um breytingu á Iðnlánasjóðslögunum, sem efla munu sjóðinn og gera hann betur hæfan til þess að sinna hlutverki sínu. Er þar fyrst til að taka, að framlag ríkissjóðs er hækkað úr 2 millj. kr. í 10 millj. króna. Heim- ild sú, sem Iðnlánasjóður hefur haft til þess að taka lán til starfsemi sinnar, ef árlegt ráðstöfunar- fé sjóðsins nægir ekki, hækkar úr 100 millj. kr. í 150 millj. kr. Þá er gert ráð fyrir myndun nýs lánaflokks í því skyni að veita sérstök hagræðing- arlán til viðbótar almennum lánum, er að mati sjóðsstjórnarinnar teljist stuðla verulega að því að Nýbygging Iðnaðarbankans i Hafnarfirði. auka framleiðni og bæta aðstöðu iðnfyrirtækja til þess að aðlaga sig nýjum viðhorfum vegna breyttra viðskiptahátta, svo sem tollabreytinga og fríverzlunar. Iðnlánasjóði er heimilað að taka allt að 100 millj. kr. lán til að verja til þessa nýja flokks hagræðingarlána. Á yfirstandandi ári mun Iðnlánasjóður væntan- lega veita nokkur hagræðingarlán, jafnframt því sem lausaskuldum iðnfyrirtækja verður áfram hreytt í föst lán hjá þeim, sem hafa hlotið til þess samþykki sinna viðskiptabanka. Sendum öllum iðnaðarmönnum okkar beztu ctrnaðaróskir í tilefni aldarafmælis Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík BYGGINGAÞJÓNUSTA A.í. ARKITEKTAFÉLAG ÍSLANDS Laugavegi 26. .Sími 24344 20 TÍMARIT lONABARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.