Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Qupperneq 37
Almennur lííeyrissjóður
iðnaðarmanna.
Eins og undanfarin ár hefur skrif-
stofa Landssambands iðnaðar-
manna annazt afgreiðslu og skrif-
stofuhald fyrir Almennan lífeyrissjóð
iðnaðarmanna. Starfsemi lífeyris-
sjóðsins hefur verið með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Fjöldi sjóð-
félaga hélzt því sem næst óbreyttur
allt árið og hafa umræður um al-
mennan lífeyrissjóð fyrir alla lands-
menn átt hvað mestan þátt í að
draga úr áhuga manna á því að ger-
ast meðlimir í lífeyrissjóðnum. Inn-
borguð iðgjöld á árinu 1966 námu kr.
1.330.000,00 og vaxtatekjur alls kr.
71.000,00. Lánveitingar á árinu
námu kr. 1.620.000,00. HöfuðstóII
sjóðsins í árslok nam um kr. 2,8
millj. Fyrstu 8 mánuði þessa árs
námu innborguð iðgjöld um kr.
900.000,00 og veitt lán um kr.
1.260.000,0. Heildarlánveitingar
sjóðsins nema nú samtals kr.
3.850.000,00.
Ferðalög og heimsóknir.
Eins og frá er skýrt í 1. hefti Tíma-
rits iðnaðarmanna á þessu ári fór
framkvæmdastjóri Landssambands
iðnaðarmanna í kynningarferð ti!
Norðurlanda að tilhlutan stjórnar
Landssambandsins og stóð ferðin
yfir frá 1. október til 13. nóvember.
Á þessu ferðalagi heimsótti fram-
kvæmdastjóri bæði skrifstofur að-
alsamtakanna og ennfremur einstök
félög og stofnanir sem starfa í þágu
iðnaðarins. Frá ferðalaginu er nán-
ar skýrt í fyrrgreindu hefti af Tíma-
riti iðnaðarmanna og vísast til þeirr-
ar frásagnar.
Þá tók framkvæmdastjóri Lands-
sambandsins þátt í haustfundi Al-
þjóða-iðnsambandsins (eða Alþjóða-
sambandi lítilla og meðalstórra fyr-
irtækja) og aðalfundi Alþjóðasam-
bands iðnaðarmanna í Genf ,sem
fram fóru dagana 28. október til 4.
nóvember.
Um heimsóknir til sambandsfélaga
hefur ekki verið að ræða á tímabil-
inu.
I aprílmánuði s.I. fékk Landssam-
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
bandið heimsókn frá þýzka iðnsam-
bandinu, Zentralverband des Deuts-
chen Handwerks. Var það Dr. jur.
H. Wagner, sem staddur var hér á
landi í boði Loftleiða hf., og notaði
tækifærið til þess að heimsækja sam-
tök íslenzkra iðnaðarmanna og fræð-
ast um starfsemi þeirra. Þýzka iðn-
sambandið gætir m. a. hagsmuna
þeirra, sem atvinnu hafa af allskon-
ar þjónustu við erlenda ferðamenn
í Þýzkalandi, s. s. veitinga- og gisti-
húsaeigendur o. fl. og reynir því fyrir
sitt leyti að stuðla að aukningu
ferðamannastraumsins til Þýzka-
lands. Dr. Wagner er yfirmaður
þeirrar deildar sambandsins, sem
fer með þessi mál.
Dr. Wagner reit síðan grein í
tímarit þýzka iðnsambandsins um ís-
lenzkan iðnað ogLandssamband iðn-
aðarmanna byggða á upplýsingum,
sem hann fékk hjá framkvæmda-
stjóra Landssambands iðnaðar-
manna. Ennfremur gekkst hann fyr-
ir því, 'að Upplýsingadeild sam-
bandsins sendi Landssambandi iðn-
aðarmanna allmikið efni um þýzkan
iðnað og réttarstöðu iðnaðarmanna
í Þýzkalandi o. fl.
Að tilhlutan Meistarafélags hár-
skera og Hárgreiðslumeistarafélags
Reykjavíkur kom hr. Ryno Höglund
framkvæmdastjóri Svenska Frisör-
föreningen hingað til lands i lok
maí-mánaðar s.l. í tilefni af stofnun
Hárgreiðslu- og hárskerameistara-
sambands íslands. Hr. Höglund
heimsótti Landssamband iðnaðar-
manna á meðan hann dvaldi hér á
landi og endurgalt þar með heimsókn
framkvæmdastjóra Landssambands
iðnaðarmanna til Svenska Frisörför-
eningen í októbermánuði s.l.
Skipulagsmál Landssambands
iðnaðarmanna.
Á síðasta iðnþingi var kosin 5
manna nefnd til þess að fjalla um
skipulagsmál Landssambandsins og
skal nefndin gera grein fyrir störf-
um sínum á næsta iðnþingi.
í nefnd þessa voru kosnir þeir Vig-
fús Sigurðsson, Hafnarfirði, Gísli
Sigurðsson, Akranesi, Gissur Sig-
urðsson, Reykjavík, Haraldur Þórð-
arson, Reykjavík og Sigursteinn Her-
sveinsson, Reykjavík.
Skömmu eftir síðasta iðnþing á-
kvað stjórn Landssambandsins að
senda framkvæmdastjóra þessíkynn-
isferð til iðnsambandanna í Noregi,
Svíþjóð og Danmörku. Ferðaðist
hann til þessara samtaka í október
og nóvembermánuði s.l., eins og
fram kemur annars staðar í skýrsl-
unni, og skýrt hefur verið frá í Tíma-
riti iðnaðarmanna. Eftir síðustu ára-
mót lagði hann fram skýrslu um
starfsemi og skipulag samtakanna í
þessum löndum fyrir stjórn Lands-
sambandsins. Síðan fóru fram
nokkrar umræður um þetta mál í
stjórn Landssambandsins og var
framkvæmdastjóranum falið að gera
tillögur um þá framtíðarskipan þess-
ara mála, sem hann teldi heppilega.
Gerði hann fyrst grein fyrir tillögum
sínum á stjórnarfundi h. 17. apríl s.l.
og gekk sfðan frá skriflegri greinar-
gerð um tillögurnar, sem ræddar
voru á fundum f mafmánuði.
Stjórnin tók ekki afstöðu í heild
til tillagna framkvæmdastjórans en
ákvað að vísa þeim til skipulags-
nefndarinnar, enda hafði sú nefnd
verið kosin til þess að fjalla um
þessi mál.
Skipulagsnefndin kom saman
nokkrum sinnum til fundar og var
gengið frá drögum að breytingum
á lögum Landssambandsins og verða
þau lögð fyrir 29. iðnþingið til af-
greiðslu.
Keldnaholtsmálið.
Eins og kunnugt er af blaðaskrif-
um urðu allmiklar deilur milli Mál-
arameistarafélags Reykjavíkur og
Meistarasambands byggingamanna í
Reykjavík annars vegar og Kristins
Guðmundssonar, málarameistara í
Keflavík og Innkaupastofnunar rík-
isins hins vegar vegna tilboðs, sem
Kristinn hafði gert í málningarvinnu
við Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins á Keldnaholti á s.l. vetri.
Málavextir voru þeir, að við opn-
un tilboða kom i Ijós að frá 9 mál-
arameisturum í Reykjavík, sem allir
141