Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Qupperneq 44

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Qupperneq 44
sem heitið var í upphafi keppninnar, kr. 5.000,00, en hann afhenti gjaldkera umrædda upphæð við sama tækifæri með þeim óskum, að fénu yrði varið til hús- eignar iðnaðarmanna, sem nú er í smíðum. Fyrir þann hlýhug til félagsins færum við honum alúðarþakkir, svo og öllum, sem hafa lagt húsmálinu lið með fé og vinnu. Um leið og ég veiti fánanum viðtöku fyrir hönd fé- lagsins vildi ég færa Áka Gránz okkar beztu þakkir fyrir það að hafa hugsað og gert þetta merki. Með til- lögu Áka fylgdi eftirfarandi skýring: „Merkið í formi og lit og línum: Hvítur hringur er tákn rúmmáls hinnar ómælanlegu víddar mannsandans, það er að segja hjólið, stoð iðnþróunarinnar. Innan hrings er blár grunnur, litur víðáttunnar. I hann eru dregnar stílfærðar hvítar útlínur Reykjaness sem tákn hafrótsins. Grái liturinn innan strika er hraun og mosa- litur Suðurnesja. Þessi mynd, sem lýst hefur verið, hefur í miðju möndul, aðalmátt merkis byggingarinn- ar, tákn iðnaðarins, sem er að formi til eins og H-járn séð í endann, það málmform, sú máttarstoð, sem mest er notuð í nútímabyggingar. Á annan einfaldan hátt sýnir miðjan stafinn I, sem getur með sóma táknað Iðnaðarmannafélag Suðurnesja.“ Ég vildi óska iðnaðarmönnum á Suðurnesjum til hamingju með fánann og þá hugsun, sem að baki hon- um liggur. Fáninn mun um langan aldur verða tákn okkar til að nota samtakamátt okkar í þágu góðra mál- efna, örva okkur til athafna og dáða. Eins og fram kemur í lýsingu höfundar fánans eru dregnar í hann útlínur Reykjaness, sem minnir á fé- lagssvæði Iðnaðarmannafélagsins, sem er Reykjanes- skaginn allur sunnan Hafnarfjarðar. Það minnir okk- ur á, að byggingarlögum á Reykjanesskaga viljum við helga krafta okkar, þannig að þau séu öðrum byggð- arlögum á Islandi til fyrirmyndar. Stækkun á félagssvæði Iðnaðarmannafélagsins hefur reynst félaginu til heilla, en í fyrstu var félagssvæði þess bundið við lögsagnarumdæmi Keflavíkur. Af fundargerðarbókum félagsins frá þeim tíma má glöggt marka, að oft urðu átthagabundnir árekstrar á milli iðnaðarmanna í hinum ýmsu hreppum á Reykjanes- skaganum, en með stækkun félagssvæðisins eru slíkir árekstrar úr sögunni. Iðnaðarmenn eru nú samtaka um að efla félag sitt hvar í hrepp sem þeir búa. Mín persónulega skoðun er sú, að hagstætt væri fyr- ir sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum að fara að dæmi Iðnaðarmannafélagsins og vinna að því að stækka fé- lagssvæði sveitarfélaga sinna. Með stækkun sveitarfé- laganna mundu hinar hvimleiðu hreppakritur, sem há eðlilegri framþróun og uppbyggingu byggðalaganna, vera úr sögunni. Samtakamáttur borgaranna mundi þá eðlilega nýt- ast betur í þágu sameiginlegra velferðarmála byggð- anna, sem aftur á móti mundi virka til hagstæðari Nýr starfsmaður Eins og kunnugt er fékk Landssamband iðnaðar- manna í fyrra styrk til þjálfunar manns á sviði hag- ræðingarmála, skv. sérstakri áætlun um það mál. Til þessa starfs var ráðinn Sigurður Auðunsson, og hóf hann störf hjá Landssambandinu í októbermánuði s.l. að loknu námi hér heima og erlendis. Sigurður er fæddur á Akranesi árið 1929, nam raf- virkjun hjá Johan Rönning og tók sveinspróf árið 1951. Síðan vann hann sem „praktikant“ hjá Elektro- Mekano, Hálsingborg í Svíþjóð á árunum 1952-1953, hjá Rafmótor hf. í Hafnarfirði 1954-1956, var verkstjóri hjá Rafmagnsveitum ríkisins 1956-1960, verkstjóri hjá Jötni 1960-1962, starfsmaður hjá Ólafi Gíslasyni og Co. 1963-1965 og hjá Ljósvirki 1965-1966. Sigurður hóf nám ásamt fimm öðrum hagræðingar- efnum hjá Statens Teknologiske Institut í Oslo í októ- ber 1966 og var þar við nám fram í febrúar 1967 en þá var haldið áfram námi í Danmörku um nokkurt skeið. Síðan hefur Sigurður verið á ýmsum námskeiðum hjá Iðnaðarmálastofnun íslands unz hann hóf störf hjá Landssambandi iðnaðarmanna í októbermánuði s.l. Tímarit iðnaðarmanna býður Sigurð velkominn til starfa og er þess að vænta, að iðnaðarmenn eigi eftir að njóta góðs af námi og fjölþættri reynslu Sigurðar í starfi hans hjá Landssambandi iðnaðarmanna í fram- tíðinni. reksturs sveitarfélaganna, þannig að auka mætti þjón- ustu við þegnana. Að endingu eru það óskir mínar, að fáninn okkar verði okkar hamingjutákn og að hann verði okkur hvatning til að verða félagi okkar og bæjarfélögunum að sem mestu liði í framtíðinni. 148 TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.