Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Qupperneq 43
aöarmannafélagið í Reykjavík, en aðalstarf félags-
ins er nú að byggja íbúðir, sem Jrað leigir öldruð-
um iðnaðarmönnum. Þessa byggingarstarfsemi
hefur félagið rekið í meira en 100 ár og rekur
liana af fullum krafti enn í dag. Á félagið mörg
hundruð íbúðir um alla borgina. Aðsetur hefur
félagið í gamalli höll, sem nú stendur í miðri
borginni, umlukin húsum á alla vegu, Jrar sem
áður voru grænar grundir og beykiskógar, þegar
höllin var byggð fyrir meira en 300 árum. Höll-
inni fylgja ýmis listaverk og fornmunir, sem eru
í eigu félagsins. Ennfremur heimsótti ég Hoved-
organisationen af Mesterforeninger i byggefag-
ene i Danmark, en aðilar að Jrví sambandi eru
félög húsasmiða- og múrarameistara utan Kaup-
mannahafnar og kaupstaðanna. Sambandið starf-
ar einkum sem vinnuveitendasamband bygginga-
meistara, hefur með höndum gerð kjarasamninga
og útgáfu ákvæðisvinnutaxta o. |). h. Ennfremur
rekur það rnikla þjónustu við félagsmenn sína og
hefur m. a. á að skipa 5 fagiegum ráðunautum *
byggingariðnaði.
Þá heimsótti ég að sjálfsögðu aðalstöðvar
Danska iðnsambandsins, Hándværksrádet, og
kynnti mér störf einstakra starfsmanna svo og
skipulag þess.
Ferðalaginu lauk svo með Jrví, að ég varði heil-
um degi í heimsókn til Teknologisk Institut og
var Jrar margt fróðlegt að sjá. Síðan flaug ég til
Reykjavíkur sunnudaginn 13. nóvember.
Skýrsla mín til stjórnar Landssambands iðnað-
armanna um starfsemi og skipulag iðnsamband-
anna mun birtast í heild í næsta hefti Tímarits
iðnaðarmanna.
Samband hárgreiðslu- og hárskera-
meistara stofnaS
íslenzkir hárgreiðslu- og hárskerameistarar
hafa að undanförnu unnið að stofnun sambands
félaganna. Dagana 23. og 24. maí s.l. voru haldnir
fundir í félögunum og samþykkt stofnun Hár-
greiðslu- og hárskerameistarasambands íslands,
og er það aðili að Det Nordiske Dame og Herre-
frisör Mesterforbund.
Tilgangur sambandsins er m. a. að gæta sam-
eiginlegra hagsmuna félagsmanna, að stuðla að
aukinni samvinnu félaganna og kynna allar fram-
farir í iðngreinunum meðal félaganna.
Miðvikudaginn 24. maí var haldinn Æyrsti
fundur hinna nýkjörnu sambandsstjórnar. Hana
skipa: Ardís Pálsdóttir formaður, Sigurður Sig-
urðsson varaformaður, Vilhelm Ingólfsson ritari,
Hörður Þórarinsson gjaldkeri, Sigríður Bjarna-
dóttir og Ingveldur Guðmundsdóttir meðstjórn-
endur.
I tilefni af stofnun Jiessa sambands kom hingað
til lands varaformaður Det Nordiske Dame- oe
Herrefrisör Mesterforbund, tr. Ryno Höglund
frá Svíþjóð, en hann er jafnframt framkvæmda-
stjóri Svenska Frisörforeningen. Sat hann fundi
félaganna og færði þeim að gjöf félagsfána Sænska
sambandsins. Hann sat jafnframt fyrsta stjórnar-
fund hins nýstofnaða sambands.
Meðfylgjandi mynd var tekin á fyrsta stjórnar-
fundi sambandsins.
F. v.: Sigriður Bjarnadóttir,
Hörður Þórarinsson, Sigurð-
ur Sigurðsson, Ryno Hög-
lund, Árdis Pálsdóttir, for-
maður sainbandsins, Vil-
helm Ingólfsson og Ingveld-
ur Guðmundsdóttir.
TÍMARIT IBNAÐARMANNA
43