Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Side 30

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Side 30
Talsverður hlutl af ráðstöfunarfé hins opinbera veðlánakerfis rennur til byggingaráætlunar ríkisins og minnka þá lánamöguleikar þeirra einkaaðila, sem byggja á eigin spýt- ur. Allt þetta hlýtur að leiða til nokkurs samdráttar í byggingariðn- aði. Efnahagsstofnunin hefur nýlega gert áætlun um íbúðarþörfina á ár- unum 1967-1971. Hefur stofnunin gert ráð fyrir tveimur mismunandi tilvikum í þessu sambandi. 1 báðum tilvikunum er að sjálfsögðu gert ráð fyrir, að íbúðarbyggingar samsvari að fullu aukinni fíölskyldumyndun. 1 fyrra tilvikinu er síðan gert ráð fyr- ir, að hlutfall þeirra einhleypinga, sem geta ráðið yfir ibúð, en það er hentugasti mælikvarðinn á batnandi húsnæðisástand, geti aukizt jafnmik- ið og á árunum 1960-1966, eða um 1,3% á ári. í síðari tilvikinu gerir stofnunin ráð fyrir, að hækkun þes^a hlutfalls verði heldur minni á næstu fimm árum heldur en á árunum 1960 -1966, eða um 1,0%. Bendir stofnun- in á, að eðlilegt sé, að reikna með hægari vexti hlutfallsins, þegar það sé orðið tiltölulega hátt, heldur en meðan það sé lægra. Enn fremur mun einhleypingum á aldrinum 30- 50 ára fækka á þessum árum, en gera má ráð fyrir, að það séu fyrst og fremst þeir, en ekki yngri og eldri einhleypingar, sem vilji eignast eða leigja íbúðir. Mismunur þessara til- vika er um 100 íbúðir á ári. Miðað við fyrra og hærra tilvik í áætlun Efnahagsstofnunarinnar. er þörf 1.600 íbúða árið 1967, 1700 í- búða hvort áranna 1968 og 1969, og 1800 hvort áranna 1970 og 1971. I reynd var fjármunamyndun í íbúðar- byggingum á árinu 1966 talin jafn- gilda 1750 íbúðum, en tala fullgerðra íbúða á árinu var lítið eitt Iægri en þetta, eða 1680. Gert er ráð fyrir. að fjármunamyndun í íbúðum á árinu 1967 muni samsvara um 1750 íbúðum. Tala þeirra íbúða, sem raunverulega verða fullgerðar á árinu, er meiri óvissu undirorpin, en búast má við, að hún verði Iítið eitt Iægri en þetta. B4 íbúðarbyggingar á árunum 1966 og 1967 hafa því verið talsvert umfram þær þarfir, sem Efnahagsstofnunin hefur reiknað með á þessum árum og ætti því nokkur samdráttur í framkvæmdum í stuttan tíma varla að leiða til skorts á íbúðarhúsnæði. Á vegum byggingaráætlunar ríkis- ins hafa verið flutt inn nokkur til- búin einbýlishús úr tré, sem verið er að reisa í Breiðholtshverfi. Við þær framkvæmdir hafa unnið erlendir iðnaðarmenn og hefur það að vonum Framkvcemdir við byggingar lðngarða hf. beldu áfram á árinn og fyrsta áfanga var að fullu lokið. vakið nokkra óánægju meðal inn- lendra iðnaðarmanna, þar sem verk- efni hafa verið nokkuð af skornum skammti. Einnig mun eitthvað vera um erlenda iðnaðarmenn, sem viíina við framkvæmdir við Búrfellsvirkj- un og í Straumsvík. Fjöldi þeirra er þó varla svo mikill, að það hafi nein áhrif á ástandið á vinnumarkaðin- um. Þess ber og að gæta, að á þeim tíma, þegar allar þessar vinnuafls- freku framkvæmdir voru á áætlunar- stigi, var veruleg spenna á vinnu- markaðinum og skortur á vinnuafli í ýmsum greinum. Var það mönnum þá áhyggjuefni hvar fá ætti vinnuafl til þessarra framkvæmda og ráðgert að leysa það að einhverju leyti með innflutningi vinnuafls. Þróunin á innlendum vinnumarkaði á undan- förnu ári hefur þó leitt til þess, að slíkur innflutningur hefur ekki reynzt nauðsynlegur, nema að því er varðar sérstaklega þjálfað vinnuafl á vissum sviðum. Á þessu ári hafa farið fram miklar opinberar umræður um byggingar- kostnað og söluverð íbúða. Hefur þar borið töluvert á ásökunum í garð iðnaðarmanna, um að vinna þeirra væri of dýr og einnig að bygginga- meistarar, sem byggðu íbúðir til þess að selja, héldu þeim í óhæfilega háu verði. Um þessi mál hafa orðið veru- leg blaðaskrif og birtust í því tilefni greinar frá Meistarafélagi húsasmiða í Reykjavík og Meistarasambandi byggingamanna í Reykjavík, þar sem sjónarmið iðnaðarmanna og bygg- ingameistara voru skýrð. Allar þess- ar opinberu umræður vörpuðu skýru ljósi á nauðsyn þess, að almenningur sé betur upplýstur um eðli þessara mála en raun er á og þarf að vinna að aukinni upplýsingastarfsemi á op- inberum vettvangi af hálfu samtaka iðnaðarmanna. Járniðnaður og skipaviðgerðir. Um nokkur undanfarin ár hefur Félag íslenzkra dráttarbrautareig- enda unnið að öflun opinberrar fyr- irgreiðslu til byggingar stórra drátt- arbrauta hér á landi, sem gætu ann- að viðhalds- og viðgerðaþörf hinna nýju stóru fiskiskipa, sem kevpt hafa verið til landsins og byggð inn- anlands á undanförnum árum. Mál þessi hafa notið góðs skilnings ríkis- valdsins og hefur ríkisstjórnin beitt sér fyrir sérstakri fjáröflun til þess- arra framkvæmda í hinum sérstöku árlegu fjáröflunar- og framkvæmda- áætlunum. Fyrirgreiðsla þessi hefur þó miðast við hámark 60% af virð- ingarverði framkvæmda en reynslan hefur leitt í ljós, að það hámark er ekki nægilegt, þar sem fyrirtækin, sem standa að þessum framkvæmd- um eru yfirleitt svo fjárvana, að þeim hefur reynzt ókleyft að útvega 40% kostnaðar eftir öðrum leiðum. í samræmi við heildaráætlun um þessi mál, sem Efnahagsstofnunin og TÍMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.